Vikulega birta Íslensk verðbréf samantekt um þróun helstu eignaflokka undanfarna viku. Smelltu hér ef þú vilt skrá þig á listann.
Löng verðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,29% en millilöng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,12%. Löng óverðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,78% og millilöng óverðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,22%.
Fjárfestar voru því að færa sig úr löngum verðtryggðum bréfum og yfir í óverðtryggð skuldabréf . Það kann þó að hafa haft áhrif að Íbúðalánasjóður var með útboð á föstudaginn. Það gerist iðulega að skuldabréf eru seld rétt fyrir útboð, að því virðist með þeim eina tilgangi að fá bréf í útboðinu á lægra verði.
Á föstudaginn var útboð hjá Íbúðalánasjóði. Eingöngu var tekið tilboðum í lengri flokkana, HFF34 og HFF44, fyrir um 6,15 milljarða. Á sama tíma var Lánasjóður sveitarfélaga með útboð í LSS150224 og tóku þeir tilboðum fyrir 255 m.kr. að nv. Fjárfestar keyptu því verðtryggð skuldabréf í þessum útboðum fyrir um 6,4 milljarða.
OMXI6ISK vísitalan hækkaði um 2,62% í síðustu viku. Mest hækkuðu bréf Icelandair, um 5,56%. Mesta lækkun var í bréfum BankNordik, eða um 12,2%.
Veltan á OMXI6ISK í síðustu viku nam um 520 m.kr. sem er talsvert meira en undanfarnar vikur. Sem fyrr var mest velta með bréf í Marel og Icelandair sem saman voru með nærri 87% af veltu vikunnar.
Veltan var ríflega 1,5 ma.kr. í september sem er um 500 m.kr. minna en í ágúst.
Gengi Össurar endaði vikuna hér heima í kringum 13% hærra en í kauphöllinni í Kaupmannahöfn.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 72,00 | -12,20% | -20,00% | -41,46% | -44,62% | -49,30% | -48,57% |
FO-AIR | 106,00 | 0,00% | 0,00% | -0,93% | -7,02% | -8,62% | -10,92% |
FO-ATLA | 132,00 | -0,75% | -5,38% | -26,67% | -38,75% | -39,31% | -17,76% |
ICEAIR | 5,70 | 5,56% | 5,75% | 14,23% | 26,11% | 80,95% | 62,86% |
MARL | 117,50 | 3,98% | -4,47% | -4,08% | -8,56% | 17,50% | 29,12% |
OSSRu | 194,00 | 4,58% | -0,77% | -0,51% | 0,52% | -4,43% | -10,60% |
OMXI6ISK | 891,35 | 2,62% | -4,19% | -6,78% | -10,94% | -4,54% | -3,90% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 3. október 2011)
Miklar sveiflur einkenndu hlutabréfamarkaði í liðinni viku. Hlutabréfaverð hækkaði töluvert í Evrópu og hækkaði DAX í Þýskalandi til að mynda um 5,88% og CAC í Frakklandi um 6,12%. Heimshlutabréfavísitalan MSCI hækkaði um 0,83% en S&P 500 í Bandaríkjunum lækkaði hins vegar um 0,44%.
Vikan byrjaði vel þegar fréttir bárust af því að nýr björgunarpakki væri í undirbúningi í Evrópu. Samkvæmt honum verður björgunarsjóður evrusvæðisins stækkaður úr 250 í 440 ma. evra. Öll evruríkin sautján verða þó að samþykkja stækkunina.
Markaðir hækkuðu mikið í kjölfarið en lækkuðu á ný í lok vikunnar meðal annars vegna nýrra verðbólgutalna á evrusvæðinu sem sýndu vaxandi verðbólgu. Verðbólga síðustu 12 mánuði mælist nú 3% en verðbólgumarkmið Seðlabanka Evrópu er 2%.
Hlutabréfaverð lækkaði mikið á þriðja ársfjórðungi þessa árs vegna ótta fjárfesta við að skuldavandi margra Evrópuríkja muni leiða til nýrrar heimskreppu. Hlutabréfavísitölur í Þýskalandi, Frakklandi og Finnlandi hafa allar lækkað yfir 22% á þriðja ársfjórðungi.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1104,06 | 0,83% | -6,06% | -17,84% | -17,70% | -13,75% | -6,77% |
Þýskaland (DAX) | 5502,02 | 5,88% | -3,95% | -28,30% | -25,91% | -23,07% | -14,36% |
Bretland (FTSE) | 5128,48 | 1,22% | -5,51% | -16,52% | -16,80% | -15,25% | -10,59% |
Frakkland (CAC) | 2981,96 | 6,12% | -8,00% | -27,72% | -28,56% | -23,87% | -21,55% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 10913,38 | 1,32% | -2,91% | -13,27% | -11,82% | -5,74% | 0,77% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 2415,40 | -2,73% | -2,62% | -14,23% | -13,41% | -8,95% | 1,88% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1131,42 | -0,44% | -3,62% | -15,54% | -15,08% | -10,04% | -1,29% |
Japan (Nikkei) | 8700,29 | 1,64% | -4,53% | -13,40% | -11,98% | -16,46% | -9,13% |
Samnorræn (VINX) | 78,90 | 4,32% | -6,41% | -22,08% | -26,96% | -26,87% | -18,46% |
Svíþjóð (OMXS30) | 910,17 | 5,55% | -4,29% | -20,21% | -22,13% | -22,80% | -17,58% |
Noregur (OBX) | 322,92 | 1,93% | -7,95% | -19,68% | -24,20% | -21,53% | -10,65% |
Finnland (OMXH25) | 1853,21 | 4,61% | -7,17% | -24,13% | -31,24% | -30,44% | -24,46% |
Danmörk (OMXC20) | 350,34 | 3,43% | -0,85% | -20,03% | -25,65% | -23,77% | -15,36% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Bloomberg, 3. október 2011)
Gengisvísitalan hækkaði um 0,22% og endaði í 214,60 stigum. Raungengi krónunnar er enn mjög lágt sögulega, sem endurspeglast í því að samkeppnishæfni innlendra fyrirtækja er góð á þann mælikvarða.
Hins vegar mun mikil innlend verðbólga, að því gefnu að hún sé hærri en í helstu viðskiptalöndum, hækka raungengið og draga þannig úr góðri samkeppnisstöðu. Það hefur gerst undanfarin misseri, samfara mikilli verðbólgu í kjölfar hruns á gengi krónunnar. Sé horft á raungengi er mikilvægt að draga úr verðbólgu og að umgjörð, eignarhald og skuldsetning innlends atvinnulífs sé með þeim hætti að það geti sótt fram í samkeppni við erlenda aðila.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 214,60 | 0,22% | -2,11% | -2,49% | -0,76% | 3,15% | 3,61% |
(Gengisvísitala krónunnar, Bloomberg, 3. október 2011)
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.