Tveir starfsmenn hafa látið af störfum hjá Íslenskum verðbréfum í júlí. Annars vegar er um að ræða Hafstein Lúðvíksson sem starfað hefur á bókhalds- og bakvinnslusviði undanfarin 10 ár en hann hverfur nú til annarra starfa. Hins vegar er um að ræða Sigurvin Sigurjónsson sem starfað hefur í miðlun undanfarin tvö ár, en hann heldur nú af landi brott til frekari náms.
Um leið og þeim eru þökkuð farsæl störf á þágu félagsins óskum við þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi.