Sævar Helgason, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa, segir að í ár sendi Íslensk verðbréf ekki út jólakort, en þess í stað hafi verið ákveðið að leggja Mæðrastyrksnefnd lið í hennar mikilvæga verkefni að styðja fjölskyldur á Eyjafjarðarsvæðinu sem standi höllum fæti.
Jóna Berta Jónsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar, segist vera afar þakklát fyrir þessa höfðinglegu gjöf Íslenskra verðbréfa og að þessir fjármunir muni koma í góðar þarfir.
Í þau 20 ár sem Jóna Berta hefur komið að starfi Mæðrastyrksnefndar á Akureyri hefur aldrei áður verið jafn mikil þörf fyrir aðstoð.
Í dag, 19. desember, höfðu nefndinni borist yfir 500 beiðnir um aðstoð fyrir þessi jól, en til samanburðar fékk Mæðrastyrksnefnd um 280 beiðnir um aðstoð fyrir síðustu jól og 300 beiðnir fyrir jólin 2006. Skjólstæðingar nefndarinnar eru á öllu Eyjafjarðarsvæðinu auk Siglufjarðar.
Fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar hafa þegar lagt nefndinni lið og hvetja Íslensk verðbréf alla sem eru aflögufærir til að gera slíkt hið sama. Nefndin er til húsa í Íþróttahöllinni á Akureyri í Þórunnarstræti og símanúmer hennar er 462 4617.
Til fróðleiks má geta þess að þetta er annað árið í röð sem Íslensk verðbréf styrkja Mæðrastyrksnefndina á Akureyri. Í fyrra nam styrktarupphæðin kr. 150.000