Vikulega birta Íslensk verðbréf samantekt um þróun helstu eignaflokka undanfarna viku. Smelltu hér ef þú vilt skrá þig á listann.
Löng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,03% og millilöng verðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,06%. Löng óverðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,11% og millilöng óverðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,09%. Það voru mjög lítil viðskipti í vikunni sem leið og litlar verðbreytingar. Markaðurinn virðist vera í dvala. Hugsanlega eru fjárfestar að bíða eftir næstu stýrivaxtaákvörðun sem verður 14. nóvember n.k.
OMXI6ISK vísitalan hækkaði í síðustu viku um 0,43%. Mest hækkuðu bréf Haga um 6,53%. Mest lækkuðu bréf Regins, um 1,95%. Heildarvelta á OMXI6ISK var í kringum 1,9 milljarða króna.
Mest voru viðskipti með bréf Haga fyrir ríflega 892 milljónir króna. Veltan í október mánuði á OMXI6ISK var um 9,3 milljarðar króna.
Icelandair birti uppgjör í síðustu viku fyrir þriðja ársfjórðung. Uppgjörið var nokkuð gott og í takt við væntingar. EBITDA var 77,4 milljónir USD og jókst um 10% frá sama ársfjórðungi í fyrra.
Hagnaður tímabilsins var 51,4 milljónir USD sem er 17% meira en á sama tímabili í fyrra. Farþegum í millilandaflugi fjölgaði um 11% á milli ára og mikill vöxtur er í flutningi farþega á milli Norður-Ameríku og Evrópu eða 22%. Stjórnendur halda óbreyttri afkomuspá fyrir árið í ár, sem gerir ráð fyrir EBITDA á milli 110-115 milljónir USD.
Almennu útboði Eimskipafélagsins lauk á föstudag en meira en fimmföld eftirspurn var eftir þeim 5% hlutum sem í boði voru. Ákveðið var að auka framboð um 3% þannig að selt verður 8% af útgefnu hlutafé. Útboðsgengi var 208 kr. á hlut.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 61,00 | -0,81% | -11,59% | -12,86% | -20,78% | -24,69% | -14,08% |
HAGA | 21,20 | 6,53% | 10,70% | 16,48% | 13,98% | 29,66% | 32,92% |
ICEAIR | 7,41 | -0,27% | 4,22% | 8,18% | 18,75% | 47,32% | 36,72% |
MARL | 128,00 | -1,54% | -4,81% | -7,89% | -20,19% | 2,39% | 4,90% |
OSSRu | 188,00 | 1,35% | -4,57% | -6,93% | -10,05% | 1,62% | -2,59% |
Reginn | 10,05 | -1,95% | 1,82% | 21,82% | 0,00% | 22,56% | 22,56% |
OMXI6ISK | 979,70 | 0,43% | -2,03% | -1,82% | -9,34% | 8,81% | 7,70% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 5. nóv. 2012)
Erlend hlutabréf hækkuðu víða í vikunni sem leið. Heimsvísitalan MSCI hækkaði um 0,43%, DAX í Þýskalandi um 1,83% og Nikkei í Japan um 1,32%. Dow Jones og Nasdaq í Bandaríkjunum lækkuðu hins vegar lítillega eða um 0,11% og 0,19% en markaðir þar voru lokaðir á mánudag og þriðjudag vegna fellibylsins Sandy.
Samkvæmt Bloomberg fréttaveitunni þarf að leita aftur til ársins 1888 til að finna jafn langa lokun markaða vegna veðurs. Atvinnuleysi á evrusvæðinu jókst í september og mælist nú 11,6% og hefur aldrei verið hærra. Atvinnuleysi í Bandaríkjunum jókst um 0,1% í október og stendur nú í 7,9%. Nýjum störfum fjölgaði þó meira en spár gerðu ráð fyrir eða um 171 þúsund.
Þegar október mánuður er skoðaður kemur í ljós að markaðir ýmist hækkuðu eða lækkuðu. Í Bandaríkjunum lækkaði S&P500 um 1,98% og Nasdaq um 4,46%. Hins vegar hækkuðu hlutabréfamarkaðir víða í Evrópu til að mynda hækkaði CAC í Frakklandi um 2,22%, DAX í Þýskalandi um 0,62% og FTSE í Bretlandi um 0,71%.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1305,77 | 0,43% | -2,16% | 3,66% | 3,22% | 10,42% | 8,54% |
Þýskaland (DAX) | 7363,85 | 1,83% | -1,04% | 6,63% | 11,57% | 24,12% | 22,71% |
Bretland (FTSE) | 5868,55 | 1,06% | -0,55% | 0,89% | 3,25% | 4,78% | 5,64% |
Frakkland (CAC) | 3492,46 | 1,67% | 0,36% | 2,82% | 9,72% | 9,80% | 11,07% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 13093,16 | -0,11% | -3,80% | -0,02% | 0,42% | 7,17% | 9,26% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 2982,13 | -0,19% | -4,91% | 0,48% | 0,87% | 14,47% | 11,02% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1414,20 | 0,16% | -3,20% | 1,67% | 3,29% | 12,45% | 12,84% |
Japan (Nikkei) | 9051,22 | 1,32% | 1,63% | 5,29% | -3,97% | 6,53% | 2,34% |
Samnorræn (VINX) | 99,91 | 1,93% | -1,80% | -0,49% | 6,17% | 13,67% | 15,30% |
Svíþjóð (OMXS30) | 1069,91 | 1,01% | -2,74% | -1,61% | 3,07% | 7,67% | 7,75% |
Noregur (OBX) | 411,90 | 0,45% | -2,88% | 3,51% | 7,69% | 14,76% | 15,43% |
Finnland (OMXH25) | 2110,80 | 2,77% | 1,00% | 7,07% | 4,03% | 8,01% | 5,10% |
Danmörk (OMXC20) | 489,13 | -0,54% | -3,72% | 0,06% | 4,50% | 24,77% | 34,20% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 5. nóv 2012)
Lát varð á veikingu krónunnar í síðustu viku. Gengisvísitalan lækkaði um 0,84% og endaði í 225,27 stigum. Styrking krónunnar var rétt um 1% bæði gagnvart dollara og evru. Í þjóðhagsspá Hagstofunnar, sem kom út í síðustu viku, er spáð 2,7% hagvexti árið 2012 og 2,5% hagvexti árið 2013.
Af einstökum þáttum landsframleiðslu árið 2012 er spáð að einkaneysla aukist um 3,5%, samneysla dragist saman um 0,3% og fjárfestingar aukist um 10,3%. Sá fyrirvari er á spánni að eftir því sem slaki á heimsvísu varir lengur og evrukreppan dregst á langinn aukast líkur á neikvæðum áhrifum á íslenskt efnahagslíf.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 225,27 | -0,84% | 2,05% | 8,57% | -0,64% | 3,68% | 5,54% |
(Gengisvísitala krónunnar, Seðlabankinn, 5. nóv 2012)
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.