19.06.2026

Breytingar á sjóðnum ÍV Erlent hlutabréfasafn hs.

Íslensk verðbréf hf. hafa fengið staðfestingu Seðlabanka Íslands á nýjum reglum fyrir verðbréfasjóðinn ÍV Erlent hlutabréfasafn hs., sem ber nú heitið ÍV Erlend hlutabréf hs.

mynd

Nýju reglurnar fela í sér að hlutdeildarskírteinum sjóðsins er nú skipt í tvo flokka, flokk A og flokk B, sem bera mismunandi þóknun, og að sjóðnum er heimilt að gefa út hlutdeildarskírteini bæði í íslenskum krónum og Bandaríkjadölum.

Uppfærð útboðslýsing og reglur sjóðsins eru aðgengilegar á heimasíðu félagsins, www.iv.is.

Sé óskað frekari upplýsinga er bent á að hafa samband í gegnum iv@iv.is eða í síma 460 4700.