Í liðinni viku hækkuðu verðtryggð skuldabréf um 0,45% og óverðtryggð skuldabréf um 0,46%. Löng óverðtryggð bréf hafa hækkað mjög mikið í verði og er ávöxtunarkrafa á bréfum á gjalddaga 2019 og 2025 komin undir 7%, sem er mjög lágt. Stuttu bréfin endurspegla að töluverði leyti væntingar til vaxtaþróunar næstu misserin.
Varðandi verðtryggðu bréfin þá er krafan á þeim um 15 punktum (0,15%) ofan við þau 3,5% sem almennt er talið vera gólf í ávöxtunarkröfu á verðtryggðum ríkistryggðum bréfum. Þó er krafa á stysta bréfinu, HFF14 um 3,1%, en það endurspeglar líkast til að væntingar um verðbólgu eru meiri til styttri en lengri tíma.
OMXI6ISK vísitalan hækkaði um 0,26% í síðustu viku, heildarvelta félaganna sex var 137 milljónir. Mest velta, um 80 milljónir, var með BankNordik (áður Færeyjabanki) sem nú hefur fengið auðkennið BNORDIK í kauphöll. Það sem eftir stendur af veltunni skiptist nokkuð jafnt niður á íslensku félögin þrjú Icelandair, Marel og Össur.
Eina félagið sem hækkaði í vikunni var Össur um rúm 1% en mesta lækkun var á bréfum Icelandair um tæp 9%. Töluverð röskun hefur verið á áætlunarflugi Icelandair með tilheyrandi kostnaði og ríkir nokkur óvissa um áhrif eldsumbrotanna í Eyjafjallajökli á ferðamannaiðnaðinn í heild sinni. Framvinda eldsumbrotanna næstu vikurnar getur haft úrslitaáhrif á ferðamannasumarið 2010.
Nú fara uppgjör 1. ársfjórðungs að birtast og verður spennandi að sjá hvernig félögunum hefur gengið í því rekstrarumhverfi sem þau nú búa við. Marel verður með kynningarfund fimmtudaginn 29. apríl.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 160 | 0,00% | -23,00% | 19,85% | 15,52% | 23,55% | 33,33% |
FO-AIR | 128 | -0,78% | -3,03% | -9,22% | -12,93% | -9,22% | -26,22% |
FO-ATLA | 165 | 0,00% | 1,23% | 3,13% | -17,50% | 3,13% | -0,36% |
ICEAIR | 3,1 | -8,82% | 3,33% | -15,07% | 40,91% | -15,07% | -38,00% |
MARL | 83,3 | -0,60% | 5,18% | 33,49% | 22,86% | 33,49% | 73,36% |
OSSR | 192 | 1,05% | 3,23% | 18,52% | 53,60% | 24,27% | 111,45% |
OMXI6ISK | 964,7 | 0,26% | 1,23% | 16,83% | 20,17% | 18,37% | 49,02% |
(Nasdaq OMX Nordic, 26. apríl 2010)
Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum héldu áfram að hækka í síðustu viku og frá áramótum hafa helstu hlutabréfavísitölur hækkað frá 7,4 til 10,5%. Hækkunin skýrist af betri hagtölum og uppgjörum en spár sögðu til um. Sem dæmi þá jókst sala á nýjum fasteignum um 23,8% í mars samanborið við sama mánuð í fyrra og er það mesta ársaukning frá júlí árið 2005.
Misjöfn þróun varð á evrópskum hlutabréfavísitölum í síðustu viku. FTSE vísitalan í London lækkaði um 0,31% og CAC í Frakklandi um 0,89%. Hins vegar hækkaði DAX í Þýskalandi um 1,27%. Grikkir hafa nú formlega beðið Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Evrópusambandið um efnahagsaðstoð. Vangaveltur hafa þó verið á markaði um hvort aðstoðin sé nægileg en hún nemur 45 milljörðum evra.
Helstu hlutabréfavísitölur í Asíu lækkuðu í vikunni, Hang Seng í Kína lækkaði um tæp 3% og Nikkei í Japan um 1,7%. Japanski bílaframleiðandinn Toyota hefur samþykkt að greiða háa sekt til bandarískra yfirvalda þar sem þeir tilkynntu ekki um galla eins og skylt er samkvæmt lögum. Toyota lækkaði um 3,38% í vikunni og hefur lækkað um 8% frá áramótum.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1219 | 0,32% | 2,68% | 7,17% | 7,50% | 4,87% | 38,89% |
Þýskaland (DAX) | 6260 | 1,27% | 3,25% | 11,47% | 12,00% | 6,07% | 35,19% |
Bretland (FTSE) | 5724 | -0,31% | 1,06% | 9,22% | 11,02% | 6,48% | 38,68% |
Frakkland (CAC) | 3951 | -0,89% | 0,21% | 5,00% | 6,76% | 1,55% | 28,83% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 11204 | 1,71% | 3,26% | 9,91% | 13,54% | 7,44% | 38,73% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 2055 | 2,11% | 5,26% | 13,94% | 17,67% | 10,48% | 49,67% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1217 | 2,12% | 4,35% | 11,46% | 14,09% | 9,16% | 40,53% |
Japan (Nikkei) | 10914 | -1,69% | 1,54% | 8,14% | 7,75% | 5,87% | 28,22% |
Samnorræn (VINX) | 94 | 1,21% | 4,39% | 18,34% | 24,07% | 18,38% | 51,98% |
Svíþjóð (OMXS30) | 1067 | 1,65% | 4,53% | 13,90% | 16,96% | 12,85% | 37,84% |
Noregur (OBX) | 356 | 1,28% | 5,70% | 10,82% | 17,44% | 5,65% | 63,39% |
Finnland (OMXH25) | 2251 | 0,28% | 0,08% | 13,23% | 20,20% | 12,03% | 47,42% |
Danmörk (OMXC20) | 407 | 1,27% | 8,10% | 19,13% | 24,65% | 23,47% | 54,63% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Bloomberg, 26. apríl 2010)
Krónan veiktist í síðustu viku og hækkaði gengisvísitalan um 0,63% og endaði samkvæmt opinberu viðmiðunargengi Seðlabankans í 227,93 stigum. Sveiflur hafa minnkað mikið undanfarna mánuði og ljóst er að krónan er í hægfara styrkingarfasa.
Norðurlöndin hafa staðfest að það fé sem þau hafa heitið að lána Íslandi muni berast. Matsfyrirtækið Moody‘s breytti lánshæfismati ríkisjóðs úr neikvæðum í stöðugar á föstudaginn. Líklegt er að fleiri matsfyrirtæki fylgi í kjölfarið. Undrun sætir að skuldatryggingaálagið lækki ekki við þessar fréttir og eins að krónan styrkist ekki, þrátt fyrir að ríkissjóður geti auðveldlega greitt upp gjalddaga erlendra lána á árunum 2011 og 2012.
Ávöxtunarkrafa á skuldabréf ríkissjóðs sem er á gjalddaga
1. desember 2011 heldur áfram að lækka og er nú um 7,8%, en var um 9,15%
undir
lok mars þegar Seðlabankinn tilkynnti um kaup á bréfum í flokknum.
Líklegt er
að Seðlabankinn hafi haldið kaupunum áfram, en slíkt er mjög hagkvæmt
fyrir
hann og þar með ríkissjóð.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 227,9324 | 0,63% | 0,02% | -2,82% | -3,55% | -2,71% | 2,02% |
(Bloomberg, 26. apríl 2010)
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.