Vikulega birta Íslensk verðbréf samantekt um þróun helstu eignaflokka undanfarna viku. Smelltu hér ef þú vilt skrá þig á listann.
Löng verðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,15% og millilöng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,27%. Löng óverðtryggð skuldabréf hækkuðu um 1,19% og millilöng óverðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,75%.
Verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hefur lækkað töluvert frá því að SÍ hækkaði stýrivexti um 50 punkta. Það bendir til þess að fjárfestar hafi trú á að stýrivextir fari að virka á verðbólguna. Verðbólgumælingin í maí kom líka vel út þar sem mældist smá verðhjöðnun en flestir reiknuðu með 0,2-0,4% verðlagshækkun.
Olíuverð hefur farið lækkandi og krónan hefur styrkst frá því í mars en hefur reyndar verið að gefa aðeins eftir í seinni hluta maí. Svo má búast við því að flugfargjöld lækki eitthvað í sumar með vaxandi samkeppni. Það eru því nokkrir þættir sem hafa stutt við lækkandi verðbólguálag.
OMXI6ISK vísitalan lækkaði í vikunni um 0,4%. Mest hækkaði Atlantic Petroleum, um rúm 8% í litlum viðskiptum. Bréf Haga lækkuðu mest, um 2,64%.
Heildarvelta á OMXI6ISK var ríflega 461 milljón króna. Mest voru viðskipti með bréf Marels fyrir um 216 milljónir króna. Í maí mánuði var veltan í kringum 4,7 milljarðar króna. Mesta veltan í mánuðinum var með bréf Haga og Marels, í kringum 1,8 milljarða króna hjá hvoru félagi.
Í vikunni skilaða færeyska olíuleitar fyrirtækið Atlantic Petroleum uppgjöri fyrir fyrsta ársfjórðung 2012 og var rekstrarhagnaður 65,3 milljónir DKK og er þetta besti fjórðungur í sögu félagsins.
Hagnaður eftir skatta nam 23,4 milljónum DKK sem er um 58% meira en á sama fjórðungi í fyrra. Hátt olíuverð og góðar framleiðslutölur eru lykillinn að þessum árangri.
Heildarframleiðsla á fjórðungnum nam 232.000 tunnum af olíu sem er 2.550 tunnur að meðaltali á dag. Einnig voru birtar tölur fyrir maí og nam framleiðslan 71.000 tunnum sem er um 2.290 tunnur að meðaltali á dag. Í áætlunum félagsins er gert ráð fyrir að framleiðslan, fyrir árið 2012, verði 7-800.000 tunnur sem svarar til 1.900-2.200 tunnum að meðaltali á dag.
Aðalfundur Haga verður haldin 8. júní og liggur fyrir fundinum tillaga um arðgreiðslu upp á 0,45 kr. á hlut. Ef tillagan verður samþykkt verða greiddar í kringum 530 milljónir króna til hluthafa þann 27. júní.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 75,00 | 0,00% | -2,60% | 7,91% | 0,00% | -7,41% | -39,52% |
FO-ATLA | 165,50 | 8,17% | -1,19% | -13,35% | 2,16% | 8,17% | -17,66% |
HAGA | 18,45 | -2,64% | -1,34% | 5,73% | 0,00% | 12,84% | 15,67% |
ICEAIR | 6,56 | 0,46% | 5,30% | 17,35% | 33,88% | 30,42% | 37,82% |
MARL | 156,00 | -1,27% | -2,50% | 8,33% | 31,65% | 24,30% | 24,30% |
OSSRu | 208,00 | 0,00% | -0,48% | 5,58% | 11,53% | 12,43% | 7,49% |
OMXI6ISK | 1065,59 | -0,40% | -1,16% | 6,25% | 20,20% | 17,14% | 8,00% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 4. júní 2012)
Erlend hlutabréf lækkuðu töluvert í vikunni. Heimsvísitalan MSCI lækkaði um 2,99%, S&P 500 í Bandaríkjunum um 3,02% og Dax í Þýskalandi um 4,57%.
Slæmar hagtölur frá Bandaríkjunum fóru illa í fjárfesta og áttu sinn þátt í lækkunum vikunnar. Atvinnuleysi jókst og fór úr 8,1% í 8,2%. Þá urðu aðeins til 69 þúsund ný störf í síðasta mánuði sem var töluvert undir væntingum en meðalspáin hljóðaði upp á 150 þúsund ný störf. Auk þess reyndist hagvöxtur í Bandaríkjunum á fyrsta ársfjórðungi vera lægri en spár sögðu til um eða 1,9%.
Hlutabréfaverð lækkaði almennt mikið í maí mánuði og lækkuðu allar erlendar viðmiðunarvísitölur sem við styðjumst við. Mest lækkuðu HEX í Finnlandi og Nikkei í Japan um 12,04% og 10,27%.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1152,97 | -2,99% | -8,86% | -11,21% | -2,92% | -2,50% | -12,66% |
Þýskaland (DAX) | 6050,29 | -4,57% | -8,92% | -13,65% | -1,72% | 1,32% | -15,93% |
Bretland (FTSE) | 5260,19 | -1,71% | -6,98% | -11,01% | -5,26% | -5,60% | -10,16% |
Frakkland (CAC) | 2950,47 | -3,20% | -6,81% | -15,84% | -6,90% | -6,74% | -24,26% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 12118,57 | -2,70% | -7,05% | -6,62% | 0,82% | -0,81% | -0,27% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 2747,48 | -3,17% | -7,06% | -7,68% | 4,59% | 5,46% | 0,54% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1278,04 | -3,02% | -6,65% | -6,69% | 2,71% | 1,63% | -1,70% |
Japan (Nikkei) | 8440,25 | -1,63% | -11,56% | -15,15% | -4,03% | -1,89% | -12,61% |
Samnorræn (VINX) | 84,97 | -4,02% | -10,36% | -15,98% | -2,47% | -4,03% | -18,06% |
Svíþjóð (OMXS30) | 956,70 | -2,88% | -8,01% | -14,10% | -2,58% | -3,90% | -16,26% |
Noregur (OBX) | 346,99 | -4,07% | -10,65% | -14,16% | -3,28% | -4,79% | -14,27% |
Finnland (HEX25) | 1785,97 | -5,18% | -12,65% | -21,85% | -10,79% | -9,30% | -28,38% |
Danmörk (KFX) | 419,65 | -5,47% | -10,46% | -8,79% | 8,89% | 6,90% | -8,29% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Bloomberg, 4. júní 2012)
Gengisvísitala krónunnar lækkaði um 0,45% í vikunni og endaði í 223,59 stigum. Krónan veiktist um 1,3% gagnvart bandaríkjadal en styrktist um 0,75% gagnvart evru.
Vöruskipti í apríl voru hagstæð um 9,5 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruskiptin hagstæð um 3,4 ma.kr. í apríl 2011. Á fyrstu fjórum mánuðum 2012 var afgangur af vöruskiptum tæpir 28 ma.kr., en á sama tímabili árið 2011 var afgangurinn 33,8 ma.kr. og fer hann því minnkandi milli ára.
Skýrist þetta einkum af því að í fyrra var um talsverðan útflutning á skipum og flugvélum að ræða á fyrstu fjórum mánuðum ársins, en lítið var um slíkan útflutning á sama tímabili á þessu ári. Að þessum óreglulegu liðum frátöldum fer afgangur af vöruskiptum vaxandi.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 223,59 | -0,45% | -1,99% | -2,36% | 3,55% | 2,90% | 1,29% |
(Gengisvísitala krónunnar, Seðlabankinn, 4. júní 2012)
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.