Fyrirhugaðri ráðgjöf Íslenskra verðbréfa hf. sem vera átti á Ísafirði í dag frestast fram til morgundagsins.
Ástæðan er niðurfelling flugs Flugfélags Íslands frá Akureyri nú í morgun sem gerir það að verkum að flug vestur næst ekki.
Starfsmenn ÍV verða því á Ísafirði á morgun í staðinn, og er áhugasömum bent á að hafa samband í síma 460 4700 eða senda póst á netfangið iv@iv.is til að panta tíma. Einnig er hægt að mæta án tímapöntunar.
Við biðjumst velvirðingar á breytingunni og vonum að hún hafi ekki valdið óþægindum.
Starfsfólk Íslenskra verðbréfa hf.