Ákvörðunin byggir á tilmælum Fjármálaeftirlitsins um sjóði sem eiga eignir er ekki er hægt að eiga viðskipti með.
Í stuttu máli verður ferlið með þeim hætti að þann 12. janúar 2009 verður laust fé sjóðsins (um 10%) greitt til hlutdeildarhafa.
Í framhaldinu verður greitt til hlutdeildarhafa á þriggja mánaða fresti andvirði þess sem hefur verið innheimt af eignum sjóðsins næstu þrjá mánuði á undan.
Aðilar í eignastýringu hjá Íslenskum verðbréfum fá greiðslur sjálfkrafa inn á eignasafn sitt en aðrir þurfa að koma upplýsingum um reikningsnúmer til Íslenskra verðbréfa í síðasta lagi 9. janúar 2009.
Upplýsingum má koma á framfæri með tölvupósti á iv@iv.is eða með því að hafa samband við skrifstofu ÍV í síma 460 4700.
Í þeim tilfellum þar sem ekki eru fyrirliggjandi upplýsingar um reikningsnúmer þann 12. janúar 2009 verður reikningur stofnaður í nafni viðkomandi hjá BYR sparisjóði og andvirði lagt inn þar.