Stjórn Rekstrarfélags verðbréfasjóða ÍV hefur tekið þá ákvörðun að slíta Alþjóðlega hávaxtasjóði ÍV þar sem ekki er lengur unnt að uppfylla fjárfestingarstefnu hans.
Eignarhlutur eigenda er til útgreiðslu nú þegar - þeir sem eru í eignastýringu hjá ÍV fá viðkomandi upphæð sjálfkrafa lagða inn á eignastýringarsafn sitt.
Nánari upplýsingar fást hjá Íslenskum verðbréfum hf. í síma 460-4700. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á iv@iv.is