Vikulega birta Íslensk verðbréf samantekt um þróun helstu eignaflokka undanfarna viku. Smelltu hér ef þú vilt skrá þig á listann.
Löng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,02% en millilöng verðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,47%. Löng óverðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,65% og millilöng óverðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,62%.
Verðhjöðnun neysluverðsvísitölunnar í júlí var umfram væntingar markaðsaðila og hafði það jákvæð áhrif á óverðtryggð bréf. Krónan hefur styrkst mikið í sumar og ætti sú styrkingar að skila sér í vöruverði á næstu mánuðum og þar með hafa dempandi áhrif á verðbólguna í haust.
OMXI6ISK vísitalan lækkaði mikið í vikunni eða um 4,05%. Mest lækkuðu bréf Marels, um 7,44%. Eina félagið sem hækkað var Reginn og nam hækkunin 0,48% og Bank Nordik stóð í stað.
Félög í vísitölu eru byrjuð að skila inn uppgjörum fyrir annan ársfjórðung.
Uppgjör Marels var undir væntingum en félagið skilaði þó um milljarði í hagnað (7 milljónir evra). Það er töluverð aukning frá sama tíma í fyrra þegar hagnaðurinn nam 200 þúsund evrum. Rekstarhagnaður var 6,5% af veltu á öðrum ársfjórðungi en markmið félagsins er 10-12% á ári. Fyrstu 6 mánuði ársins var rekstrahagnaður 9% af veltu en félagið ætlar að halda markmiðum sínum óbreyttum. Uppgjör Marels hafði slæm áhrif á markaðinn og lækkaði félagið um 5% við fyrstu viðskipti eftir uppgjör.
Hagnaður Össurar var 1,2 milljarðar króna (10 milljónir Bandaríkjadollara) á öðrum ársfjórðungi. Uppgjörið var aðeins undir væntingum og skýrist það helst á samdrætti í sölu í Bandaríkjunum sem er þó vonandi tímabundinn. Ástæðan fyrir því er aukið eftirlit hjá endurgreiðsluaðilum sem gerir viðskiptavini varkárari, en Össur selur vörur í hæsta tæknistigi sem gerir hana í dýrari kantinum.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 70,00 | 0,00% | -6,67% | -9,09% | -7,89% | -13,58% | -33,96% |
HAGA | 18,00 | -1,10% | -2,70% | -4,51% | 6,82% | 10,09% | 12,82% |
ICEAIR | 6,67 | -0,45% | 0,91% | 5,21% | 30,78% | 32,60% | 34,75% |
MARL | 143,00 | -7,44% | -5,92% | -10,90% | 2,51% | 13,94% | 12,16% |
OSSRu | 204,00 | -2,39% | -5,12% | -4,67% | 7,37% | 10,27% | 0,99% |
Reginn | 8,34 | 0,48% | 0,00% | 0,00% | 0,00% | 1,71% | 1,71% |
OMXI6ISK | 1009,48 | -4,05% | -4,49% | -7,45% | 4,96% | 10,97% | 2,33% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 30. júlí 2012)
Heimsvísitalan MSCI hækkaði um 1,54% í vikunni. Spænska IBEX 35 vístalan hækkaði um 5,94%, franska CAC 40 vísitalan hækkaði um 2,70% og bandaríska S&P 500 vísitalan um 1,72%. Japanska Nikkei 225 vísitalan lækkaði aftur á móti um 1,19%.
Markaðir víðs vegar um heim hækkuðu verulega á fimmtudag og föstudag eftir yfirlýsingar Mario Draghi, bankastjóra Evrópska Seðlabankans, um að seðlabankinn myndi gera allt sem í hans valdi stæði til að bjarga evrunni.
Bandarískum fyrirtækjum reynist erfitt að standa undir væntingum á markaði. Apple og Facebook skiluðu bæði lakara uppgjöri en greiningaraðilar höfðu spáð. Af þeim 265 fyrirtækjum í S&P 500 vísitölunni sem birt höfðu uppgjör í lok síðustu viku hafði ársfjórðungslegur hagnaður aukist um 3,3% frá fyrra ári. Greiningaraðilar eiga nú von á að heildarhagnaður S&P 500 fyrirtækja á næsta ársfjórðungi muni dragast saman um 1,6% frá fyrra ári.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1227,82 | 1,54% | 1,16% | -3,40% | 0,90% | 5,70% | -4,29% |
Þýskaland (DAX) | 6689,40 | 0,90% | 5,21% | -0,16% | 4,75% | 14,44% | -5,71% |
Bretland (FTSE) | 5627,21 | -0,39% | 1,99% | -0,97% | 0,19% | 1,97% | -2,29% |
Frakkland (CAC) | 3280,19 | 2,70% | 3,33% | 2,81% | 1,14% | 4,53% | -10,03% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 13075,66 | 1,97% | 1,71% | -0,86% | 3,53% | 7,23% | 7,88% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 2958,09 | 1,13% | 1,07% | -2,62% | 5,49% | 13,87% | 7,62% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1385,97 | 1,72% | 1,75% | -0,85% | 5,56% | 10,21% | 7,26% |
Japan (Nikkei) | 8566,64 | -1,19% | -4,12% | -9,30% | -1,79% | 2,13% | -12,18% |
Samnorræn (VINX) | 97,30 | 1,20% | 8,33% | 3,14% | 7,96% | 12,91% | 4,19% |
Svíþjóð (OMXS30) | 1059,75 | 1,75% | 4,52% | 0,52% | 3,57% | 7,82% | -0,08% |
Noregur (OBX) | 394,47 | 0,33% | 5,31% | 1,61% | 8,82% | 10,60% | 3,10% |
Finnland (HEX25) | 1937,04 | 3,18% | 5,01% | -5,86% | -4,95% | 1,20% | -10,05% |
Danmörk (KFX) | 482,98 | 2,07% | 8,54% | 5,53% | 20,54% | 24,15% | 15,12% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Bloomberg, 30. júlí 2012)
Gengisvísitala krónunnar lækkaði um 1,61% í vikunni og endaði í 210,55 stigum. Krónan styrktist um 1,85% gagnvart bandaríkjadal og um 1,51% gagnvart evru.
Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,72% í júli, og var sú lækkun með mesta móti miðað við væntingar markaðsaðila. Tólf mánaða verðbólga lækkar þar með úr 5,4% í júní í 4,6%. Þeir undirliðir vísitölunnar sem höfðu mest áhrif til lækkunar voru verð á bensíni, olíu, flugfargjöldum til útlanda og rekstur ökuktækja.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 210,55 | -1,61% | -3,65% | -7,65% | -5,05% | -3,10% | -5,03% |
(Gengisvísitala krónunnar, Seðlabankinn, 30. júlí 2012)
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Sveinn Torfi Pálsson, forstöðumaður eignastýringar.