Vikulega birta Íslensk verðbréf samantekt um þróun helstu eignaflokka undanfarna viku. Smelltu hér ef þú vilt skrá þig á listann.
Löng verðtryggð skuldabréf lækkuðu um 1,42% en millilöng verðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,29%. Löng óverðtryggð skuldabréf lækkuðu um 1,71% og millilöng óverðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,27%.
Enn og aftur lækka löng óverðtryggð skuldabréf mest í verði. Frá áramótum hefur t.a.m. RIKB 25 0612 lækkað um 12,77% en HFF 150224 hækkað um 8,57%, sýnir það glöggt hversu ótrúlegur munur er á ávöxtun verðtryggðra og óverðtryggðra skuldabréfa það sem af er ári.
Íbúðalánasjóður hélt útboð föstudaginn 29. júlí og bárust gild tilboð að nafnvirði 8,18 milljarðar króna. Sjóðurinn tók tilboðum í HFF 150434 fyrir 2,01 milljarða króna að nafnvirði á veginni ávöxtunarkröfu 3,24% og í HFF 150644 fyrir 2,55 milljarða króna að nafnvirði á veginni ávöxtunarkröfu 3,32%.
OMXI6ISK vísitalan hækkaði um 0,95%. Össur hækkaði mest allra félaga um 1,76% en félagið skilaði fínu uppgjöri fyrir annan ársfjórðung.
Hagnaður var 10,3 m.USD. Sala í staðbundinni mynt jókst um 10% og nam 105 m.USD sem er metvelta á einum fjórðungi. Framlegðarhlutföll voru í lægri kantinum, sem skýrist meðal annars af flutningi á framleiðslu stuðningsvara til Mexíkó á þessu ári sem mun lækka framleiðslukostnað um 4 m.USD á ári.
EBITDA-framlegð leiðrétt fyrir einskiptisliðum var 20% af veltu sem er í lægri mörkum áætlunar stjórnenda fyrir árið. Fjárhagur Össurar er sem fyrr afar sterkur, eiginfjárhlutfallið er 60% og handbært frá rekstri nam 17,5 m.USD samanborið við 12,5 m.USD á fyrsta ársfjórðungi.
Marel skilaði nokkuð góðu uppgjöri fyrir annan ársfjórðung. Tekjur námu 162 milljónum evra, sem er 19% aukning samanborið við sama tímabil fyrir ári og 5% aukning samanborið við fyrri ársfjórðung. EBITDA nam 20,9 milljónum evra sem er 12,9% af tekjum og rekstrarhagnaður (EBIT) var 15.0 milljónir evra.
Rekstrarhagnaður Marels var 9,2% af veltu í öðrum ársfjórðungi og 10,2% á fyrri hluta árs sem er í samræmi við markmið fyrirtækisins um rekstrarhagnað upp á 10-12% af veltu á árinu. Kostnaður vegna seldra vara hefur hækkað og kemur það skýrt í ljós þegar horft er til brútto hagnaðar. Á fyrsta ársfjórðungi var hagnaðarhlutfallið rúmlega 38% en 35,8% á öðrum ársfjórðungi.
Fjölgun starfsfólks hefur haft áhrif á framlegð en Marel hefur fjölgað starfsfólki að undanförnu. Horfur í rekstri félagsins eru góðar og pantanabókin heldur áfram að styrkjast og virði nýrra pantana er enn á ný umfram afgreiddar pantanir.
Heildarvelta á OMXI6ISK var um 218 milljónir króna, mest voru viðskipti með bréf í Marel fyrir 179 milljónir og var félagið með um 82% af veltu vikunnar.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 106,00 | 0,00% | -13,82% | -16,21% | -22,63% | -25,35% | -26,39% |
FO-AIR | 106,00 | 0,00% | -0,93% | -3,64% | -5,36% | -8,62% | -9,40% |
FO-ATLA | 172,00 | 0,29% | -12,24% | -15,48% | -19,63% | -20,92% | 21,13% |
ICEAIR | 4,95 | -0,20% | -0,20% | 10,74% | 21,32% | 57,14% | 41,43% |
MARL | 127,50 | -0,39% | 4,08% | -1,16% | 8,25% | 27,50% | 40,11% |
OSSRu | 202,00 | 1,76% | 3,59% | 4,12% | -3,81% | -0,49% | 2,80% |
OMXI6ISK | 986,54 | 0,95% | 3,71% | -1,17% | -2,05% | 5,65% | 5,24% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 2. ágúst 2011)
Miklar lækkanir einkenndu erlendan hlutabréfamarkað. S&P 500 lækkaði um 3,76%, DAX í Þýskalandi um 5,32%, Nikkei í Japan um 0,84% og heimshlutabréfavísitalan MSCI lækkaði um 3,23%.
Almennt lækkaði hlutabréfaverð í júlí og til að mynda lækkaði S&P 500 um 2,15%, DAX í Þýskalandi um 2,95% og hlutabréfamarkaðir í Frakklandi lækkuðu um 7,77% í mánuðinum.
Umræður um nauðsyn þess að Bandaríkin hækki skuldaþak ríkisins til að mæta skuldbindingum komandi mánaða og skuldavandræði margra Evrópuríkja hafa verið ofarlega á baugi.
Samkomulag hefur nú náðst um hækkun skuldaþaks bandaríska ríkisins en fjárfestar hafa þó ennþá áhyggjur af hvort alþjóðleg matsfyrirtæki komi til með að lækka lánshæfiseinkunn landsins.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1297,23 | -3,23% | -3,47% | -6,80% | -2,67% | 1,34% | 12,59% |
Þýskaland (DAX) | 6953,98 | -5,32% | 5,69% | -8,13% | -3,73% | 0,02% | 9,91% |
Bretland (FTSE) | 5774,43 | -2,51% | -3,99% | -5,26% | -4,15% | -2,53% | 6,55% |
Frakkland (CAC) | 3588,05 | -5,90% | -10,75% | -12,96% | -12,05% | -6,00% | -4,68% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 12132,49 | -3,66% | -3,58% | -5,27% | 0,75% | 4,79% | 13,66% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 2744,61 | -3,44% | -2,54% | -4,17% | -0,18% | 3,46% | 19,57% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1286,94 | -3,76% | -3,94% | -5,46% | -1,31% | 2,33% | 14,31% |
Japan (Nikkei) | 9965,01 | -0,84% | -0,24% | -1,60% | -5,86% | -3,76% | 2,87% |
Samnorræn (VINX) | 93,10 | -4,23% | -8,15% | -14,87% | -13,42% | -13,79% | -1,70% |
Svíþjóð (OMXS30) | 1039,05 | -4,36% | -8,63% | -12,19% | -9,63% | -11,59% | -4,93% |
Noregur (OBX) | 377,77 | -3,71% | -4,46% | -9,44% | -8,22% | -6,66% | 10,42% |
Finnland (OMXH25) | 2112,92 | -7,01% | -13,93% | -21,75% | -22,33% | -21,09% | -9,62% |
Danmörk (OMXC20) | 418,58 | -3,95% | -6,38% | -12,67% | -11,67% | -10,76% | -2,97% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Bloomberg, 2. ágúst 2011)
Krónan stóð nánast í stað en gengisvísitalan endaði í 221,7715 stigum.
Helstu breytingar gagnvart einstökum myntum voru þær að krónan veiktist um 3,18% gagnvart Svissneskum franka og um 1,77% gagnvart Japönsku jeni. Miklar sveiflur hafa verið á gengi á Svissneska frankans síðustu vikur. Krónan styrktist um 0,65% gagnvart Sænsku krónunni og um 0,46% gagnvart Evru.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 221,77 | -0,01% | 0,71% | 1,64% | 3,83% | 6,60% | 4,76% |
(Gengisvísitala krónunnar, Bloomberg, 2. ágúst 2011)
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.