Íslensk verðbréf hf. auglýsti nýverið eftir lögfræðingi til starfa, í tengslum við aukin umsvif félagsins. Til starfans hefur verið ráðinn Einar Ingimundarson, en hann starfar nú sem aðstoðamaður dómara við Héraðsdóm NE.
Einar er með BA og Mag. Jur próf í lögfræði og einnig BS próf í hagfræði. Hann hefur áður starfað m.a. hjá verðbréfasviði Búnaðarbankans og hjá FME.
Búist er við að Einar hefji störf í byrjun maí.