Vikulega birta Íslensk verðbréf samantekt um þróun helstu eignaflokka undanfarna viku. Smelltu hér ef þú vilt skrá þig á listann.
Löng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,35% í síðustu viku og millilöng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,24%. Löng óverðtryggð skuldabréf hækkuðu um 1% og millilöng óverðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,66%.
Almenn hækkun var á skuldabréfamarkaði í vikunni sem leið. Óverðtryggð bréf hækkuðu heldur meira en þau verðtryggðu og ljóst að fjárfestar telja verðtryggingarálagið vera í hærri kantinum.
Stýrivextir voru hækkaðir um 25 punkta. Samfara því var frekar mildur tónn í seðlabankamönnum og gefið í skyn að ekki væri þörf á frekara peningalegu aðhaldi á næstunni. Það sem gæti helst ruggað þeim bát væru frekari launahækkanir, en kjarasamningar eru í ákveðnu uppnámi þar sem forsendur þeirra um verðbólgu og þróun krónunnar hafa ekki gengið eftir. Ennfremur gæti áframhaldandi veiking krónunnar kallað á frekara aðhald.
OMXI6ISK vísitalan hækkaði í síðustu viku um 1,23%. Ekkert félag lækkaði í vikunni, mest hækkuðu bréf BankNordik um 5,93% og Icelandair, um 4,25%.
Heildarvelta á OMXI6ISK var um 5,5 milljarðar króna. Mest voru viðskipti með bréf Icelandair fyrir ríflega 3,5 milljarða króna. Ríflega 2,6 milljarðar króna voru vegna sölu Framtakssjóðs Íslands á 350 milljónum hluta á genginu 7,5. Þar af keyptu Lífeyrissjóðirnir Bankastræti 7, 120 milljónir hluta og er eign þeirra því orðin ríflega 12% í Icelandair.
Færeyski bankinn BankNordik birti uppgjör fyrir 3. ársfjórðung í síðustu viku. Hagnaður fyrir skatta nam 68m. DKK á móti 30m. DKK hagnaði á þriðja ársfjórðungi 2011. Fyrir fyrstu níu mánuði ársins nam hagnaður fyrir skatta 80m. DKK en var 64m. DKK á sama tíma á síðasta ári.
Viðskipti með Eimskipafélag Íslands hófust á Aðalmarkaði Kauphallar síðastliðin föstudag, alls áttu sér stað 82 viðskipti með bréf félagsins í veltu upp á tæplega 275 milljónir króna. Lokagengi var 225 og hækkaði því um 8,17% frá útboðsgengi.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 62,50 | 5,93% | 1,63% | -8,09% | -16,67% | -22,84% | -18,83% |
HAGA | 21,35 | 1,43% | 9,77% | 15,41% | 15,09% | 30,58% | 33,86% |
ICEAIR | 7,85 | 4,25% | 11,51% | 11,82% | 24,60% | 56,06% | 53,02% |
MARL | 130,50 | 38,00% | -2,97% | -8,74% | -15,81% | 3,98% | 7,85% |
OSSRu | 184,00 | 0,55% | -6,12% | -9,80% | -10,02% | -1,87% | -0,54% |
Reginn | 10,55 | 0,96% | 2,43% | 26,65% | 0,00% | 28,66% | 28,66% |
OMXI6ISK | 990,10 | 1,23% | -0,54% | -2,51% | -5,83% | 8,84% | 10,02% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 19. nóv. 2012)
Erlend hlutabréf héldu áfram að lækka í verði í liðinni viku. MSCI heimsvísitalan lækkaði um 1,78%, bandaríska S&P 500 vísitalan um 1,45% og DAX í Þýskalandi um 2,97%. Einungis ein af viðmiðunarvísitölunum sem við styðjumst við hækkaði en það var Nikkei vísitalan í Japan sem hækkaði um 3,04%.
Ástæður fyrir lækkununum voru meðal annars fjölgun fólks á atvinnuleysisbótum í Bandaríkjunum og minnkandi hagvöxtur í Evrópu. Fleiri Bandaríkjamenn sóttu um atvinnuleysisbætur en spár sögðu til um eða 439.000 sem er 78.000 fleiri en vikuna þar á undan.
Á evrusvæðinu varð 0,1% samdráttur í landsframleiðslu á þriðja ársfjórðungi og svæðið því komið í kreppu á ný í annað skipti á fjórum árum en 0,2% samdráttur var á svæðinu á öðrum ársfjórðungi.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1253,31 | -1,78% | -5,22% | -2,86% | 6,35% | 5,98% | 8,28% |
Þýskaland (DAX) | 6950,53 | -2,97% | -4,86% | -0,27% | 11,97% | 19,05% | 21,06% |
Bretland (FTSE) | 5605,59 | -2,84% | -4,11% | -3,39% | 7,33% | 1,47% | 5,43% |
Frakkland (CAC) | 3341,52 | -2,40% | -3,66% | -3,21% | 12,25% | 6,85% | 12,66% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 12588,31 | -1,77% | -5,66% | -5,17% | 1,77% | 3,03% | 6,72% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 2853,13 | -1,78% | -5,07% | -7,26% | 2,68% | 9,52% | 10,91% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1359,88 | -1,45% | -5,12% | -4,11% | 4,99% | 8,13% | 11,86% |
Japan (Nikkei) | 9024,16 | 3,04% | 1,67% | -0,10% | 6,29% | 8,25% | 9,29% |
Samnorræn (VINX) | 95,80 | -2,91% | -3,37% | -5,46% | 12,44% | 10,49% | 16,40% |
Svíþjóð (OMXS30) | 1027,04 | -2,39% | -2,50% | -4,89% | 8,58% | 5,08% | 10,28% |
Noregur (OBX) | 400,05 | -1,22% | -3,56% | -1,45% | 12,28% | 12,55% | 14,86% |
Finnland (OMXH25) | 1999,77 | -2,43% | -1,64% | -1,00% | 8,96% | 4,58% | 6,99% |
Danmörk (OMXC20) | 475,70 | -2,87% | -5,19% | -3,12% | 8,63% | 22,70% | 27,98% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 19. nóv 2012)
Lítil breyting var á gengi krónu í sl. viku. Gengisvísitala krónunnar lækkaði um 0,14% og endaði í 226,77 stigum. Krónan veiktist um 0,05% gagnvart dollara og um 0,15% gagnvart evru.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækkaði vexti bankans um 0,25 prósentur 14. nóvember sl. Sú vaxtahækkun var í takt við væntingar flestra markaðsaðila. Í yfirlýsingu með vaxtaákvörðuninni kemur fram að eftir því sem slakinn hverfi úr þjóðarbúskapnum sé nauðsynlegt að slaki peningastefnunnar hverfi einnig.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 226,77 | -0,14% | 2,99% | 9,62% | 1,20% | 4,37% | 5,78% |
(Gengisvísitala krónunnar, Seðlabankinn, 19. nóv 2012)
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.