Vikulega birta Íslensk verðbréf samantekt um þróun helstu eignaflokka undanfarna viku. Smelltu hér ef þú vilt skrá þig á listann.
Ríkisskuldabréf hækkuðu í verði, sérstaklega óverðtryggð bréf og því lítur út fyrir að dregið hafi úr verðbólguótta fjárfesta. Jafnframt hafði ákvörðun Peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um að halda stýrivöxtum óbreyttum góð áhrif á markaðinn.
Löng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,43% og millilöng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,66%. Löng óverðtryggð skuldabréf hækkuðu um 3,15% og millilöng óverðtryggð skuldabréf hækkuðu um 1,64%.
Hagstofan mun birta vísitölu neysluverðs miðað við verðlag í september miðvikudaginn 28. september. Reikna má með að þær upplýsingar muni hafa mikil áhrif á markaðinn í þessari viku. Við gerum ráð fyrir 0,5-0,6% hækkun frá síðustu mælingu.
OMXI6ISK vísitalan lækkaði um 2,96% og var það í takt við miklar lækkanir á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum. Eina félagið sem hækkaði var Icelandair, um 2,1%. Mest lækkuðu bréf í Marel, um 3,83%.
Veltan á OMXI6ISK nam um 283 milljónum króna. Mest viðskipti voru með bréf í Marel, fyrir um 136 milljónir króna.
Matsfyrirtækið Moody´s tilkynnti í síðustu viku um lækkun á einkunn á innstæðum hjá BankNordik úr Baa2/Prime-2 í Baa3/Prime-3. Horfur á öllum einkunnum eru neikvæðar. Breytingin mun ekki hafa áhrif á fjármögnun bankans sem Moody‘s telur sterka.
Gengi bréfa BankNordik var 8,5% lægra í kauphöllinni í Kaupmannahöfn en hér heima í lok vikunnar.
Gengi bréfa Bank Nordik hefur lækkað um rúm 42% frá áramótum í kauphöllinni hér heima en í kringum 48% í kauphöllinni í Kaupmannahöfn.
Engin viðskiptavakt er með bréf BankNordik í kauphöllinni hér heima og því lítið um viðskipti með bréf félagsins. Til að mynda hafa engin tilboð sést í kauphöllinni það sem af er degi.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 82,00 | -2,38% | -8,89% | -33,33% | -33,87% | -42,25% | -40,58% |
FO-AIR | 106,00 | 0,00% | 0,00% | -0,93% | -7,02% | -8,62% | -10,92% |
FO-ATLA | 133,00 | -2,21% | -5,34% | -32,14% | -38,00% | -38,85% | -17,13% |
ICEAIR | 5,40 | 2,08% | 1,69% | 8,43% | 22,17% | 71,43% | 54,29% |
MARL | 113,00 | -3,83% | -7,00% | -7,76% | -9,96% | 13,00% | 24,18% |
OSSRu | 185,50 | -2,37% | -5,36% | -4,63% | -5,36% | -8,62% | -14,91% |
OMXI6ISK | 868,57 | -2,96% | -6,28% | -9,46% | -12,15% | -6,98% | -9,88% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 26. september 2011)
Mikil ólga var á erlendum hlutabréfamörkuðum í vikunni og lækkuðu bréfin töluvert. Heimsvísitalan MSCI lækkaði um 6,87%, DAX í Þýskalandi um 6,76%, CAC í Frakklandi um 7,08%og S&P 500 í Bandaríkjunum lækkaði um 6,52%. Eins og oft áður er það skuldavandinn sem keyrir markaðinn niður og þó aðallega vandi Ítalíu og Grikklands.
Matsfyrirtækið Standard og Poor´s lækkaði lánshæfi Ítalska ríkisins úr A+ í A og telur að framtíðarhorfur séu neikvæðar. Standard og Poor´s telur að það verði erfitt fyrir Ítalska ríkið að skera niður og ná tökum á ríkisfjármálum.
Eftir lækkun Standard og Poor´s á lánshæfi Ítalska ríkisins vildu fjárfestar fá hærri ávöxtunarkröfu á ríkisskuldabréf landsins en Seðlabanki Evrópu greip inn í og keypti ríkisskuldabréf til þess að halda ávöxtunarkröfunni niðri. Seðlabanki Evrópu hefur verið að kaupa Spænsk og Ítölsk ríkisskuldabréf til þess að halda niðri lántökukostnaði þessara ríkja.
Miklar sveiflur hafa verið á hrávörunni á þessu ári, gull hefur hækkað um 14,09% en ál hefur lækkað um 10,69% og olían um 15,14%.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1094,92 | -6,87% | -5,86% | -14,15% | -17,42% | -14,46% | -7,45% |
Þýskaland (DAX) | 5196,56 | -6,76% | -4,09% | -25,42% | -23,54% | -23,19% | -15,68% |
Bretland (FTSE) | 5066,81 | -5,59% | -0,79% | -10,68% | -13,75% | -13,74% | -9,09% |
Frakkland (CAC) | 2810,11 | -7,08% | -7,12% | -24,23% | -27,80% | -24,62% | -24,18% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 10771,48 | -6,41% | -4,55% | -9,75% | -11,86% | -6,96% | -0,82% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 2483,23 | -5,29% | 0,14% | -6,40% | -9,47% | -6,39% | 4,28% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1136,43 | -6,52% | -3,43% | -10,41% | -13,50% | -9,64% | -1,07% |
Japan (Nikkei) | 8560,26 | -1,25% | -4,11% | -12,74% | -11,38% | -18,13% | -12,46% |
Samnorræn (VINX) | 75,63 | -7,76% | -4,02% | -18,19% | -26,56% | -27,95% | -20,35% |
Svíþjóð (OMXS30) | 862,35 | -6,99% | -3,28% | -17,11% | -22,40% | -24,31% | -20,17% |
Noregur (OBX) | 316,82 | -7,00% | -4,81% | -13,79% | -22,52% | -20,86% | -8,98% |
Finnland (OMXH25) | 1771,61 | -8,91% | -4,84% | -20,57% | -31,23% | -31,52% | -24,44% |
Danmörk (OMXC20) | 338,73 | -2,55% | 2,09% | -17,25% | -25,16% | -24,78% | -17,91% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Bloomberg, 26. september 2011)
Gengisvísitalan lækkaði um 0,63% og endaði í 214,12 stigum. Af helstu myntum þá lækkaði Kanadadalur mest í verði gagnvart krónu, um 2,84% og norska krónan um 2,63%. Þar spilar eflaust lækkun á hrávörum mikið inn í. Japanskt jen og Bandaríkjadalur hækkuðu hinsvegar mest í verði gagnvart krónu, um 2,69% og 2,01%.
Þrátt fyrir að vöxtum hafi verið haldið óbreyttum í vikunni, þá styrktist krónan, en ýmsir aðilar á markaði væntu þess að Seðlabanki Íslands myndi hækka vexti. Mjög óljóst er hve mikil áhrif vextir hafa á gengi krónunnar sem er í viðjum strangra gjaldeyrishafta.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 214,12 | -0,63% | -2,08% | -2,83% | -0,91% | 2,92% | 3,38% |
(Gengisvísitala krónunnar, Bloomberg, 26. september 2011)
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.