Óverðtryggð bréf lækkuðu um 0,93% í vikunni og verðtryggð bréf hækkuðu um 1,37%. Þessi hreyfing var bein afleiðing þess að forseti Íslands skrifaði ekki undir icesave lögin. Fjárfestar reiknuðu með að krónan myndi veikjast, og þar með myndi verðbólgan verða meiri og langvinnari en reiknað var með, og fóru því úr óverðtryggðum bréfum og yfir í verðtryggð bréf.
Það sem vann enn frekar gegn óverðtryggðu bréfunum var að ef lokað yrði fyrir erlenda lántöku ríkisins myndi það trúlega þurfa að gefa út meira af skuldabréfum á innanlandsmarkaði og fram að þessu hefur ríkið eingöngu fjármagnað sig með óverðtryggðum bréfum.
Eftir lokun markaða á föstudaginn birti Lánasýslan
útgáfuáætlun í lánamálum ríkisins fyrir árið 2010. Þar komu fram athyglisverðar
upplýsingar sem hafa án efa mikil áhrif á skuldabréfamarkaðinn á næstu vikum.
Tvennt var það sem kom mest á óvart. Í fyrsta lagi ætlar ríkið að gefa út nýjan
10 ára verðtryggðan flokk og reiknar með að flokkurinn verði kominn í 50
milljarða í lok árs. Þetta hefur í för með sér verulegt aukið framboð af
verðtryggðum bréfum á árinu.
Það seinna sem vakti sérstaka athygli var að ríkið
ætlar að gefa út um 120 milljarða af ríkisbréfum en á gjaldaga eru um 130
milljarðar. Það verður því nettó samdráttur í þesum bréfum.
Við reiknum með að
áhrif þessa sjáist strax í vikunni þar sem verðtryggð bréf koma til með að
lækka í verði á meðan að óverðtryggð ættu að hækka eitthvað.
Heldur rólegt var á innlenda hlutabréfamarkaðinum í
fyrstu vikunni á nýjum áratug, velta með bréf félaga í OMXI6ISK var aðeins
fyrir um 80 milljónir króna og þar af voru viðskipti með bréf í Össuri um 74,6
milljónir króna.
Össur hækkaði mest félaga í OMXI6ISK í síðustu viku,
um 1,62%.
Færeyska félagið Eik Banki hækkaði um 10% í síðustu
viku og endaði gengi félagsins í 88. Century Aluminum hækkaði í síðustu viku um 3,23% og lokagengi var
1.980. Hækkun þessara félaga sem eru
ekki skráð í OMXI6ISK vísitöluna myndaðist í mjög fáum viðskiptum og í lítilli
veltu með bréfin.
Opnunartími í Kauphöllinni færðist fram til kl. 9:30
frá og með 4. janúar og lokar nú kl. 15:30.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram | 12 mán |
Bakkavör | 2 | 0,00% | 17,65% | 37,93% | 68,07% | 0,00% | -6,98% |
FO-ATLA | 160 | 0,00% | -3,61% | -54,93% | -48,94% | 0,00% | -64,33% |
FO-BANK | 129 | -0,39% | -2,27% | -7,19% | 7,05% | -0,38% | 7,50% |
FO-AIR | 141 | 0,00% | -4,08% | -4,08% | -11,32% | -0,71% | -18,97% |
Marel | 61,3 | -1,76% | -0,81% | -6,98% | 11,,45% | -1,28% | -22,70% |
Össur | 157 | 1,62% | 15,44% | 28,16% | 36,52% | 1,95% | 63,03% |
OMXI6ISK | 819,03 | 0,50% | 4,04% | 2,09% | 8,74% | 0,50% | -12,52% |
Nýlega greindi breska dagblaðið The Guardian frá því
að Ísland væri eitt þeirra fimm landa sem fór verst í heimskreppunni. Löndin sem voru nefnd ásamt Íslandi voru
Grikkland, Írland, Dubai og Spánn. Öll
þessi lönd hafa verið í umræðunni undanfarið vegna ýmissa vandamála.
Atvinnuleysi hefur verið mikið vandamál á Spáni og
fjölgaði atvinnulausum þar um 25,4% á síðasta ári og mælist nú 19,3%. Mikill fjárhagslegur vandi er einnig til
staðar í Grikklandi, Írlandi og Dubai.
Miklu fjármagni var dælt í helstu hagkerfi heimsins á
síðasta ári og mikil hlutabréfahækkun átti sér stað í löndum eins og Brasilíu, Rússlandi,
Indlandi og Kína eða svokölluðum BRIK löndum. Á árinu 2009 hækkaði hlutabréfaverð í Rússlandi um 111,6%, í Brasilíu um
82,7%, á Indlandi um 81% og um 79,2% í Kína.
Margt bendir til þess að árið 2010 verði einnig gott ár fyrir BRIK löndin á hlutabréfamarkaði. Spáð er að heimsframleiðsla muni aukast og að hún verði m.a. drifin áfram af löndum eins og Kína og Indlandi.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram | 12 mán |
DAX | 6037,61 | 1,35% | 5,69% | 6,51% | 32,94% | 2,12% | 27,17% |
FTSE | 5534,24 | 2,25% | 6,21% | 8,26% | 35,40% | 3,24% | 25,62% |
CAC | 4045,14 | 2,76% | 7,30% | 7,41% | 36,82% | 3,68% | 23,70% |
Dow Jones | 10618,19 | 1,91% | 1,40% | 7,64% | 30,34% | 1,82% | 23,48% |
Nasdaq | 1892,59 | 1,74% | 5,61% | 9,54% | 33,30% | 1,74% | 54,75% |
S&P 500 | 1144,98 | 2,74% | 3,49% | 6,86% | 30,24% | 2,68% | 28,60% |
Nikkei | 10681,66 | 2,39% | 6,83% | 7,81% | 16,27% | 2,39% | 22,20% |
OMXS30 | 973,4423 | 2,28% | 3,48% | 9,24% | 26,97% | 3,27% | 43,31% |
OBX | 349,4364 | 2,98% | 7,15% | 15,69% | 50,98% | 4,47% | 68,50% |
OMXH25 | 2108,109 | 3,72% | 8,31% | 10,29% | 39,41% | 4,46% | 34,57% |
OMXC20 | 353,2317 | 4,91% | 8,47% | 8,34% | 28,69% | 6,96% | 32,46% |
Krónan veiktist
lítilega í síðustu viku og hækkaði gengisvísitalan um 0,67% skv. opinberu viðmiðunargengi
SÍ og endaði í 234,37 stigum.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram | 12 mán |
GVT ISK | 234,3709 | 0,67% | -1,72% | -1,20% | 0,82% | 0,05% | 7,01% |
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum
Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo
á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni
sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar
upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við
opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum
tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna,
áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.