Vikulega birta Íslensk verðbréf samantekt um þróun helstu eignaflokka undanfarna viku. Smelltu hér ef þú vilt skrá þig á listann.
Löng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 1,17% og millilöng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,57%. Löng óverðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,86% og millilöng óverðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,09%.
Lánamál ríkisins héldu útboð föstudaginn 6. júlí, í boði voru RIKB 14 0314 og RIKB 22 1026. Í RIKB 14 0314 var tilboðum tekið fyrir 1.900 m.kr. að nafnverði á ávöxtunarkröfunni 4,45% og í RIKB 22 1026 var tilboðum tekið fyrir 2.200 m.kr. að nafnverði á ávöxtunarkröfunni 7,06%.
OMXI6ISK vísitalan hækkaði í síðustu viku um 0,94%. Mest hækkaði Marel, um 3,62%. Mesta lækkun var hjá BankNordik, um 6,67%.
Heildarvelta á OMXI6ISK var rúmir 1,2 milljarðar króna. Mest voru viðskipti með bréf Regins fyrir um 581 milljón króna í fyrstu viku félagsins á markaði. Útboðsgengi Regins var 8,2 og í vikulok var gengi félagsins 8,47.
Í síðustu viku birti Icelandair flutningstölur fyrir júní mánuð. Félagið flutti 246 þúsund farþega í millilandaflugi og nam aukningin 15% frá sama mánuði í fyrra. Framboð jókst um 15% á milli ára. Sætanýting nam 82,5% og jókst um 1,7 prósentustig á milli ára.
Stærsti hluthafi Össurar William Demant Invest A/S hefur birt tilboðsyfirlit, en félagið tilkynnti þann 22.maí 2012 um valfrjálst tilboð i hlutabréf Össurar. Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt tilboðsyfirlitið og hefur það verið sent til allra hluthafa í hluthafaskrá Össurar þann 4.júlí 2012.
WDI hefur ekki í hyggju að taka Össur yfir og eru hluthafar ekki hvattir til að selja bréf sín. WDI er ráðandi hluthafi með 39,58% hlut en gerir tilboðið til að tryggja sveigjanleika sinn sem ráðandi hluthafi. Tilboðið á ekki að hafa áhrif á rekstur eða starfsemi félagsins og WDI hefur ekki í hyggju að afskrá Össur.
Tilboðsverð er 202 IKR / 8,2 DKK fyrir hvert hlutabréf í Össuri. Greitt með reiðufé. Tilboðið er í gildi frá 9.júlí og rennur út 7.ágúst 2012.
Gengi bréfa Össurar var í lok viku 209,5 í kauphöllinni hér heima og 8,2 í kauphöllinni í Kaupmannahöfn.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 70,00 | -6,67% | -6,67% | -10,27% | -13,58% | -13,58% | -41,67% |
HAGA | 18,20 | -1,62% | -1,36% | -2,41% | 9,31% | 11,31% | 14,11% |
ICEAIR | 6,83 | 3,33% | 2,48% | 11,34% | 41,30% | 35,69% | 31,76% |
MARL | 157,50 | 3,62% | 1,29% | 7,88% | 23,53% | 25,50% | 21,62% |
Reginn | 8,47 | 0,00% | 0,00% | 0,00% | 0,00% | 0,00% | 0,00% |
OSSRu | 209,50 | -2,56% | -2,10% | 2,95% | 8,55% | 13,24% | 6,35% |
OMXI6ISK | 1066,91 | 0,94% | -0,82% | 3,34% | 15,12% | 17,29% | 7,29% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 9. júlí 2012)
Erlend hlutabréf ýmist hækkuðu eða lækkuðu í síðustu viku. S&P 500 hlutabréfavísitalan í Bandaríkjunum lækkaði um 0,55%, Dax í Þýskalandi um 0,10% og heimsvísitalan MSCI um 0,51%. Nikkei í Japan hækkaði hins vegar um 0,16%, FTSE í Bretlandi um 1,64% og KFX í Danmörku um 3,17%.
Seðlabanki Evrópu lækkaði vexti um 25 punkta í liðinni viku sem var í takt við spár sérfræðinga. Þar með lækkuðu stýrivextir úr 1,00% í 0,75%. Einnig voru lækkaðir vextir Í Danmörku og Kína en Seðlabanki Bretlands ákvað að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í 0,50%.
Atvinnuleysi í Bandaríkjunum mælist nú 8,2% og 80.000 ný störf voru sköpuð í liðnum mánuði. Þessar mikilvægu hagtölur ollu miklum vonbrigðum þar sem markaðsaðilar áttu von á að fleiri störf hefðu orðið til. Fréttirnar höfðu töluverð áhrif á markaði sem lækkuðu í kjölfarið.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1229,37 | -0,51% | 3,41% | -3,97% | 3,09% | 3,96% | -8,47% |
Þýskaland (DAX) | 6410,11 | -0,10% | 4,25% | -5,67% | 6,21% | 8,36% | -13,66% |
Bretland (FTSE) | 5662,63 | 1,64% | 3,72% | -1,51% | 0,45% | 1,17% | -5,89% |
Frakkland (CAC) | 3168,79 | -0,87% | 3,50% | -4,86% | 0,98% | -0,05% | -19,30% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 12772,47 | -0,84% | 1,74% | -1,22% | 3,06% | 4,54% | 0,91% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 2937,33 | 0,08% | 2,76% | -3,60% | 9,74% | 12,75% | 2,71% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1354,68 | -0,55% | 2,19% | -1,99% | 5,78% | 7,72% | 0,81% |
Japan (Nikkei) | 9020,75 | 0,16% | 5,17% | -6,80% | 6,04% | 5,22% | -12,24% |
Samnorræn (VINX) | 92,80 | 1,75% | 5,82% | -3,98% | 2,85% | 5,46% | -7,24% |
Svíþjóð (OMXS30) | 1023,87 | 0,47% | 4,62% | -1,50% | 2,40% | 3,34% | -8,90% |
Noregur (OBX) | 374,99 | -0,15% | 4,64% | -4,26% | 3,44% | 4,31% | -3,21% |
Finnland (HEX25) | 1883,91 | 0,65% | 0,84% | -11,90% | -5,27% | -3,65% | -21,30% |
Danmörk (KFX) | 460,20 | 3,17% | 6,83% | 0,44% | 12,93% | 16,87% | 4,06% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Bloomberg, 9. júlí 2012)
Gengisvísitala krónunnar hækkaði um 0,76% í vikunni og endaði í 220,23 stigum. Krónan veiktist um 1,73% gagnvart Bandaríkjadal og um 0,07% gagnvart evru.
Innstreymi gjaldeyris frá ferðamönnum styður við gengi krónunnar yfir sumarið. Gistinætur á hótelum í maí voru um 139.700 samanborið við 120.500 í maí í fyrra og fjölgaði því um tæp 16% milli ára. Gistinætur á hótelum fyrstu fimm mánuði ársins voru 568.900 en voru 460.600 fyrir sama tímabil árið 2011 og nemur aukningin 23,5%.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 220,23 | 0,76% | -1,27% | -4,18% | 1,16% | 1,36% | -0,03% |
(Gengisvísitala krónunnar, Seðlabankinn, 9. júlí 2012)
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Sveinn Torfi Pálsson, forstöðumaður eignastýringar.