Vísitala 5 ára óverðtryggðra bréfa lækkaði um 0,12% í vikunni. Á sama tíma hækkuðu vísitölur 5 og 10 ára verðtryggðra bréfa um 0,71% og 0,56%. Verðtryggð bréf halda því áfram að hækka í verði en þau óverðtryggðu gefa aðeins eftir.
Fjárfestar hallast því enn að verðtryggðum bréfum þrátt fyrir
að krafa þeirra sé orðin ansi lág. Skýringarnar eru nokkrar. Það er enn mikil
óvissa hvernig gengi krónunnar þróast á árinu m.a. vegna Icesave samninganna og
verðtryggð bréf veita ákveðið öryggi.
Ísland er verðbólguland og því eru margir
fjárfestar tregir til að skoða óverðtryggða valkosti sem er m.a. ástæða þess að
ríkið ætlar að gefa út verðtryggðan skuldabréfaflokk í vor en það hefur ríkið
ekki gert í á annan áratug.
Að lokum er ljóst að aðgerðir ríkisins í skattamálum fara að töluverðum hluta í verðlagið og því má búast við verðbólguskoti á næstu mánuðum auk þess sem ríki, sveitarfélög og orkufyrirtæki eiga trúlega eftir að spila út fleiri gjalda- og skattahækkunum eftir því sem líða tekur á árið.
Velta með bréf félaga í OMXI6ISK var aðeins fyrir um 102 milljónir króna í síðustu viku. Eins og oft áður var mest velta með bréf í Össuri, um 79 milljónir. Gengi félagsins lækkaði um 4,2% í vikunni og endaði í 161. Líklegt er að einhverjir fjárfestar hafi verið að taka út hagnað eftir hækkanir á gengi bréfa félagsins á síðustu mánuðum.
Bréf í Færeyja Banka hækkuðu mest í síðustu viku, um 2,7%. Bréf í Bakkavör lækkuðu mest í vikunni, um 30,8%.
Ástæðan fyrir lækkun á gengi Bakkavarar er sú að
félaginu var í síðustu viku veitt heimild til að leita nauðasamninga við
kröfuhafa sína. Í þeim felast m.a. lenging á lánum til 2014 og að hluti lánanna
verði breytt í hlutafé á genginu einum.
Einnig fá Bakkavararbræður (Lýður og
Ágúst) möguleika á að eignast um 25% hlut í félaginu í lok tímabilsins (á
gengingu 1) gangi rekstraáformin eftir. Félagið verður ennfremur afskráð úr
Kauphöllinni á meðan að það er að vinna sig út úr erfiðleikunum.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram | 12 mán |
Bakkavör | 1,35 | -30,77% | -30,77% | 12,50% | -8,78% | -34,15% | -32,50% |
FO-AIR | 141 | 0,00% | 0,00% | -4,08% | -8,44% | 0,00% | -16,07% |
FO-ATLA | 160 | 0,00% | 4,92% | -20,00% | -43,60% | 0,00% | -55,90% |
FO-BANK | 133,5 | 2,69% | 4,30% | -3,61% | 10,79% | 3,09% | 18,14% |
Marel | 62,4 | 0,00% | 0,81% | -7,96% | 23,08% | 0,00% | -4,15% |
Össur | 161 | -4,17% | 6,98% | 28,80% | 40,00% | 4,21% | 66,84% |
OMXI6ISK | 824,11 | -2,26% | 2,77% | 2,65% | 10,25% | 1,12% | -4,38% |
Margir stórir bankar birtu uppgjör
fyrir fjórða ársfjórðung 2009 í vikunni.
Má þar nefna Citigroup, Bank of America og Goldman Sachs. Tap Citigroup nam 7,6 milljörðum dala á
fjórðungnum en bankinn endurgreiddi að hluta bandaríska ríkinu opinbera aðstoð
sem hann fékk í upphafi síðasta árs.
Tap fyrir árið í heild nam 1,6 milljarði dala. Bank of America tapaði 194 milljónum dala á fjórðungnum en hagnaður ársins var 6,3 milljarðar dala. Goldman Sachs skilaði hagnaði upp á tæplega 4,8 milljarði dala á fjórðungnum og nam hagnaður ársins 12,2 milljörðum dala.
Þrátt fyrir að mörg uppgjör í
vikunni hafi verið í takt við eða betri en greiningaraðilar höfðu spáð fyrir um
var mikil lækkun á helstu hlutabréfavísitölum heims. Ástæðan er fyrst og fremst sú að Barack Obama,
forseti Bandaríkjanna, setti fram tillögur sem ganga út á það að takmarka
starfsemi stærstu banka Bandaríkjanna.
Lagði hann meðal annars til að skorður verði settar á stærð og umfang banka til að koma í veg fyrir að þeir geti orðið of stórir og til að takmarka fjárhagslega áhættu tengda þeim.
Ekki voru það þó eingöngu fréttir
frá Bandaríkjunum sem ýttu undir lækkun hlutabréfaverðs. Einnig bárust fréttir af því að ýmis merki
séu um ofþenslu í kínversku hagkerfi eftir mikinn hagvöxt undanfarin ár.
Eiga fjárfestar nú von á því að kínversk
stjórnvöld muni kæla hagkerfið niður og að leiðrétting á hlutabréfaverði muni
eiga sér stað. Þannig lækkaði Nikkei
hlutabréfavísitala Japans um 3,6% í síðustu viku og Hang Seng vísitalan í Kína
lækkaði um 4,3%.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1166,93 | -3,81% | -1,90% | -0,31% | 11,91% | -1,59% | 39,32% |
Þýskaland (DAX) | 5695,32 | -3,07% | -5,06% | -1,47% | 8,15% | -5,06% | 35,34% |
Bretland (FTSE) | 5302,99 | -2,75% | -1,84% | 1,15% | 15,87% | -2,03% | 30,86% |
Frakkland (CAC) | 3820,78 | -3,38% | -2,68% | -0,01% | 13,11% | -3,26% | 33,65% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 10172,98 | -4,09% | -3,30% | 2,01% | 11,87% | -2,45% | 25,94% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 1794,82 | -3,74% | -4,01% | 2,35% | 12,24% | -3,52% | 52,64% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1091,76 | -3,88% | -3,08% | 1,13% | 11,49% | -2,09% | 31,23% |
Japan (Nikkei) | 10590,55 | -3,57% | 0,17% | 2,23% | 5,71% | -0,32% | 35,73% |
Samnorræn (VINX) | 80,65421 | -2,76% | 2,04% | 4,56% | 17,20% | 1,13% | 52,81% |
Svíþjóð (OMXS30) | 951,0617 | -2,02% | -1,12% | 1,98% | 9,16% | -0,10% | 57,37% |
Noregur (OBX) | 325,3176 | -5,79% | -3,98% | 5,08% | 21,60% | -3,96% | 64,81% |
Finnland (OMXH25) | 2035,317 | -1,10% | 2,29% | 6,15% | 18,32% | 0,69% | 46,79% |
Danmörk (OMXC20) | 346,8741 | -3,45% | 4,43% | 3,23% | 14,46% | 3,93% | 41,38% |
Stöðugleiki krónunnar heldur áfram, en gengisvísitala krónunnar hækkaði um 0,15% í vikunni skv. opinberu viðmiðunargengi SÍ og veiktist því krónan sem því nam. Gengisvísitalan endaði í 234,46 stigum.
Viðskipti á gjaldeyrismarkaðinum eru mjög lítil, einungis um 3 milljónir evra frá áramótum. Viðskiptin fara því að mestu fram innnan hverrar bankastofnunar, en slíkt verður að teljast óheppilegt þar sem það skekkir verðmyndum og sýnileikinn er enginn.Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram | 12 mán |
GVT ISK | 234,4578 | 0,15% | -0,17% | -0,79% | 1,35% | 0,71% | 14,14% |
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum
Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo
á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni
sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar
upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við
opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum
tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna,
áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.