Vikulega birta Íslensk verðbréf samantekt um þróun helstu eignaflokka undanfarna viku. Smelltu hér ef þú vilt skrá þig á listann.
Löng verðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,14% en millilöng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,14%. Löng óverðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,33%, en millilöng óverðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,24%.
Markaðsaðilar voru því frekar rólegir í vikunni. Það er farið að styttast í næstu mikilvægu tölur, þann 27. okt. er tilkynnt um breytingu á vísitölu neysluverðs og þann 2. nóv. er stýrivaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Ekki er ólíklegt að fjárfestar bíði eftir þessum ákvörðunum áður en næstu skref verða tekin.
Á fimmtudaginn voru Lánamál ríkisins með ríkisvíxlaútboð og voru boðnir þriggja og sex mánaða víxlar. Mikil eftirspurn var í útboðinu en alls bárust tilboð upp á tæpa 28,5 milljarða að nafnverði og var tilboðum tekið fyrir rétt rúma 24,2 milljarða að nafnverði.
OMXI6ISK vísitalan lækkaði um 1,43% í síðustu viku. Marel var eina félagið sem hækkaði, um 0,43%. Mesta lækkun var hjá færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum og nam hún 16,29 %.
Veltan á OMXI6ISK í síðustu viku nam einungis 145 m.kr. og er þetta ríflega helmingi minni velta en í vikunni á undan. Icelandair og Marel voru sem fyrr með stærsta hluta veltunnar, ríflega 58%.
Nú styttist í 9 mánaða uppgjör hjá félögum í vísitölunni, Marel birtir fyrst félaga þann 26.október.
Atlantic Petroleum birti framleiðslutölur fyrir september, 30.000 þúsund tunnur af olíu voru framleiddar á Chestnut og Ettrick svæðunum. Meðalframleiðsla var því 1.000 tunnur sem er talsvert undir þeim 2.100 – 2.600 tunnum sem gert er ráð fyrir að framleiddar séu að meðaltali á dag árið 2011.
Mikill lækkun hefur verið á gengi félagsins síðustu mánuði og nemur hún ríflega 49% frá áramótum.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 75,00 | -5,06% | -10,71% | -36,44% | -38,52% | -47,18% | -52,53% |
FO-AIR | 106,00 | 0,00% | 0,00% | 0,00% | -3,64% | -8,62% | -7,02% |
FO-ATLA | 110,50 | -16,29% | -18,75% | -35,57% | -45,97% | -49,20% | -30,94% |
ICEAIR | 5,64 | -1,05% | 6,62% | 11,68% | 25,61% | 79,05% | 61,14% |
MARL | 115,50 | 0,43% | -1,70% | -9,77% | -10,47% | 15,50% | 17,26% |
OSSRu | 185,00 | 0,00% | -2,63% | -8,42% | -2,12% | -8,87% | -13,95% |
OMXI6ISK | 863,63 | -1,43% | -3,54% | -13,14% | -11,88% | -10,57% | -7,54% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 17. október 2011)
Hlutabréfaverð hélt áfram að hækka á helstu hlutabréfamörkuðum í liðinni viku. Heimsvísitalan MSCI hækkaði um 5,35%, DAX í Þýskalandi um 5,14% og S&P 500 í Bandaríkjunum um 5,98%.
Leita þarf aftur til ársins 2009 til að finna jafn mikla hækkun á S&P 500 vísitölunni á einni viku. Hækkunin í Bandaríkjunum kom meðal annars til vegna 1,1% aukningar í smásölu í september sem var meiri hækkun en spár gerðu ráð fyrir. Fjárfestar virðast auk þess vera bjartsýnni en oft áður á að leiðtogar Evrópu nái að leysa skuldavanda evrusvæðisins.
Hækkunin kom þrátt fyrir að matsfyrirtækin héldu áfram að lækka lánshæfiseinkunn ýmissa ríkja en nú síðast lækkaði Standard & Poor‘s lánshæfismat Spánar um eitt þrep eða úr AA niður í AA-.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1186,40 | 5,35% | 0,88% | -9,65% | -11,33% | -7,32% | -3,03% |
Þýskaland (DAX) | 5967,20 | 5,14% | 8,94% | -15,91% | -15,42% | -12,19% | -6,48% |
Bretland (FTSE) | 5466,36 | 3,07% | 3,19% | -5,20% | -7,61% | -6,10% | -2,87% |
Frakkland (CAC) | 3217,89 | 3,95% | 7,55% | -12,52% | -17,98% | -14,32% | -14,83% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 11644,49 | 4,88% | 1,18% | -6,69% | -5,65% | 0,58% | 5,26% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 2667,85 | 7,61% | 1,74% | -4,37% | -3,50% | 0,56% | 8,06% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1224,58 | 5,98% | 0,70% | -6,96% | -7,21% | -2,63% | 4,11% |
Japan (Nikkei) | 8747,96 | 1,65% | 0,17% | -10,98% | -7,42% | -13,19% | -6,53% |
Samnorræn (VINX) | 83,50 | 4,62% | 3,03% | -11,70% | -18,90% | -20,48% | -12,70% |
Svíþjóð (OMXS30) | 956,39 | 4,15% | 4,16% | -10,55% | -14,07% | -16,43% | -11,77% |
Noregur (OBX) | 345,07 | 7,56% | 3,07% | -8,46% | -12,89% | -12,31% | -3,27% |
Finnland (OMXH25) | 2006,69 | 6,36% | 4,28% | -10,50% | -21,82% | -22,84% | -17,21% |
Danmörk (OMXC20) | 349,29 | 1,67% | 0,72% | -19,05% | -24,24% | -23,49% | -16,74% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Bloomberg, 17. október 2011)
Gengisvísitalan hækkaði um 0,32% og endaði í 214,37 stigum. Af helstu myntum lækkaði japanskt jen mest í verði, um 2,29% og dollar um 1,93%. Hins vegar hækkaði norsk króna mest, um 1,64% og evra um 0,79%.
Frá áramótum hefur krónan veikst um 2,95%, en veikingin frá áramótum hefur að miklu leyti gengið til baka undanfarið.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 214,37 | 0,32% | -0,87% | -3,47% | -1,16% | 3,04% | 3,97% |
(Gengisvísitala krónunnar, Seðlabankinn, 17. október 2011)
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.