Í gær var haldið árlegt golfmót starfsmanna ÍV þar sem keppa saman vanur/óvanur í texas scramble. Skemmst er frá því að segja að sigurvegarar urðu Björn Gíslason og Ásgeir Ásgeirsson, í öðru sæti lentu Valdimar Pálsson og Sigurvin Sigurjónsson og í þriðja sæti urðu Arne Vagn Olsen og Þorvaldur Þorsteinsson. Lítill munur var á liðunum og mörg skemmtileg tilþrif litu dagsins ljós. Sigurvegurunum er að sjálfsögðu óskað til hamingju með sigurinn.