Vikulega birta Íslensk verðbréf samantekt um þróun helstu eignaflokka undanfarna viku. Smelltu hér ef þú vilt skrá þig á listann.
Löng verðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,17% en millilöng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,31%. Hinsvegar lækkuðu öll óverðtryggð skuldabréf, löng bréf lækkuðu um 0,79% og millilöng óverðtryggð skuldabréf um 0,85%.
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,26% og er 12 mánaða verðbólga nú rúm 5%. Búast má við frekari aukningu á verðbólgunni, sem ætti að hafa neikvæð áhrif á óverðtryggð skuldabréf. Erfitt er að sjá fyrir sér hvaða áhrif óróinn á erlendum mörkuðum hefur á þróun verðlags en það mun hafa áhrif hér á landi í gegnum innfluttar vörur. Einnig eru áhrif nýgerðra kjarasamninga ekki komin fram nema að litlu leyti.
Í vikunni lækkaði OMXI6ISK hlutabréfavísitalan um 2,63%. Bréf Icelandair group hækkuðu um 4,51% en bréf Atlantic Petroleum lækkuðu um 18,9% í fáum og litlum viðskiptum.
Heildarvelta hlutabréfa í OMXI6ISK hlutabréfavísitölunni var rúm 241 milljón. Mest velta var með bréf Icelandair group, eða um 74% af heildarveltu vikunnar.
Á mánudaginn birti Bank Nordik uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2011. Uppgjörið var frekar slakt fyrir fyrstu 6 mánuði ársins, en bankinn skilaði 23 milljóna DKK hagnaði. Til samanburðar skilaði bankinn 372 milljóna DKK hagnaði árið 2010. Arðsemi eigin fjár fyrir fyrstu 6 mánuðina var 2,2% og hafa tekjur af grunnstarfsemi bankans dregist saman á milli ára.
Bankinn hefur lokað útibúum í Færeyjum og lækkað kostnað í Danmörku og hefur þannig lækkað kostnað á milli fjórðunga. Afskriftir útlána eru fremur litlar, eða 13,1% af hreinum vaxtatekjum.
Afkomuspá stjórnenda Bank Nordik fyrir skatta og gengishagnað var lækkuð í uppgjörinu úr 100-140 milljónir DKK í 70-110 milljónir DKK.
BankNordik keypti hluta af starfsemi Amagerbankans sem fór í þrot fyrr á þessu ári. Við kaupin yfirtók BankNordik 24 bankaútibú í Danmörku og viðskiptavinum fjölgaði um 90 þúsund.
Eftir yfirtökuna verður eiginfjárhlufall bankans 14,5% (lágmarkið er 8,8%) og í tilkynningu um uppgjörið kemur fram að bankinn sé vel fjármagnaður og staða bankans sterk. Innlán bankans eru nú um 1,3 milljörðum DKK hærri en útlán hans.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 90,00 | -13,46% | -15,09% | -28,00% | -28,00% | -36,62% | -36,17% |
FO-AIR | 105,00 | 0,00% | 0,00% | -3,64% | -2,75% | -8,62% | -10,92% |
FO-ATLA | 139,50 | -18,90% | 18,90% | 28,83% | -40,13% | -35,86% | -7,00% |
ICEAIR | 5,33 | 4,51% | 7,68% | 10,58% | 19,51% | 69,21% | 52,29% |
MARL | 121,50 | 1,25% | -4,33% | -2,41% | 3,85% | 21,50% | 32,07% |
OSSRu | 196,00 | -1,51% | -1,26% | -0,51% | -0,51% | -3,45% | -2,49% |
OMXI6ISK | 926,56 | -2,63% | -4,89% | -6,40% | -5,15% | -0,77% | -0,55% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 29. ágúst 2011)
Nokkur hækkun var á erlendum hlutabréfum í vikunni. S&P 500 vísitalan í Bandaríkjunum hækkaði um 4,77%, Dax í Þýskalandi um 1,05% og heimshlutabréfavísitalan MSCI hækkaði um 2,81%.
Hækkunin var kærkomin eftir lækkanir undanfarnar vikur. En það sem af er ágúst mánuði hefur S&P 500 vísitalan lækkað um 8,94%, Dax um 22,65% og MSCI um 10,95%.
Hlutabréfaverð hækkaði á föstudaginn þegar Ben Bernanke, Seðlabankastjóri Bandaríkjanna, tilkynnti að hagkerfi Bandaríkjanna væri smám saman að ná bata og að bankinn hefði úrræði til að örva hagvöxt ef á þyrfti að halda.
Fjárfestar áttu von á að seðlabankastjórinn myndi tilkynna áætlun um hvernig bandarískt efnahagslíf yrði örvað en Bernanke boðaði ekki slíkar aðgerðir í ræðu sinni.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1163,02 | 2,81% | -10,95% | -13,11% | -13,96% | -9,14% | 6,77% |
Þýskaland (DAX) | 5537,48 | 1,05% | -20,73% | -20,79% | -21,97% | -17,93% | -4,65% |
Bretland (FTSE) | 5131,10 | 1,78% | -11,78% | -13,62% | -14,42% | -13,05% | -1,38% |
Frakkland (CAC) | 3087,64 | 2,35% | -14,05% | -20,14% | -23,23% | -17,07% | -10,04% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 11433,71 | 4,36% | -5,84% | -8,10% | -6,48% | -1,24% | 12,64% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 2529,46 | 5,91% | -8,23% | -9,56% | -9,09% | -4,65% | 17,45% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1195,99 | 4,77% | -7,45% | -10,15% | -9,89% | -4,90% | 12,34% |
Japan (Nikkei) | 8797,78 | 0,90% | -9,98% | -7,04% | -16,69% | -13,47% | -1,55% |
Samnorræn (VINX) | 79,76 | 1,95% | -13,55% | -21,74% | -23,05% | -22,85% | -6,84% |
Svíþjóð (OMXS30) | 904,32 | 3,06% | -13,00% | -19,30% | -17,83% | -19,75% | -8,98% |
Noregur (OBX) | 332,89 | 2,80% | -10,84% | -14,46% | -16,24% | -14,59% | 6,74% |
Finnland (OMXH25) | 1891,49 | 1,68% | -10,83% | -23,21% | -25,09% | -25,87% | -11,28% |
Danmörk (OMXC20) | 337,12 | -3,39% | -17,58% | -23,53% | -26,82% | -24,25% | -11,91% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Bloomberg, 29. ágúst 2011)
Gengisvísitalan hækkaði um 0,25% og endaði í 219,45 stigum.
Frá áramótum hefur krónan veikst um 5,2%. Krónan hefur veikst gagnvart öllum helstu myntum nema Bandaríkjadal, en þar nemur styrkingin um 1%. Mest er veikingin gagnvart svissneskum franka, 14,26%.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 219,45 | 0,25% | -1,28% | -0,68% | 1,36% | 5,22% | 5,54% |
(Gengisvísitala krónunnar, Bloomberg, 29. ágúst 2011)
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.