22.06.2026

Tilkynning um fyrirhugaðan samruna ÍV Skuldabréfa hs. og ÍV Skuldabréfasafns hs.

Stjórn Íslenskra verðbréfa hefur samþykkt að sameina ÍV Skuldabréf hs. og ÍV Skuldabréfasafn hs. ÍV Skuldabréf er yfirtökusjóður og ÍV Skuldabréfasafn er samrunasjóður.

mynd

Reglur og fjárfestingarstefna ÍV Skuldabréfa haldast óbreyttar. Samruninn hefur hlotið samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands og mun taka gildi 10.07.2026.

Tilkynningar um fyrirhugaðar breytingar voru sendar sjóðfélögum sjóðanna 29.05.2026. Tilkynninguna má nálgast hér.

Sé óskað frekari upplýsinga er bent á að hafa samband í gegnum iv@iv.is eða í síma 460 4700.