Löng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um
0,81% og millilöng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 1,06%. Millilöng
óverðtryggð skuldabréf lækkuðu hinsvegar lítillega í verði, eða um 0,09%.
Há verðbólga (1,18%) í mælingu Hagstofunnar í febrúar og væntingar um að verðbólga mælist einnig mikil í mars og jafnvel apríl veldur því að fjárfestar leita í verðtryggð bréf þessa dagana.
Á föstudaginn fór fram útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum í flokknum RIKB 12 0824. Fjórum tilboðum var tekið fyrir 2.550 mkr. að nafnverði á ávöxtunarkröfunni 3,04%.
Stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans var birt
á miðvikudaginn og var ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum eins og flestir markaðsaðilar
höfðu gert ráð fyrir.
Helstu ástæður fyrir óbreyttum vöxtum eru fyrirhugaðar kosningar um Icesave og áætlun um afnám gjaldeyrishafta. Að þessu sinni hafði ákvörðun Seðlabankans ekki teljandi áhrif á skuldabréfamarkaðinn.
OMXI6ISK
vísitalan lækkaði um 0,52%. Mesta hækkun
var hjá Össuri um 1,56%. BankNordik
lækkaði hins vegar mest, um 6,02%.
Velta með
bréf á OMXI6ISK nam tæpum 16,3 milljörðum króna en langstærstur hluti þeirra
veltu kom til vegna sölu Horns Fjárfestingarfélags sem er dótturfélag NBI á
hlut sínum í Marel.
Hlutur Horns
í Marel nam 13,77%. Söluandvirði var
rúmir 12,1 milljarður króna og var gengi viðskiptanna 120, en gengi Marels var
124 í lok vikunnar.
Eyrir Invest
jók við hlut sinn í Marel um tæp 3% og á nú 34,7% hlut og er langstærsti einstaki
hluthafinn. Þá keypti NBI 8,26% hlut af
dótturfélagi sínu. Ekki kom fram hverjir
keyptu þá tæpu 2,5% hluti sem eftir stóðu.
Í síðustu
viku sögðum við frá þeirri óvenjulegu stöðu sem upp er komin varðandi viðskipti
með hlutabréf Össurar hf og þeirri ákvörðun Kauphallarinnar að taka hlutabréf
félagsins til viðskipta.
Þetta gerist þrátt fyrir að beiðni Össurar
hf. um að taka hlutabréf félagsins úr viðskiptum hafi verið samþykkt af
Kauphöll og jafnframt gefið út að síðasti viðskiptadagur í Kauphöll væri þann 25.mars.
Kauphöllin er hér að beita fyrir sig
samevrópsku regluverki um kauphallir sem innleitt var árið 2007 og heimilar að
taka verðbréf til viðskipta án samþykkis útgefanda hafi verðbréfin verið tekin
til viðskipta á öðrum verðbréfamarkaði innan evrópska efnahagssvæðisins.
Í
tengslum við þessa stöðu hefur komið fram í viðtölum við forstjóra Kauphallar
að Kauphöllin telji það grundvallarrétt hluthafa að geta bæði
keypt og selt hlutabréfin. Ef Kauphöllin hefði ekki tekið bréfin til viðskipta
á ný væri sú staða uppi að íslenskir hluthafar hefðu einungis getað selt en
ekki keypt bréf í Össuri.
Kauphöllin
tilkynnti jafnframt að ákveðið hafi verið að halda Össuri hf. (Össur) áfram í
OMXI6 vísitölunni. Verður OSSR
auðkenninu skipt út fyrir OSSRu auðkennið þann 28. mars 2011.
OSSRu auðkennið mun koma inn í vísitöluna á dagslokaverði OSSR auðkennisins frá 25. mars 2011 og mun það gilda þar til nýtt verð hefur myndast á markaðnum. Fjöldi hluta Össurar í vísitölunni verður óbreyttur. Meðhöndlun Össurar í öðrum vísitölum verður einnig óbreytt.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 125,00 | -6,02% | 0,81% | -10,71% | -10,07% | -11,97% | -21,38% |
FO-AIR | 114,00 | 0,00% | 2,70% | -3,39% | -4,20% | -1,72% | -13,64% |
FO-ATLA | 211,50 | 0,00% | -6,00% | -1,17% | 32,19% | -2,76% | 29,75% |
ICEAIR | 4,49 | 0,22% | -0,22% | 37,73% | 28,29% | 42,54% | 54,83% |
MARL | 124,00 | -1,59% | 5,53% | 26,53% | 33,19% | 24,00% | 59,38% |
OSSR | 195,00 | 1,56% | -2,01% | -4,88% | -9,72% | -3,94% | 6,56% |
OMXI6ISK | 983,77 | -0,52% | 0,74% | 6,21% | 2,20% | 5,36% | 4,97% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Nasdaq OMX Nordic, 21. mars 2011)
Erlend hlutabréf lækkuðu mikið í síðustu viku. Heimsvísitalan MSCI lækkaði um 2,12%, DAX í Þýskalandi um 4,54%, CAC í Frakklandi um 3,02% og S&P 500 í Bandaríkjunum lækkaði um 1,92%.
Nikkei hlutabréfavísitalan í Japan lækkaði um 10,22% sem kemur ekki á óvart eftir þær hörmungar sem gengið hafa yfir landið frá jarðskjálftanum mikla. Í kjölfar hans hefur mikil umræða skapast um afleiðingar geislavirkni frá kjarnorkuverum eftir að kjarnorkuverið í Fukushima laskaðist illa.
Mörg lönd eru háð framleiðslu á raforku með kjarnorku og sem dæmi er 75% af raforku Frakklands fengin með kjarnorku og þar eru 58 kjarnakljúfar. Auk þess er landið stærsti útflytjandi raforku í heiminum.
Í Þýskalandi eru 17 kjarnakljúfar og hafa miklar deilur skapast um tilveru þeirra. Nýlega tók ríkisstjórn landsins sér þrjá mánuði til að endurskoða þá ákvörðun að halda kjarnorkuverum landsins gangandi 12 árum lengur en áætlað var.
Hlutabréfaverð lækkaði einnig aðra vikuna í röð í Bandaríkjunum meðal annars vegna hættu á geislavirkni frá kjarnorkuverinu í Japan. Bandaríkjamenn eru stærstu framleiðendur rafmagns með kjarnorku í heiminum og í landinu eru 104 kjarnakljúfar.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1287,13 | -2,12% | -5,23% | 1,25% | 10,06% | 0,55% | 8,09% |
Þýskaland (DAX) | 6664,40 | -4,54% | 5,69% | -4,09% | 8,17% | -1,82% | 13,47% |
Bretland (FTSE) | 5718,13 | -1,90% | -4,06% | -3,04% | 3,49% | -2,19% | 2,14% |
Frakkland (CAC) | 3810,22 | -3,02% | -5,78% | -1,70% | 2,02% | 1,47% | -1,65% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 11858,52 | -1,54% | -4,30% | 2,82% | 10,20% | 2,43% | 10,39% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 2643,67 | -2,64% | -6,71% | -0,90% | 12,53% | -0,35% | 11,34% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1279,20 | -1,92% | -4,75% | 1,96% | 12,23% | 1,71% | 10,29% |
Japan (Nikkei) | 8962,67 | -10,22% | -15,20% | -11,22% | -4,12% | -9,99% | -14,95% |
Samnorræn (VINX) | 101,83 | -1,25% | -1,60% | -2,89% | 7,33% | -2,67% | 15,43% |
Svíþjóð (OMXS30) | 1091,37 | -0,99% | -0,87% | -5,29% | 1,00% | -4,44% | 8,24% |
Noregur (OBX) | 399,13 | 0,71% | 0,77% | 0,96% | 14,87% | 0,46% | 20,10% |
Finnland (OMXH25) | 2518,91 | -0,72% | -2,00% | -2,71% | 7,09% | -2,35% | 15,94% |
Danmörk (OMXC20) | 461,97 | 0,00% | -0,21% | 2,33% | 11,64% | 1,87% | 22,77% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Bloomberg, 21.
mars 2011)
Gengi krónunnar styrktist í vikunni. Gengisvísitalan lækkaði um 0,51% og endaði í 215,80 stigum.
Bandaríkjadalur
lækkaði í verði um 2,00%, breskt pund um 1,35%, japanskt jen um 1,08% en evra
hækkaði í verði um 0,32%. Þessar miklu breytingar á undirliggjandi
gjaldmiðlakrossum í vikunni má rekja til ástandsins í Japan og tengjast í raun
ekki þróun mála hér á landi.
Dollar hefur verið undir þrýstingi vegna mikilla eigna Japana á bandarískum skuldabréfum og að sama skapi hefur flutningur fjármagns til Japans styrkt jenið. Undir lok vikunnar selda margir helstu seðlabankar heimsins jen til að slá á styrkingu þess og veiktist það verulega á föstudag.
Á föstudaginn 25. mars er von á skýrslu um áætlun um afnám gjaldeyrishafta og eru markaðsaðilar að bíða þess. Upphaflega átti að birta þessa skýrslu 11 .mars en því var seinkað og vonandi verður ekki um frekari seinkun að ráða.Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 215,7951 | -0,51% | -0,10% | 2,91% | 3,28% | 3,73% | -5,39% |
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.