Vikulega birta Íslensk verðbréf samantekt um þróun helstu eignaflokka undanfarna viku. Smelltu hér ef þú vilt skrá þig á listann.
Löng verðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,6% og millilöng verðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,49%. Löng óverðtryggð skuldabréf hækkuðu hins vegar um 0,88% og millilöng óverðtryggð skuldabréf hækkuðu um 1,23%.
Óverðtryggð skuldabréf voru efst á óskalista fjárfesta í liðinni viku. Skýringuna má rekja annars vegar til þess að það er stór gjalddagi í júlí á bréfum sem erlendir fjárfestar eiga að mestu og þurfa því að endurfjárfesta töluvert.
Þeir hafa hingað til horft nánast eingöngu á styttri óverðtryggðu bréfin. Hins vegar vegna þess að það voru tvær þokkalega stórar afborganir í júní sem einnig þurfti að endurfjárfesta fyrir. Lífeyrissjóðirnir áttu stærstan hluta af þeim og þeir horfa mikið á löng óverðtryggð bréf.
Útboða Lánamála ríkisins sem átti að vera á föstudaginn var fellt niður þar sem búið var að fylla upp í útgáfuáætlun fjórðungsins.
OMXI6ISK vísitalan lækkaði um 1,41% í síðustu viku. Icelandair hækkaði mest, um 4,84% og endaði gengið í 4,98. Færeyska flugfélagið Atlantic Airways lækkaði mest, um 2,73%.
Heildarvelta á OMXI6ISK var um 314 miljónir, mest voru viðskipti með bréf í Icelandair fyrir um 154 milljónir. Icelandair og Marel voru með rúm 93% af veltu vikunnar.
Þetta var tíðindalítil vika á markaði hér heima eins og er svo oft á þessum tíma árs.
Talsverður munur var á gengi Færeysku félaganna BankNordik og Atlantic Petroleum í kauphöllinni í Kaupmannahöfn og á Íslandi.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 123,00 | 0,00% | -0,81% | -0,81% | -12,14% | -13,38% | -16,33% |
FO-AIR | 107,00 | -2,73% | -2,73% | -6,14% | -9,32% | -7,76% | -12,30% |
FO-ATLA | 196,00 | 0,00% | 0,00% | -8,62% | -8,41% | -9,89% | 30,67% |
ICEAIR | 4,98 | 4,84% | 3,75% | 12,67% | 52,76% | 58,10% | 32,80% |
MARL | 122,50 | 1,66% | -0,81% | -2,39% | 23,74% | 22,50% | 36,11% |
OSSRu | 194,50 | -0,26% | -1,27% | -0,77% | -6,49% | -4,19% | 7,76% |
OMXI6ISK | 959,30 | -1,41% | -2,61% | -2,98% | 2,78% | 2,74% | 5,62% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 27. júní 2011)
Almenn lækkun var á helstu hlutabréfavísitölum í vikunni. Heimshlutabréfavísitalan MSCI lækkaði um 0,37%, DAX í Þýskalandi um 0,60%, FTSE í Bretlandi um 0,27%, S&P 500 í Bandríkjunum um 0,22% en Nikkei í Japan hækkaði um 3,5%.
Standard og Poor's 500 hlutabréfavísitalan hefur ekki verið ódýri í 26 ár ef litið er á markaðsverð bréfanna sem hlutfall af hagnaði fyrirtækjanna. Bloomberg gerði könnun þar sem 9000 sérfræðingar tóku þátt og gera þeir ráð fyrir að hagnaður fyrirtækja verða 18% meiri í ár en í fyrra.
Á árinu hefur S&P 500 hækkað um 0,84%. Fjárfestar eru ekki tilbúnir að greiða fyrir hagnað í framtíðinni meðan óvissa ríkir með ástand Grikklands, stýrivextir hækka í Kína og efnahagsleg vandamál í Bandaríkjunum eru óleyst.
Seðlabanki Bandaríkjanna hélt stýrivöxtum óbreyttum, en stýrivextir Bandaríkjanna eru 0,25%. Bankinn lækkaði efnahagsspá sína og býst við hægari bata en menn hafa gert ráð fyrir.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1275,45 | -0,37% | -4,71% | -3,80% | 0,20% | -0,36% | 18,15% |
Þýskaland (DAX) | 7121,38 | -0,60% | 5,69% | 2,39% | 2,03% | 2,86% | 17,16% |
Bretland (FTSE) | 5697,72 | -0,27% | -3,95% | -3,33% | -5,07% | -3,31% | 13,04% |
Frakkland (CAC) | 3784,80 | -1,02% | -4,14% | -4,65% | -1,93% | -0,45% | 7,61% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 11934,58 | -0,58% | -4,08% | -2,34% | 3,28% | 3,08% | 17,65% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 2652,89 | 1,40% | -5,15% | -3,29% | -0,54% | 0,00% | 19,31% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1268,45 | -0,22% | -4,71% | -3,45% | 0,87% | 0,86% | 17,80% |
Japan (Nikkei) | 9678,71 | 3,50% | 0,59% | 0,44% | -7,51% | -6,36% | -1,63% |
Samnorræn (VINX) | 93,57 | -2,28% | -10,33% | -9,90% | -11,87% | -11,60% | 7,48% |
Svíþjóð (OMXS30) | 1055,24 | -2,16% | -6,20% | -5,55% | -8,27% | -7,88% | 4,22% |
Noregur (OBX) | 367,56 | -2,21% | -7,73% | -9,79% | -7,62% | -7,86% | 18,05% |
Finnland (OMXH25) | 2266,02 | -3,38% | -11,29% | -13,99% | -15,22% | -14,63% | 4,22% |
Danmörk (OMXC20) | 415,93 | -1,72% | -8,22% | -9,53% | -9,03% | -9,08% | 3,14% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Bloomberg, 27. júní 2011)
Krónan veiktist örlítið í vikunni en gengisvísitalan hækkaði um 0,05% og endaði í 220,66.
Í vikunni urðu nokkuð miklar breytingar á gengi helstu gjaldmiðla gagnvart krónu. Norsk króna hækkaði um 1,12% í verði og svissneskur franki um 1,08%. Á móti lækkaði sterlingspund um 1,17% og bandaríkjadollar um 0,49%.
Frá áramótum hefur krónan veikst um 5,72%. Mest er veikingin gagnvart svissneskum franka 11,65%, 7,29% gagnvart norskri krónu og 6,93% gagnvart evru. Af helstu gjaldmiðlum er veikingin minnst gagnvart bandaríkjadal, 1,07%.
Í framhaldinu er líklegra að þróunin verði fremur til veikingar en styrkingar krónunnar. Því til rökstuðnings má benda á að gengi krónunnar í nýlegu útboði Seðlabanka Íslands var verulega lægra en opinbert gengi bankans. Einnig er veruleg óvissa hvort raunverulegur eða undirliggjandi viðskiptajöfnuður sé jákvæður eða neikvæður.
Verulega skortir á trúverðugleika Seðlabankans og er hann í mjög erfiðri stöðu þar sem verðbólga fer vaxandi þrátt fyrir að enn ríki mikill slaki í hagkerfinu. Ríflegar kauphækkanir í kjölfar kjarasamninga, sem m.a. byggja á því skilyrði að krónan styrkist verulega á samningstímanum, setja bankann í enn erfiðari stöðu. Vextir eru byrjaðir að hækka erlendis sem mun auka á þáttatekjuhallann og minnka vaxtamun við útlönd.
Komi ekki til aukins útflutnings í bráð er líklegt að krónan haldi áfram að gefa eftir, en bent hefur verið á að leiðin út úr vandanum er aukin fjárfesting hér á landi í greinum sem skapa eða spara gjaldeyri.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK |
220,66 | 0,05% | 0,20% | 2,15% | 5,95% | 6,07% | 3,06% |
(Gengisvísitala krónunnar, Bloomberg, 27. júní 2011)
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.