Vikulega birta Íslensk verðbréf samantekt um þróun helstu eignaflokka undanfarna viku. Smelltu hér ef þú vilt skrá þig á listann.
Löng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,63% og millilöng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,51%. Löng óverðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,84% og millilöng óverðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,53%.
Óvæntar verðbólgutölur sem Hagstofa Íslands birti miðvikudaginn 27. júní urðu þess valdandi að verðtryggð bréf hækkuðu í verði í vikunni á meðan óverðtryggð bréf lækkuðu.
Lánamál ríkisins hafa birt áætlun um útgáfu ríkisbréfa á þriðja ársfjórðungi 2012. Heildarútgáfa ríkisbréfa á fjórðungnum er áætluð 5-20 ma.kr. og verður hún í þremur flokkum: RIKB 14 0314, RIKB 16 1013 og RIKB 22 1026.
Íbúðalánasjóður hefur endurskoðað áætlun sína um útgáfu íbúðabréfa á árinu. Þar sem engin útgáfa var á öðrum ársfjórðungi hefur sjóðurinn lækkað áætlun sína sem því nemur. Heildarútgáfa íbúðabréfa er nú áætluð 20-25 ma.kr. en það er lækkun um 10 ma.kr. frá fyrri áætlun.
OMXI6ISK vísitalan hækkaði í síðustu viku um 1,47%. Mest hækkuðu bréf Haga, um 2,78%. Mesta lækkun var hjá Atlantic Petroleum í síðustu viku félagsins í vísitölunni og nam lækkunin 7,55%.
Heildarvelta á OMXI6ISK var rúmir 5 milljarðar króna. Mest voru viðskipti með bréf Icelandair fyrir um 3,8 milljarða króna en stærsti hluti veltunnar er vegna sölu Íslandsbanka á ríflega 10% hlut í félaginu.
Hagar birtu í síðustu viku uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung rekstrarársins 2012/13. Uppgjörið var í takt við væntingar. Vörusala nam 17.364 milljónum króna sem er aukning um 5,2% á milli ára. EBITDA nam 1.137 milljónum króna og hagnaður var 628 milljónir króna eða 3,6% af veltu.
Í síðustu viku juku Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 við sig 18.000.000 hluta í Högum og eru því komnir með eign upp á 10,82% í félaginu.
Í dag hefjast viðskipti með fasteignafélagið Reginn í kauphöllinni og í framhaldinu er félagið komið inn í úrvalsvísitöluna ásamt BankNordik, Högum, Icelandair, Marel og Össur.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 75,00 | 0,00% | 0,00% | -3,23% | -7,41% | -7,41% | -39,02% |
FO-ATLA | 153,00 | -7,55% | -7,55% | -12,57% | 0,00% | 0,00% | -15,00% |
HAGA | 18,50 | 2,78% | 0,27% | 1,93% | 13,15% | 13,15% | 15,99% |
ICEAIR | 6,61 | 2,48% | 0,76% | 8,36% | 31,41% | 31,41% | 32,46% |
MARL | 152,00 | 1,00% | -2,56% | 2,36% | 21,12% | 21,12% | 24,08% |
OSSRu | 215,00 | 2,38% | 3,37% | 5,39% | 16,22% | 16,22% | 10,26% |
OMXI6ISK | 1056,97 | 1,47% | -0,81% | 1,59% | 16,19% | 16,16% | 10,54% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 2. júlí 2012)
Erlend hlutabréf hækkuðu töluvert í liðinni viku og hækkuðu allar erlendar viðmiðunarvísitölur sem við styðjumst við. Heimsvísitalan MSCI hækkaði um 2,49%, CAC í Frakklandi um 3,42% en mest hækkaði norska vísitalan OBX eða um 5,86%.
Á föstudaginn samþykktu leiðtogar Evrópusambandsríkjanna björgunarpakka sem á að aðstoða skuldsett evruríki og hækkuðu markaðir mikið í kjölfarið.
Auk þess var samþykkt að bankar í löndum eins og Spáni og Ítalíu geti nú fengið lán úr sérstökum neyðarsjóði án skilyrða um hertari aðhaldsaðgerðir í efnahagsstjórn þeirra landa sem bankarnir eru í. Þá var ákveðið að stofna sameiginlegt eftirlitskerfi með bönkum á evrusvæðinu.
Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabanka Evrópu er fimmtudaginn 5. júlí en stýrivextir á evrusvæðinu eru nú 1% og hafa aldrei verið lægri.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1235,72 | 2,49% | 7,18% | -6,69% | 4,19% | 4,49% | -8,04% |
Þýskaland (DAX) | 6416,28 | 2,44% | 7,22% | -8,07% | 6,78% | 9,98% | -12,56% |
Bretland (FTSE) | 5571,15 | 1,04% | 6,72% | -4,45% | 0,74% | 0,74% | -6,28% |
Frakkland (CAC) | 3196,65 | 3,42% | 9,76% | -6,48% | 0,50% | 2,49% | -19,19% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 12880,09 | 1,89% | 6,28% | -2,90% | 5,42% | 5,42% | 2,36% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 2935,05 | 1,47% | 6,83% | -5,92% | 12,66% | 12,66% | 4,23% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1362,16 | 2,03% | 6,58% | -4,01% | 8,31% | 8,31% | 1,68% |
Japan (Nikkei) | 9006,78 | 2,37% | 6,67% | -10,94% | 6,48% | 6,48% | -8,76% |
Samnorræn (VINX) | 91,20 | 1,67% | 8,43% | -7,32% | 3,77% | 5,31% | -7,60% |
Svíþjóð (OMXS30) | 1019,06 | 0,91% | 7,51% | -5,33% | 2,91% | 4,12% | -8,01% |
Noregur (OBX) | 375,55 | 5,86% | 9,26% | -4,90% | 4,78% | 6,02% | -3,09% |
Finnland (HEX25) | 1871,67 | 0,22% | 6,62% | -14,00% | -4,37% | -1,95% | -20,98% |
Danmörk (KFX) | 446,04 | 1,69% | 6,91% | -2,31% | 12,70% | 15,06% | 2,87% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Bloomberg, 2. júlí 2012)
Gengisvísitala krónunnar lækkaði um 0,05% í vikunni og endaði í 218,57 stigum. Krónan styrktist um 0,22% gagnvart Bandaríkjadal en veiktist um 0,06% gagnvart evru.
Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júní er 400,1 stig og hækkaði um 0,50% milli mánaða. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 380,7 stig og hækkaði um 0,61% frá maí. Hækkun vísitölunnar var langt umfram væntingar á markaði sem voru engin eða lítilsháttar hækkun í mánuðinum. Tólf mánaða verðbólga er því óbreytt, 5,4%.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 218,57 | -0,05% | -2,92% | -5,19% | 0,35% | 0,59% | -0,75% |
(Gengisvísitala krónunnar, Seðlabankinn, 2. júlí 2012)
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Sveinn Torfi Pálsson, forstöðumaður eignastýringar.