Vikulega birta Íslensk verðbréf samantekt um þróun helstu eignaflokka undanfarna viku. Smelltu hér ef þú vilt skrá þig á listann.
Löng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,88% en millilöng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,26%. Löng óverðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,75% og millilöng óverðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,39%. Þessar verðbreytingar endurspegla vel þann verðbólguótta sem enn virðist vera hjá fjárfestum, sérstaklega virðast fjárfestar smeykir við að taka stöðu í löngum óverðtryggðum bréfum.
Lánamál ríkisins var með ríkisbréfaútboð í vikunni. Boðnir voru tveir flokkar, RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013. Þremur tilboðum var tekið í fyrri flokknum fyrir 6,4 ma.kr. að nafnverði, ávöxtunarkrafa 2,87%, og 12 tilboðum var tekið í þeim síðari fyrir 3,1 ma.kr., ávöxtunarkrafa 5,59%.
Hagstofan birti nú í morgun (25. júlí) verðbólgumælingar í júlí og hækkaði vísitalan um 0,1% á milli mánaða. 12 mánaða verðbólga mælist nú 5%.
OMXI6ISK vísitalan lækkaði um 1,68%. Ekkert félag í vísitölunni hækkaði. BankNordik lækkaði mest, um 10,17%.
Heildarvelta á OMXI6ISK var um 364 m.kr., mest voru viðskipti með bréf í Icelandair fyrir um 229 m.kr. 72% af veltu vikunnar var með bréf í Marel og Icelandair.
Á næstunni birta Marel og Össur uppgjör fyrir 2. ársfjórðung. Marel birtir sitt upgjör 27. júlí og Össur svo daginn eftir.
Talsverður munur var á gengi Össurar í Kauphöllinni í Kaupmannahöfn og hér heima í lok viku, gengið var um það bil 13% hærra hér heima. Síðustu vikur hefur verið nokkur munur, en engin viðskiptavakt er lengur með bréf félagsins á markaðinum hér heima.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 106,00 | -10,17% | -13,82% | -16,54% | -23,19% | -25,35% | -26,39% |
FO-AIR | 106,00 | 0,00% | -0,93% | -3,64% | -5,36% | -8,62% | -9,40% |
FO-ATLA | 171,50 | 0,00% | -12,50% | -16,14% | -19,48% | -21,15% | 20,77% |
ICEAIR | 4,96 | -1,78% | -0,40% | 10,96% | 22,47% | 57,46% | 41,71% |
MARL | 128,00 | 0,00% | 4,49% | 1,19% | 12,78% | 28,00% | 37,04% |
OSSRu | 198,50 | -1,73% | 2,06% | 4,20% | -3,64% | -2,22% | 4,47% |
OMXI6ISK | 977,28 | -1,68% | 1,87% | -0,61% | -0,93% | 4,66% | 5,36% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 25. júlí 2011)
Eftir miklar lækkanir að undanförnu hækkuðu helstu hlutabréfavísitölur í vikunni. Heimsvísitalan MSCI hækkaði um 2,70%, S&P 500 í Bandaríkjunum hækkaði um 2,19%, DAX í Þýskalandi um 1,47% og Nikkei í Japan um 1,58%.
Hækkanirnar komu í kjölfar samkomulags sem leiðtogar evru ríkjanna gerðu með sér um hvernig eigi að taka á skuldavanda Grikklands. Aðgerðirnar fela m.a. í sér að Grikkland hafi aðgang að lánsfé frá Evrópusambandinu, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og einkabönkum fyrir samtals 160 ma. evra.
Auk þess virðast fjárfestar vera ágætlega bjartsýnir á bandarísk hlutabréf sem hafa hækkað um 6,95% frá áramótum. Samkvæmt Bloomberg fréttaveitunni hafa 82% fyrirtækja í S&P 500 vísitölunni, sem hafa birt ársfjórðungsuppgjör frá 11. júlí, birt betra uppgjör en afkomuspár sögðu til um.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1348,69 | 2,70% | 5,74% | -0,65% | 2,88% | 5,36% | 20,69% |
Þýskaland (DAX) | 7326,39 | 1,47% | 5,69% | 0,20% | 3,55% | 5,72% | 18,55% |
Bretland (FTSE) | 5935,02 | 1,56% | 3,85% | -1,68% | -0,01% | 0,29% | 11,38% |
Frakkland (CAC) | 3842,70 | 3,12% | 0,92% | -5,02% | -4,97% | 0,39% | 5,90% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 12681,16 | 1,61% | 6,26% | 1,61% | 5,88% | 9,53% | 21,65% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 2858,83 | 2,47% | 7,76% | 1,17% | 5,13% | 7,76% | 25,97% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1345,02 | 2,19% | 6,04% | 0,73% | 4,17% | 6,95% | 21,98% |
Japan (Nikkei) | 10132,11 | 1,58% | 3,84% | 3,91% | -3,96% | -1,75% | 6,56% |
Samnorræn (VINX) | 97,48 | 1,89% | 3,64% | -8,52% | -8,12% | -8,72% | 6,90% |
Svíþjóð (OMXS30) | 1091,00 | 1,05% | 2,95% | -4,80% | -5,75% | -5,99% | 2,70% |
Noregur (OBX) | 392,43 | 2,31% | 6,74% | -3,72% | 1,54% | -2,01% | 18,38% |
Finnland (OMXH25) | 2286,60 | 0,91% | 0,29% | -13,11% | -14,43% | -13,54% | 2,04% |
Danmörk (OMXC20) | 438,05 | 1,28% | 4,94% | -6,39% | -5,60% | -4,61% | 6,20% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Bloomberg, 25. júlí 2011)
Krónan styrktist lítillega í vikunni. Gengisvísitalan lækkaði um 0,25% og endaði í 221,7849 stigum. Frá áramótum hefur krónan veikst um 6,20% og við teljum líklegt að hún haldi áfram að veikjast út árið.
Helstu breytingar gagnvart einstökum myntum voru þær að krónan styrktist um 2,40% gagnvart svissneskum franka, eftir mikla veikingu vikuna á undan, og styrktist um 1,84% gagnvart Bandaríkjadal. Hins vegar veiktist krónan um 1,75% gagnvart sænsku krónunni og um 1,11% gagnvart norsku krónunni.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 221,78 | -0,25% | 0,97% | 1,76% | 3,83% | 6,61% | 4,05% |
(Gengisvísitala krónunnar, Bloomberg, 25. júlí 2011)
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.