Óverðtryggð bréf hækkuðu um 0,86% í vikunni og verðtryggð bréf hækkuðu um 0,68%. Verðtryggð bréf halda því áfram að hækka og ljóst að það er töluverður verðbólguótti á meðal fjárfesta. Óverðtryggðu bréfin komu líka aðeins til baka eftir töluverða lækkun í vikunni á undan.
Þróun Icesave málsins mun hafa sterk áhrif á
skuldabréfamarkaðinn næstu vikurnar. Eftir því sem lausn þess máls dregst á
langinn mun eftirspurn í verðtryggð bréf verða meiri en í óverðtryggð.
Krónan
hefur ekki hreyfst mikið frá áramótum en eftir því sem gengur á núverandi
gjaldeyrisforða Seðlabankans mun trú á krónunni minnka og jafnframt geta
Seðlabankans til að styðja við hana. Forsenda stöðugs gengis er tryggt aðgengi
ríkisins að erlendu fjármagni.
Enn er frekar rólegt á hlutabréfamarkaðinum þó að
veltan hafi farið úr 80 milljónum í yfir 300 milljónir á milli vikna.
Ánægjulegt hefur verið að fylgjast með hækkunum Össurar í vikunni.
Að einhverju
leiti má rekja hækkunina til fréttar af sölusamningi sem félagið gerði undir
lok síðasta árs sem ýtti undir væntingar markaðarins um að tekjur verði umfram
áætlanir. Þetta ásamt greiningu SEB sem við höfum áður greint frá hefur styrkt trú
markaðarins á félaginu.
Athyglisvert var að hækkunin kom fyrst fram í kauphöllinni í Kaupmannahöfn en svo fylgdi sú íslenska á eftir. Fór gengi félagsins hæst í 170 en endaði vikuna í 168 sem gerir 7% hækkun í vikunni. Síðastliðna 12 mánuði hefur Össur hækkað um rúm 72%.
Mesta veltan var með bréf Össurar 225 milljónir og
Marel 80 milljónir af um 311 milljóna heildarveltu félaga í OMXI6ISK
vísitölunni. Utan vísitölunnar var um 22 milljóna velta með bréf Century
Aluminum.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram | 12 mán |
Bakkavör | 1,95 | -2,50% | 0,00% | 50,00% | 38,30% | -2,50% | 1,04% |
FO-AIR | 141 | 0,00% | 0,00% | -4,08% | -11,32% | 0,00% | -16,07% |
FO-ATLA | 160 | 0,00% | -3,61% | -20,00% | -46,11% | 0,00% | -59,17% |
FO-BANK | 130 | 0,78% | 1,56% | -7,14% | 7,00% | 0,39% | 15,04% |
Marel | 62,4 | 1,79% | -1,73% | -5,74% | 15,34% | 0,00% | -11,61% |
Össur | 168 | 7,01% | 11,26% | 34,94% | 48,02% | 8,74% | 72,48% |
OMXI6ISK | 843,15 | 2,95% | 3,28% | 4,53% | 11,68% | 3,46% | -5,75% |
Efnahagslíf heimsins er að ná sér á strik, það er mat helstu seðlabankastjóra heimsins sem telja að efnahagslífið sé að komast aftur í samt lag eftir gríðarlega erfiðleika síðustu tveggja ára. Eru það einkum svonefnd nýhagkerfi, svo sem Kína, sem hafa dregið vagninn.
Afkoma Alcoa, móðurfélags Fjarðaráls, fyrir fjórða ársfjórðung síðasta árs olli miklum vonbrigðum enda langt undir væntingum fjárfesta. Alls tapaði Alcoa 277 milljónum dollara eða tæplega 35 milljörðum kr. Þessi tíðindi höfðu slæm áhrif á Alcoa og lækkuðu bréf félagsins um 5,4%
Mikill
samdráttur er hjá Boeing bandarísku flugvélasmiðjunni. Boeing hefur tilkynnt að
pantanir á nýjum flugvélum hafi dregist saman um 60% á liðnu ári miðað við árið
á undan. Ástæðan fyrir því er heimskreppan og minni eftirspurn eftir flugferðum
og miklum erfiðleikum í flugrekstri.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram | 12 mán |
DAX | 5875,97 | -2,68% | 1,10% | 2,65% | 18,42% | -1,04% | 35,02% |
FTSE | 5455,37 | -1,42% | 5,21% | 5,35% | 24,59% | 1,01% | 31,85% |
CAC | 3954,38 | -2,24% | 4,44% | 3,53% | 23,13% | 0,67% | 31,36% |
Dow Jones | 10609,65 | -0,05% | 2,72% | 6,14% | 21,34% | 1,74% | 28,12% |
Nasdaq | 1864,52 | -1,48% | 3,16% | 7,20% | 22,08% | 0,23% | 55,62% |
S&P 500 | 1136,03 | -0,77% | 3,04% | 4,45% | 20,81% | 1,88% | 33,63% |
Nikkei | 10982,1 | 1,70% | 7,03% | 5,83% | 15,54% | 2,93% | 31,89% |
OMXS30 | 970,6463 | -0,29% | 3,53% | 4,46% | 15,08% | 1,83% | 54,15% |
OBX | 345,3018 | -1,18% | 3,66% | 11,08% | 35,45% | 1,45% | 68,22% |
OMXH25 | 2057,95 | -2,38% | 6,10% | 7,05% | 28,29% | 1,70% | 40,90% |
OMXC20 | 359,2736 | 1,71% | 7,71% | 6,08% | 22,92% | 6,94% | 38,85% |
Krónan styrktist
lítillega í síðustu viku og lækkaði gengisvísitalan um 0,11% skv. opinberu
viðmiðunargengi SÍ og endaði í 234,11 stigum. Á innlendum millibankamarkaði eru
viðskipti með krónur og evrur. Krónan styrktist í vikunni um 0,31% á móti evru
og hefur verið óbreytt frá áramótum.
Nær engar sveiflur hafa verið á gengi krónunnar frá
áramótum, en síðustu vikur fyrir áramót styrkist hún nokkuð. Þessi stöðugleiki
vekur nokkra athygli, sér í lagi í ljósi ákvörðunar forseta Íslands að staðfesta
ekki hin umdeildu Icesave lög.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram | 12 mán |
GVT ISK | 234,107 | -0,11% | -1,83% | -1,26% | 0,85% | 0,16% | 6,91% |
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum
Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo
á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni
sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar
upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við
opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum
tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna,
áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.