Löng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,37% og millilöng verðtryggð bréf hækkuðu um 0,09%. Millilöng óverðtryggð bréf hækkuðu um 0,02%.
Hagstofan birti vísitölu neysluverðs í janúar síðastliðinn
miðvikudag og lækkaði hún um 0,90% frá síðustu mælingu. 12 mánaða verðbólga er
nú 1,80% sem er lægsta verðbólga í 7 ár.
Þeir liðir sem höfðu mest áhrif á mælinguna til lækkunar voru útsölur (-0,66%) og breyting á vísitölunni vegna útvarpsgjalds (-0,40%) , en það hefur nú verið tekið út úr vísitölunni.
Á miðvikudaginn kynnir Peningastefnunefnd Seðlabankans vaxtaákvörðun sína. Við spáum lækkun stýrivaxta upp á 0,5 prósentur.
Í síðustu viku hækkaði OMXI6ISK vísitalan um 0,77%. Mest hækkuðu bréf Marels eða um 4%, en félagið kynnir ársuppgjör 2010 þann 3.febrúar.
Heildarvelta í síðustu viku, með þau bréf sem mynda vísitöluna, nam tæpum 471 milljón króna og var mesta veltan með bréf Marels fyrir rúmar 238 milljónir króna.
Í lok síðustu viku var gengi bréfa Össurar 4,6% hærra í kauphöllinni hér heima en í Kaupmannahöfn. Ekki er ljóst hvenær félagið verður afskráð úr kauphöllinni hér heima.
BankNordik hefur lýst yfir áhuga á að eignast helmingshlut færeyska ríkisins í líftryggingarfélaginu P/F Føroya Lívstrygging. Söluferlið er ekki langt á veg komið en það hefur allavega einn annar aðili óskað eftir að kaupa hlutinn. BankNordik á nú þegar meirihlutaeign í tryggingarfélaginuVerði hér á Íslandi.
Þá tilkynnti bankinn að hann ætlaði að greiða niður lán sem
eru á gjalddaga 2012 og 2013 að upphæð 900 milljónir DKK. Áður hafði bankinn tilkynnt um greiðslu á 200
milljónum DKK þann 2.febrúar.
Þetta er gert vegna góðrar lausafjárstöðu bankans og mun spara bankanum talsvert í vaxtakostnað og kostnað vegna ábyrgðar Danska ríkisins.
Eftir standa því 1100 milljónir DKK af láni sem var veitt með ábyrgð Danska ríkisins.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 137,00 | -1,08% | -3,52% | -10,46% | -4,86% | -3,52% | 3,79% |
FO-AIR | 112,00 | -3,45% | -3,45% | -1,75% | -4,27% | -3,45% | -20,57% |
FO-ATLA | 214,00 | 0,00% | -1,61% | 20,22% | 50,70% | -1,61% | 33,75% |
ICEAIR | 4,08 | -0,49% | 29,52% | 16,57% | 20,00% | 29,52% | 27,50% |
MARL | 117,00 | 4,00% | 17,00% | 19,88% | 28,57% | 17,00% | 94,03% |
OSSR | 205,00 | -0,49% | 0,99% | -4,65% | 4,33% | 0,99% | 28,13% |
OMXI6ISK | 992,59 | 0,77% | 6,30% | 4,60% | 5,88% | 6,30% | 23,06% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 31. janúar 2011)
Engin hreyfing var á heimsvísitölunni í vikunni. FTSE í Bretlandi lækkaði um 0,22%, S&P 500 í Bandaríkjunum lækkaði um 0,53%, Dax í þýskalandi hækkaði um 0,57% og VINX samnorræna vísitalan hækkaði um 1,09%.
Bandaríska vísitalan S&P 500 fór í fyrsta skipti í 1.300 stig frá því í september 2008 en vikan endaði í 1276,34 stigum. Bandaríska Dow Jones hlutabréfavísitalan fór yfir 12.000 stig í vikunni og endaði í 11.823,70 stigum en það er hæsta gildi hennar síðan í júní 2008.
Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poors (S&P) lækkaði lánshæfiseinkunn japanska ríkisins fyrir langtímaskuldir úr AA í AA-. S&P hefur ekki lækkað lánshæfiseinkunn Japans í níu ár. Gríðarleg skuldasöfnun er ástæða lækkunarinna en japanska ríkið er eitt skuldsettasta ríki heims.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1302,13 | 0,00% | 1,72% | 6,54% | 15,76% | 1,72% | 16,31% |
Þýskaland (DAX) | 7155,58 | 0,57% | 5,69% | 7,60% | 15,53% | 2,73% | 26,64% |
Bretland (FTSE) | 5965,08 | -0,22% | -0,31% | 3,63% | 11,86% | -0,31% | 13,35% |
Frakkland (CAC) | 4059,57 | -0,38% | 5,19% | 4,40% | 9,86% | 5,19% | 7,03% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 11823,70 | -0,41% | 2,13% | 6,34% | 12,97% | 2,13% | 17,45% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 2686,89 | -0,09% | 1,28% | 7,16% | 19,17% | 1,28% | 25,13% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1276,34 | -0,53% | 1,49% | 7,87% | 15,86% | 1,49% | 18,85% |
Japan (Nikkei) | 10360,34 | 0,84% | 0,09% | 11,25% | 7,35% | 0,09% | 0,39% |
Samnorræn (VINX) | 106,70 | 1,09% | -0,44% | 9,77% | 16,93% | -0,44% | 29,18% |
Svíþjóð (OMXS30) | 1151,80 | 0,08% | -1,04% | 4,97% | 9,19% | -1,04% | 19,90% |
Noregur (OBX) | 392,63 | -0,14% | -1,94% | 5,77% | 19,80% | -1,94% | 19,05% |
Finnland (OMXH25) | 2685,98 | 1,41% | 1,56% | 8,95% | 19,61% | 1,56% | 29,76% |
Danmörk (OMXC20) | 467,03 | 1,56% | 0,86% | 8,79% | 12,33% | 0,86% | 30,05% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Bloomberg, 31. janúar 2011)
Gengi krónunnar styrktist óverulega í vikunni og lækkaði
gengisvísitalan um 0,13% og endaði í 213,55 stigum. Hefur krónan veikst nokkuð
frá áramótum og er vísitalan nú 2,65% hærri en í lok síðasta árs.
Af helstu myntum hefur evra hækkað í verði um 3,24%, sterlingspund um 2,85%, bandaríkjadalur um 0,46%, en japanskt jen hefur hinsvegar lækkað í verði um 1,12%.
Raungengi krónunnar, sem er mælikvarði á samkeppnisstöðu innlendra atvinnuvega út á við, er enn sögulega lágt og samkeppnisstaðan góð samkvæmt því. Verðbólga fer víða vaxandi á sama tíma og það dregur úr henni hér á landi og er hún nú svipuð og í helstu viðskiptalöndum.Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 213,55 | -0,13% | 2,55% | 3,32% | 0,21% | 2,65% | -8,73% |
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.