Vikulega birta Íslensk verðbréf samantekt um þróun helstu eignaflokka undanfarna viku. Smelltu hér ef þú vilt skrá þig á listann.
Löng verðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,36% og millilöng verðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,42%. Löng óverðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,07% og millilöng óverðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,86%.
Föstudaginn 28. september birti Lánamál ríkisins útgáfuáætlun ríkisbréfa fyrir fjórða ársfjórðung. Áætlunin hljóðar upp á sölu ríkisbréfa fyrir 7-12 milljarða króna. Áformað er að bjóða út RIKB 14 0314, RIKB 22 1026 og RIKB 31 0124. Sölur í RIKS 33 0321 í gjaldeyrisútboðum Seðlabanka Íslands dragast frá áætlaðri sölu ríkisbréfa og ríkisvíxla í almennum útboðum.
OMXI6ISK vísitalan lækkaði í vikunni um 1%. Mest hækkuðu bréf BankNordik um 4,76%. Mest lækkuðu bréf Marels, um 3,9%
Heildarvelta á OMXI6ISK var um 1.581 milljón króna. Mest voru viðskipti með bréf Haga, fyrir ríflega 822 milljónir króna.
Icelandair birti tilkynningu þar sem áætlað er að auka framboð í millilandaflugi um 15% á næsta ári og gert er ráð fyrir að farþegar félagsins verði hátt í 2,3 milljónir. Samkvæmt áætlunum fyrir 2012 verða farþegar ríflega 2 milljónir. Tveim Boeing 757 flugvélum verður bætt við flotann og verða því alls 18 slíkar í áætlunarflugi næsta sumar.
Stjórn Haga sendi frá sér jákvæða afkomuviðvörun í vikunni. Samkvæmt drögum að 6 mánaða uppgjöri félagsins, sem verður birt 25. október, þá er ljóst að afkoma eftir skatta fyrir tímabilið mars-ágúst 2012 verði í kringum 1,5 milljarðar króna sem er betri afkoma en á sama tímabili 2011. Ástæður eru lægra kostnaðarhlutfall, betri framlegð og lægri afskriftir.
Þá var einnig tilkynnt að náðst hefði hagstæðari vaxtakjör á lán félagsins. Þetta gæti þýtt 70 milljón króna lægri vaxtagreiðslur á ársgrundvelli.
Gengi Haga hækkaði um tæp 3% í vikunni.
Fasteignafélagið Reginn lauk í vikunni fyrsta áfanga í endurfjármögnun félagsins þegar það tryggði sér endurfjármögnun á Egilshöll að fjárhæð 5,5 milljarðar króna. Fjármögnunin er verðtryggð til 10 ára og ber 3,85% fasta vexti. Lánveitandi er REG 1 fagfjárfestasjóður Stefnis hf. Áætlaður ávinningur vegna lægri vaxta er um 60 milljónir króna á ársgrundvelli.
Félagið hækkaði í kjölfarið um rúm 2%.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 66,00 | 4,76% | -2,94% | -12,00% | -14,84% | -18,52% | -8,33% |
HAGA | 19,25 | 2,94% | 6,94% | 4,05% | 6,06% | 17,74% | 20,69% |
ICEAIR | 7,13 | 1,42% | 0,00% | 7,87% | 16,89% | 41,75% | 25,09% |
MARL | 135,00 | -3,91% | -2,53% | -11,18% | -9,09% | 7,57% | 14,89% |
OSSRu | 197,50 | -0,75% | -0,75% | -8,14% | -3,19% | 6,76% | 1,80% |
Reginn | 9,77 | 2,20% | 14,94% | 0,00% | 0,00% | 19,15% | 19,15% |
OMXI6ISK | 999,01 | -1,01% | 0,47% | -5,48% | -3,98% | 9,82% | 12,08% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 1. október 2012)
Í vikunni lækkuðu allar viðmiðunarvísitölur okkar. Heimsvísitalan MSCI lækkaði um 1,85%, DAX í Þýskalandi um 3,16%, S&P500 í Bandaríkjunum um 1,30% og Nikkei í Japan lækkaði um 1,93%.
Hörð mótmæli voru á Spáni og Grikklandi. Stjórnvöld í Grikklandi þurfa að skera niður ríkisútgjöld um 12 milljarða evra til að uppfylla forsendur frekari neyðarlána og felst niðurskurðurinn í hækkun eftirlaunaaldurs og skerðingu lífeyris. Ávöxtunarkrafa á 10 ára ríkisskuldabréf Spænska ríkisins fór upp fyrir 6% og er óttast að Spánn verði næsta ríki sem þurfi á neyðarláni að halda.
Fréttir úr öðrum heimsálfum voru einnig í neikvæðari kantinum, en í Bandaríkjunum mældist hagvöxtur á öðrum ársfjórðungi 1,3% en reiknað hafði verið með 1,7% hagvexti í þessu stærsta hagkerfi heims.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1311,5 | -1,85% | 2,52% | 6,13% | -0,04% | 10,90% | 18,79% |
Þýskaland (DAX) | 7216,15 | -3,16% | 4,69% | 13,74% | 5,05% | 23,73% | 32,64% |
Bretland (FTSE) | 5742,07 | -1,86% | 1,39% | 3,95% | 0,39% | 3,93% | 12,92% |
Frakkland (CAC) | 3354,82 | -4,66% | -0,68% | 6,04% | -0,99% | 7,28% | 13,68% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 13437,13 | -1,05% | 2,65% | 4,32% | 1,70% | 9,98% | 23,13% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 3116,23 | -1,99% | 1,61% | 6,17% | 0,80% | 19,62% | 29,01% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1440,67 | -1,30% | 2,42% | 5,76% | 2,29% | 14,56% | 27,33% |
Japan (Nikkei) | 8870,16 | -1,93% | -0,49% | -2,33% | -12,76% | 4,03% | 1,11% |
Samnorræn (VINX) | 100,2037 | -1,52% | 1,98% | 10,32% | 2,92% | 15,00% | 27,53% |
Svíþjóð (OMXS30) | 1072,45 | -2,49% | 3,29% | 5,81% | 0,35% | 9,15% | 18,47% |
Noregur (OBX) | 415,42 | -2,51% | 3,24% | 11,15% | 5,84% | 16,73% | 29,27% |
Finnland (HEX25) | 2036,208 | -2,67% | 2,43% | 9,18% | -7,50% | 5,22% | 10,27% |
Danmörk (KFX) | 493,218 | -1,14% | 1,25% | 11,26% | 11,60% | 27,27% | 41,65% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Bloomberg, 1. október 2012)
Litlar breytingar voru á gengi krónunnar í vikunni. Gengisvísitalan var nánast óbreytt og endaði í 221.30 stigum. Krónan veiktist um 0,4% gagnvart dollara en styrktist um 0,2% gagnvart evru.
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,76% á milli mánaða og er september gildi vísitölunnar 399,6 stig. Mest áhrif til hækkunar höfðu verð á fatnaði og eldsneyti. Vísitala neysluverðs hefur þá hækkað um 4,3% síðustu 12 mánuði.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 221,30 | 0,02% | 4,31% | 1,28% | -4,05% | 1,85% | 2,67% |
(Gengisvísitala krónunnar, Seðlabankinn, 1. október 2012)
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.