Íslensk verðbréf og Blakdeild KA hafa undirritað styrktarsamning til næstu þriggja ára.Íslensk verðbréf og Blakdeild KA hafa undirritað styrktarsamning til næstu þriggja ára.
Á síðasta ári urðu KA deildar-, Íslands- og bikarmeistarar i fyrsta skipti í sögu félagsins, en karlaliðið hafði þá ekki unnið titil frá árinu 1994.
Styrktarsamningurinn er einn margra sem Íslensk verðbréf hafa gert á undanförnum árum til stuðnings íþróttaiðkunar.
Nú þegar er félagið með styrktarsamning við meistaraflokk Þórs/KA í kvennaknattspyrnu auk þess að vera einn aðalstyrktaraðilar bæði Þórs og KA í knattspyrnu barna og unglinga.
Blaklið KA veturinn 2010 til 2011