Vikulega birta Íslensk verðbréf samantekt um þróun helstu eignaflokka undanfarna viku. Smelltu hér ef þú vilt skrá þig á listann.
Löng verðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,46% og millilöng verðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,50%. Löng óverðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,16% en millilöng óverðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,10%.
Seðlabanki Íslands hefur á þessu ári gert ársfjórðungslegar kannanir á væntingum markaðsaðila til ýmissa hagstærða, svo sem verðbólgu og vaxta. Athygli vekur að niðurstöður könnunar sem gerð var dagana 13.-17. ágúst sýna að verðbólguvæntingar markaðsaðila hafa minnkað töluvert. Sem dæmi vænta markaðsaðilar þess að ársverðbólga verði 4,8% eftir eitt ár og 4,5% eftir tvö ár, sem er tæplega einnar prósentu lækkun frá síðustu könnun.
OMXI6ISK vísitalan lækkaði í vikunni um 0,46%. Mest hækkaðu bréf Regins, um 2,41%. Mest lækkuðu bréf Marels, um 1,1%.
Heildarvelta á OMXI6ISK var um 1.360 milljónir króna. Mest voru viðskipti með bréf Icelandair, fyrir rúmlega 445 milljónir króna.
Icelandair hefur tilkynnt að þrír nýir áfangastaðir muni bætast við alþjóðlegt leiðakerfi félagsins á næsta ári. Þetta eru borgirnar Anchorage í Alaska, St. Pétursborg í Rússlandi og Zurich í Sviss. Þetta ætti að styrkja enn frekar leiðakerfið félagsins frá Evrópu til Norður Ameríku.
Fasteignarfélagið Reginn birti hálfsárs uppgjör í vikunni og var það í takt við væntingar. Rekstrartekjur voru 1.618 milljónir króna sem er 18% hækkun samanborið við fyrstu 6 mánuði 2011. Hagnaður eftir skatta var 930 milljónir króna en var 66 milljónir fyrir sama tímabil 2011. Söluhagnaður á tímabilinu nam 770 milljónum króna.
Síðasta viðskiptaverð Regins (fyrir hádegi 3. sept.) er 8,6 og hefur félagið því hækkað um 4,88% frá útboði á markað í júlí.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 68,00 | 0,00% | -2,86% | -9,33% | -2,16% | -16,05% | -24,44% |
HAGA | 18,00 | 0,00% | -1,67% | -2,44% | 3,15% | 10,09% | 12,85% |
ICEAIR | 7,13 | 0,28% | 4,71% | 8,54% | 27,37% | 41,55% | 32,10% |
MARL | 138,50 | -1,10% | -0,72% | -11,22% | -3,82% | 10,36% | 12,60% |
OSSRu | 199,00 | -0,50% | -1,49% | -4,33% | 1,02% | 7,57% | 1,79% |
Reginn | 8,50 | 2,41% | 3,97% | 0,00% | 0,00% | 3,66% | 3,66% |
OMXI6ISK | 994,37 | -0,46% | -0,38% | -6,69% | -0,86% | 9,31% | 6,87% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 31. ágúst 2012)
Heimsvísitalan MSCI lækkaði í vikunni um 0,52%, FTSE í Bretlandi lækkaði um 1,13%, Nikkei í Japan um 2,54% og S&P500 í Bandaríkjunum um 0,32%.
Hlutabréf í Bandaríkjunum lækkuðu aðra vikuna í röð þrátt fyrir að hagvöxtur reyndist meiri á öðrum ársfjórðungi en spár sögðu til um. Hagvöxturinn mældist 1,7% en fyrstu þrjá mánuði ársins mældist hann 2%.
Seðlabankastjóri Bandaríkjanna, Ben S. Bernanke, hélt ræðu á árlegri ráðstefnu bankans um efnahagsmál í Jackson Hole á föstudaginn. Þar útilokaði hann ekki að gripið yrði til frekari örvunaraðgerða til að auka hagvöxt.
Almennt hækkuðu erlendir hlutabréfamarkaðir í ágúst mánuði og af viðmiðunarvísitölum okkar var sú sænska, OMXS30, eina sem lækkaði. Mest hækkaði Nasdaq í Bandaríkjunum um 4,34% og CAC í Frakklandi um 3,69%.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1279,21 | -0,52% | 2,29% | 10,95% | -1,49% | 8,17% | 8,84% |
Þýskaland (DAX) | 6970,79 | 0,00% | 2,93% | 15,69% | 1,13% | 18,67% | 26,38% |
Bretland (FTSE) | 5711,48 | -1,13% | 1,35% | 9,19% | -2,83% | 3,07% | 8,53% |
Frakkland (CAC) | 3413,07 | -0,59% | 3,69% | 16,42% | -1,89% | 8,71% | 9,10% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 13090,84 | 0,26% | 0,63% | 8,02% | 0,87% | 7,15% | 16,46% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 3066,97 | -0,09% | 4,34% | 11,63% | 3,05% | 17,73% | 23,65% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1406,58 | -0,32% | 1,98% | 10,06% | 2,70% | 11,85% | 19,81% |
Japan (Nikkei) | 8839,91 | -2,54% | 1,67% | 4,07% | -10,16% | 3,89% | -1,86% |
Samnorræn (VINX) | 98,66 | -1,21% | 0,02% | 16,34% | -1,09% | 12,98% | 19,08% |
Svíþjóð (OMXS30) | 1043,93 | -1,38% | -2,27% | 9,40% | -5,29% | 5,95% | 12,29% |
Noregur (OBX) | 404,35 | 0,88% | 3,01% | 17,12% | 2,46% | 13,65% | 19,06% |
Finnland (HEX25) | 1994,91 | -1,79% | 2,42% | 12,93% | -10,52% | 3,86% | 2,40% |
Danmörk (KFX) | 490,16 | 0,54% | 1,24% | 17,32% | 7,72% | 26,26% | 39,96% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Bloomberg, 31. ágúst 2012)
Gengisvísitala krónunnar hækkaði um 1,4% í vikunni og endaði í 213,59 stigum.
Vísitala neysluverðs lækkaði óvænt um 0,15% milli mánaða. Mest áhrif til lækkunar höfðu flugfargjöld til útlanda og verð á mat- og drykkjarvörum. Síðustu tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 4,1%, en undandarna þrjá mánuði hefur vísitalan lækkað um 0,4%, sem jafngildir 1,5% verðhjöðnun á ári.
Síðastliðinn miðvikudag fóru fram gjaldeyrisuppboð hjá Seðlabanka Íslands. Bankinn keypti alls 18,6 milljónir evra, en tilboð bárust fyrir 31,8 milljón evra. Af teknum tilboðum voru 14,9 milljónir evra í fjárfestingarleið en 3,7 milljónir evra í ríkisverðbréfaleið. Útboðsverð var 235 kr. fyrir hverja evru.
Seðlabankinn keypti einnig krónur fyrir evrur. Útboðsverð var 236 kr. fyrir hverja evru og var tilboðum tekið fyrir 3,8 milljarða króna.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 213,59 | 1,44% | 2,63% | -4,98% | -6,77% | -1,70% | -2,21% |
(Gengisvísitala krónunnar, Seðlabankinn, 31. ágúst 2012)
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.