Þetta er fjórða árið í röð sem Íslensk verðbréf færa nefndinni styrk, þar af hefur styrkurinn numið hálfri milljón króna undanfarin þrjú ár. Styrkurinn kemur í stað jólakorta sem áður voru send viðskiptavinum.
Sævar Helgason, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa, segir
að ákveðið hafi verið að leggja Mæðrastyrksnefnd lið í hennar mikilvæga
verkefni að styðja fjölskyldur á Eyjafjarðarsvæðinu sem standi höllum fæti.
Mæðrastyrksnefndin á Akureyri ásamt Arne Vagn og Sævari Helgasyni frá Íslenskum verðbréfum. |
Fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar hafa þegar lagt nefndinni lið og hvetja Íslensk verðbréf alla sem eru aflögufærir til að gera slíkt hið sama.
Jóna Berta Jónsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar, segist vera afar þakklát fyrir þessa gjöf Íslenskra verðbréfa sem mun nýtast sérstaklega vel nú um jólin.
Í þau rúm 20 ár sem Jóna Berta hefur komið að starfi
Mæðrastyrksnefndar á Akureyri hefur aldrei áður verið jafn mikil þörf fyrir
aðstoð og síðustu tvö ár.
Nefndinni hefur borist svipaður fjöldi beiðna og í fyrra og er ráðgert að styðja upp undir 500 fjölskyldur nú um jólin. Skjólstæðingar nefndarinnar eru á öllu Eyjafjarðarsvæðinu auk Siglufjarðar.
Nefndin var stofnuð árið 1939 og hefur í gegnum tíðina veitt
einstæðum mæðrum, einstæðum feðrum og efnalitlum fjölskyldum aðstoð með
margvíslegum hætti. Um þessi jól fá um 500 fjölskyldur aðstoð og hafa
Íslensk verðbréf ákveðið að leggja góðu málefni lið og styrkja
Mæðrastyrksnefndina um fyrrgreinda upphæð.
Um Íslensk verðbréf
Íslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem hófu starfsemi árið 1987. Starfsmenn eru 24 talsins, höfuðstöðvar þess eru á Akureyri en jafnframt starfrækir félagið skrifstofu að Sigtúni 42 í Reykjavík. Eignir í stýringu nema um 110 milljörðum króna.