Í gær héldu Íslensk verðbréf morgunfund á Hilton Reykjavík Nordica.
Í gær héldu Íslensk verðbréf morgunfund á Hilton Reykjavík Nordica. Til umfjöllunar var 3,5% ávöxtunarviðmið lífeyrissjóða og framsögumenn voru þrír:
- Bjarni Guðmundsson, tryggingastærðfræðingur, hélt erindi undir heitinu "Áhrif ávöxtunarviðmiðs á lífeyrisgreiðslur"
- Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands og nefndarmaður í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands flutti erindi undir heitinu "Samband hagvaxtar og ávöxtunar lífeyrissjóða"
- Gylfi Magnússon, dósent í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands flutti erindi undir heitinu "Áhrif ávöxtunarviðmiðs lífeyrissjóða á íslenska fjármálakerfið".
Óhætt er að segja að fundurinn hafi verið fróðlegur og vel sóttur og gestir ánægðir með erindin. Hér að neðan má finna glærur framsögumanna:
Áhrif ávöxtunarviðmiðs á lífeyrisgreiðslur (pdf)
Samband hagvaxtar og ávöxtunar lífeyrissjóða (pdf)
Áhrif ávöxtunarviðmiðs lífeyrissjóða á íslenska fjármálakerfið (pdf)