Verðtryggð
skuldabréf hækkuðu mikið í vikunni, lengri bréfin um 3,39% og styttri um 1,74%.
Löng óverðtryggð bréf lækkuðu hins vegar aðeins eða um 0,27%.
Spákaupmenn
eru allsráðandi á markaðnum. Þeir hafa tekið stórar stöður í löngum
ríkistryggðum bréfum og ýkja þar með kröfulækkun þeirra bréfa. Þeir treysta á
að aðrir fjárfestar fylgi þeim eftir þ.á.m. lífeyrissjóðir og fleiri sem eru að
færa fé af innlánsreikningum til fjárfestingar í ríkistryggðum skuldabréfum.
Stöðnun ríkir í íslenska hagkerfinu og því þykir líklegt að SÍ lækki vexti verulega á næsta vaxtaákvörðunardegi 22. september n.k. Lítil ástæða er til að halda vöxtum háum þar sem litlar líkur eru á að gjaldeyrishöftin verði afnumin á næstunni og því sjá höftin um að verja krónuna næstu misserin.
OMXI6ISK vísitalan hækkaði um 2,3% á milli vikna. Hlutabréf í Össuri hækkuðu mest, eða um 4,37% en mesta lækkunin var með bréf Eik bank, eða um 3,72%.
Veltan nam ríflega 1,4 ma.kr. með félög í vísitölunni í síðustu viku. Meðalvelta á viku í ágúst var í kringum 208 m.kr.
Veltan í síðustu viku skýrist af talsverðri veltu með bréf BankNordik í þrem viðskiptum upp á rúmlega 400 þúsund hluti á genginu 140 DKK sem er í kringum 1,2 milljarðar ISK. Þetta er um 4,1% af hlutafé í félaginu.
Velta og fjöldi viðskipta með færeysku
félögin þrjú í íslensku kauphöllinni hafa ekki verið mikil fyrir utan nokkur
stór viðskipti með BankNordik.
Félögin eru einnig skráð í kauphöllinni í Kaupmannahöfn og hefur veltan verið talsvert meiri þar, í síðustu viku var fjöldi viðskipta 224 í Kaupmannahöfn á móti 10 í íslensku kauphöllinni. Veltan með Atlantic Petroleum var til að mynda um 78 milljónir ISK í Kaupmannahöfn á móti tæpum 2 milljónum ISK í íslensku kauphöllinni.
Á Firsth North Iceland markaðnum hækkaði Century Aluminum um 8,24% í síðustu viku og endaði gengið í 1.472. Gengið hefur hins vegar lækkað um tæp 23% frá áramótum.
Heimsmarkaðsverð á áli miðað við þriggja
mánaða framvirka samninga á markaði í London (LME) hefur verið að sveiflast frá
ríflega 1.800 USD tonnið upp yfir 2.400 USD á þessu ári. Gengi Century Aluminum fór upp í 2.120 í
apríl þegar verð á áli var sem hæst.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 140,00 | 0,72% | -2,78% | -6,67% | -11,39% | 8,11% | 1,08% |
FO-ATLA | 156,00 | 4,00% | 9,86% | 1,30% | -5,45% | -2,50% | -35,39% |
FO-EIK | 69,50 | -3,47% | -14,20% | -16,27% | -10,32% | -13,12% | -19,19% |
ICEAIR | 3,50 | 0,00% | 2,94% | 12,90% | 16,67% | -4,11% | -10,26% |
MARL | 94,00 | 1,08% | 2,51% | 11,24% | 32,58% | 50,64% | 60,68% |
OSSR | 215,00 | 4,37% | 8,31% | 17,17% | 20,45% | 39,16% | 74,80% |
OMXI6ISK | 958,35 | 2,31% | 2,50% | 6,08% | 5,47% | 17,59% | 18,82% |
(Nasdaq OMX Nordic, 13. september 2010)
Almenn hækkun var á helstu hlutabréfavísitölum í síðustu viku. S&P 500 í Bandaríkjunum hækkaði um 0,49%, DAX í Þýskalandi um 1,31%, FTSE í Bretlandi um 1,46% og Nikkei í Japan um 1,37%.
Þá hækkaði Hang Seng í Kína um 1,36% í liðinni viku en innflutningur í Kína jókst um 35,2% í ágúst miðað við sama mánuð í fyrra. Tölurnar benda til sterkari innlendrar eftirspurnar í einu stærsta hagkerfi heims og auka vonir um vaxandi hagvöxt í heiminum.
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn telur hins vegar líkur á því að það dragi úr hagvexti í heiminum þegar líður á þetta ár m.a. vegna veikleika í efnahagskerfi Bandaríkjanna og erfiðrar stöðu margra fjármálafyrirtækja.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1136,71 | 0,72% | 3,21% | 5,40% | -4,07% | -2,52% | 1,77% |
Þýskaland (DAX) | 6214,77 | 1,31% | 2,31% | 3,37% | 5,16% | 4,94% | 11,16% |
Bretland (FTSE) | 5501,64 | 1,46% | 5,04% | 7,32% | -1,49% | 2,38% | 10,58% |
Frakkland (CAC) | 3725,82 | 1,46% | 4,23% | 5,85% | -4,17% | -4,39% | 0,77% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 10462,77 | 0,17% | 1,55% | 2,46% | -1,52% | 0,33% | 8,93% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 1892,34 | 1,19% | 4,04% | 2,45% | -1,67% | 1,72% | 12,27% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1109,55 | 0,49% | 2,81% | 1,64% | -3,52% | -0,50% | 6,41% |
Japan (Nikkei) | 9239,17 | 1,37% | 0,74% | -3,95% | -13,30% | -11,61% | -10,75% |
Samnorræn (VINX) | 94,55 | 2,91% | 6,45% | 8,04% | 7,12% | 19,36% | 24,94% |
Svíþjóð (OMXS30) | 1068,89 | 2,00% | 3,75% | 5,81% | 5,62% | 12,99% | 17,12% |
Noregur (OBX) | 341,63 | 1,06% | 5,65% | 6,64% | 2,27% | 1,60% | 21,78% |
Finnland (OMXH25) | 2352,67 | 2,76% | 5,09% | 9,23% | 6,04% | 16,79% | 21,05% |
Danmörk (OMXC20) | 416,34 | 1,97% | 1,69% | 4,41% | 12,79% | 24,73% | 25,95% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Bloomberg, 13. september 2010)
Krónan styrktist í liðinni viku og lækkaði gengisvísitalan um 0,44% og endaði í 205,15 stigum. Evran lækkaði í verði um 0,92% og kostar ein evra nú um 150 krónur. Krónan hefur styrkst nær samfellt frá því um miðjan nóvember í fyrra en þá kostaði evran um 187 krónur sem þýðir að hún hefur lækkað um rúm 19% á móti krónu frá þeim tíma.
Sé litið til tæknigreiningar er krónan í styrkingarfasa og hefur svo verið síðan snemma árs. Þess ber
þó að geta að krónan er í skjóli gjaldeyrishafta. Seðlabankinn hefur hafið kaup
á gjaldeyri fyrir krónur og ljóst er að hann mun geta haft mikið um þróun
krónunnar að segja og haldið henni á því bili sem hann telur þjóna heildarhagsmunum
hagkerfisins best.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 205,15 | -0,44% | -1,39% | -3,46% | -9,03% | -11,88% | -11,89% |
(Gengisvísitala krónunnar, Bloomberg, 13. september 2010)
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.