Rekstur Íslenskra verðbréfa gekk vel fyrri hluta ársins, en félagið skilaði 63 m.kr. hagnaði á tímabilinu.Rekstur Íslenskra verðbréfa gekk vel fyrri hluta ársins, en félagið skilaði 63 m.kr. hagnaði á tímabilinu.
Mikill vöxtur var á öllum sviðum eignastýringar, hvort sem horft er til einstaklinga eða fagfjárfesta, og fjölgaði viðskiptavinum félagsins töluvert. Eignir í stýringu hjá félaginu nema í dag 110 milljörðum króna og hafa aukist um 27 milljarða síðustu 12 mánuði.
Ávöxtun eignasafna hefur sömuleiðis gengið vel, til að mynda hefur Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa hækkað um rúm 13% frá áramótum og alls um 20% síðustu 12 mánuði.
Sævar Helgason, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa, er að vonum ánægður með árangurinn. „Íslensk verðbréf eru í dag elsta eignastýringarfyrirtæki landsins og byggja á yfir 20 ára reynslu af ávöxtun fjármuna á fjármálamarkaði“.
„Félagið er sérhæft fjármálafyrirtæki á sviði eignastýringar og markmið þess er að hámarka hag viðskiptavina og tryggja þeim sem besta ávöxtun. Við stundum hvorki útlánastarfsemi né hefðbundna fjárfestingarbankastarfsemi sem gæti aukið líkur á hagsmunaárekstrum. Við finnum að viðskiptavinir okkar, gamlir og nýir, meta þessa sérstöðu mikils “ segir Sævar.
Hann nefnir jafnframt að opnun skrifstofu að Sigtúni 42 í Reykjavík sumarið 2009 hafi verið heillaspor. „Viðtökurnar hafa verið góðar og stöðugur vöxtur í heimsóknum og fyrirspurnum. Nú starfa þar þrír starfsmenn á eignastýringarsviði, en þeim kann að fjölga fljótlega fari svo fram sem horfir.“
Um Íslensk verðbréfÍslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem hófu starfsemi árið 1987.
Starfsmenn eru 23 talsins, höfuðstöðvar þess eru á Akureyri en jafnframt starfrækir félagið skrifstofu að Sigtúni 42 í Reykjavík. Eignir í stýringu nema 110 milljörðum króna.