Í tilkynningu segir að T Plús bjóði upp á fjölmarga þjónustuþætti,
allt frá varðveislu verðbréfa fyrir einstaklinga, fyrirtæki og
fagfjárfesta upp í daglegan rekstur verðbréfakerfa fyrir fyrirtæki með
stærri verðbréfaumsvif svo sem banka og verðbréfafyrirtæki.
Starfsfólk T Plús hefur margra ára starfsreynslu á sviði bakvinnslu, uppgjörsvinnu og vörslu verðbréfa. Fyrirtækið er staðsett á Akureyri en mun þjónusta landið allt, enda fara flest viðskipti fram með rafrænum hætti. T Plús mun auka atvinnumöguleika á Norðurlandi og fyrst um sinn munu sjö starfsmenn vinna hjá fyrirtækinu.
Katrín Ýr Pétursdóttir hefur
verið ráðin framkvæmdastjóri T Plús. Katrín var áður framkvæmdastjóri
Uppgjörssviðs Saga Fjárfestingarbanka og þar áður deildarstjóri hjá
Arion verðbréfavörslu og Kaupþingi.
Katrín segir að T Plús hafi
markað sér þá stefnu að veita bestu þjónustu sem völ er á fyrir
sanngjarnt verð.
,,Fyrirtækið leggur gríðarmikla áherslu á að vernda hagsmuni viðskiptavina sinna og koma í veg fyrir hagsmunaárekstra á milli viðskiptavina fyrirtækisins innbyrðis og eins á milli fyrirtækisins sjálfs og viðskiptavina þess," segir Katrín Ýr Pétursdóttir, framkvæmdastjóri T Plús.