Vísitala 5 ára óverðtryggðra bréfa hækkaði um 0,53% í vikunni. Á sama tíma lækkuðu vísitölur 5 og 10 ára verðtryggðra bréfa um 0,58% og 0,55%.
Óverðtryggð bréf halda því áfram að
hækka í verði á sama tíma og verðtryggð bréf lækka í verði. Þessi þróun bendir
til þess að verðbólguvæntingar fjárfesta fari hratt niður á við.
Það sem ýtti
þessari þróun af stað var verðhjöðnun í janúarmælingunni. Það sem hefur svo
stutt við hana er að nú virðast vera auknar líkur á að Icesave málið leysist á
farsælli hátt en útlit var fyrir í byrjun árs. Farsæl lausn Icesave málsins er
síðan forsenda þess að stýrivextir verði lækkaðir verulega.
Viðskipti í síðustu viku á OMXI6ISK námu
um 454 milljónum króna, sem fyrr eru það Össur og Marel sem eru veltumestu
félögin á markaðnum með um 99% af veltunni í síðustu viku.
Í janúar var velta með hlutabréf í kringum 3,5 milljarðar króna en þar af voru ein viðskipti með Færeyjabanka upp á 2,6 milljarða. Ef þeim viðskiptum er sleppt er meðalvelta á dag á hlutabréfamarkaðnum undir 50 milljónum króna.
Mest hækkuðu bréf Bakkavarar í síðustu viku eða um 20% í aðeins tveim viðskiptum. Mest lækkuðu hlutabréf Marels, um 3,81% og bréf Össurar um 0,62%. Bæði félögin skiluðu uppgjöri í síðustu viku fyrir árið 2009.
Uppgjörið hjá Össur var nokkuð gott og yfir spá greiningaraðila, hins vegar var uppgjör Marels slakara en við hafði verið búist og lækkaði gengi félagsins í kjölfarið.
Töluverðar sveiflur urðu á gengi
Össurar við birtingu uppgjörsins. Í kauphöllinni hér heima stóð gengið í
upphafi síðustu viku í 160 en endaði vikuna í 159, eftir að hafa farið hæst upp
í 167. Síðustu 12 mánuði hefur gengi Össurar hækkað um ríflega 63%.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Bakkavör | 1,5 | 20,00% | -25,00% | 30,43% | 3,45% | -25,00% | -25,37% |
FO-AIR | 136 | 0,00% | 0,00% | 0,71% | -9,62% | 0,00% | -14,55% |
FO-ATLA | 160 | 0,00% | 0,00% | -10,86% | -43,60% | 0,00% | -56,69% |
FO-BANK | 141,5 | 7,20% | 1,93% | -3,65% | 9,54% | 1,93% | 13,30% |
Marel | 58 | -3,81% | -5,69% | -14,58% | 11,32% | -7,05% | -4,29% |
Össur | 159 | -0,62% | 1,92% | 15,22% | 41,59% | 2,91% | 63,41% |
OMXI6ISK | 814,81 | 1,02% | -0,03% | -0,22% | 9,65% | -0,02% | -12,13% |
Í síðustu viku héldu erlend hlutabréf áfram að lækka á Wall Street, á Asíumörkuðum og í helstu kauphöllum Evrópu. Ríkir nú aukinn ótti meðal fjárfesta vegna mikils fjárlagahalla í löndum eins og Grikklandi, Spáni og Portúgal.
Frá Bandaríkjunum bárust meðal
annars þær fréttir að atvinnuleysi reyndist vera 9,7% í janúar en var 10% í
desember. Markaðnum hefur verið ýtt áfram með opinberum aðgerðum og óttast
margir að nú fari að hægja á þegar innspýtingin fer að minnka.
Frá áramótum hafa helstu vísitölur í Bandaríkjunum lækkað um 4-6% sem er mun minni lækkun en á helstu vísitölum í Evrópu.
Danska hlutabréfavísitalan OMXC20
lækkaði um eitt prósent í síðustu viku en atvinnuleysi hefur farið ört vaxandi
í Danmörku. Frá áramótum hefur danski markaðurinn hins vegar staðið sig vel og
hækkað um rúm 4%.
Á sama tíma lækkaði
norska hlutabréfavísitalan OBX um rúm þrjú prósent og hefur þá lækkað um rúm 6%
frá áramótum. Í Noregi hafa menn áhyggjur af fasteignamarkaðinum og óttast að
þar sé að myndast fasteignabóla sem komi til með að springa eins og aðrar
slíkar bólur.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1106 | -2,11% | -8,58% | -3,24% | 3,04% | -6,25% | 25,81% |
Þýskaland (DAX) | 5434 | -3,11% | -9,13% | -0,03% | 0,50% | -7,91% | 18,12% |
Bretland (FTSE) | 5061 | -2,33% | -7,76% | -0,74% | 7,89% | -5,69% | 18,94% |
Frakkland (CAC) | 3564 | -4,70% | -10,94% | -2,82% | 2,31% | -8,48% | 15,37% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 10012 | -0,49% | -5,71% | -0,11% | 6,85% | -3,99% | 20,91% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 1746 | 0,31% | -7,74% | 0,89% | 7,82% | -6,14% | 36,68% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1066 | -0,68% | -6,88% | -0,29% | 5,51% | -4,39% | 22,75% |
Japan (Nikkei) | 10057 | -1,38% | -7,84% | 1,66% | -4,42% | -5,64% | 23,22% |
Samnorræn (VINX) | 80 | -2,06% | -2,89% | 6,04% | 10,72% | 0,85% | 38,37% |
Svíþjóð (OMXS30) | 936 | -1,72% | -3,52% | -0,25% | 5,26% | -1,32% | 40,06% |
Noregur (OBX) | 319 | -3,34% | -8,13% | 6,10% | 17,07% | -5,40% | 53,57% |
Finnland (OMXH25) | 2002 | -2,69% | -4,40% | 6,98% | 11,07% | -0,85% | 32,11% |
Danmörk (OMXC20) | 351 | -1,16% | -0,87% | 6,57% | 8,41% | 4,00% | 29,35% |
Krónan styrktist í síðustu viku og lækkaði gengisvísitalan um 0,86% skv. opinberu viðmiðunargengi SÍ og endaði í 231,27 stigum.
Óvissa um þróun mála í Evrópu vegna
slæmrar stöðu einstakra ríkja á borð við Grikkland, Portúgal og Írland hefur
grafið undan evrunni. Frá áramótum hefur verðgildi evru gagnvart krónu lækkað
um 2%, en á sama tíma hefur dollar styrkst um 3% gagnvart krónu.
Gengisvísitalan hefur hins vegar aðeins lækkað um 0,67% frá áramótum.
Líklegt er að evran haldi áfram að
gefa eftir gagnvart helstu gjaldmiðlum. Krónan ætti einnig að geta styrkst gagnvart
evrunni, samfara áframhaldandi myndarlegum afgangi af vöru- og
þjónustuviðskiptum við útlönd.
Einnig virðist sem svo að Icesave málið sé að
þróast í hagstæða átt, en neikvæð áhrif á íslenskt hagkerfi hafa verði mun
minni en margir óttuðust.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 231,27 | -0,86% | -0,79% | -2,99% | -0,50% | -0,66% | 21,04% |
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum
Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo
á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni
sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar
upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við
opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum
tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna,
áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.