Vikan var mun rólegri en undanfarnar vikur. Löng verðtryggð bréf hækkuðu um 1,61% en stutt verðtryggð bréf lækkuðu um 0,14%. Stutt óverðtryggð bréf hækkuðu um 0,86%.
Skuldabréfamarkaðurinn hefur róast undanfarið eftir miklar sveiflur í september. Ástæðan er trúlega sú að flestir telja að það sé enn langt í afnám gjaldeyrishafta og jafnframt að afnám þeirra í skrefum komi til með að hafa minni áhrif á skuldabréfamarkaðinn en áður var talið.
Á miðvikudaginn fór fram útboð á RIKV 11 0215 ríkisvíxlum hjá Lánamálum ríkisins. Tilboðum var tekið fyrir rúma 12 milljarða að nafnverði og voru flatir vextir 4,1%. Síðasta útboð ríkisvíxla var í september og voru flatir vextir þá 4,51%. Ríkið er því að fá mun betri kjör nú en þá.
OMXI6ISK vísitalan hækkaði um 3,17% á milli vikna. Mest hækkaði BankNordik, um 14,5% í lítilli veltu. Mest lækkuðu bréf Össurar, um 2,71%.
Veltan í síðustu viku nam tæpum 232 milljónum króna og var Marel með 85% af veltunni. Á föstudag barst tilkynning frá félaginu um formlegar viðræður við alþjóðlega banka um fjármögnun fyrirtækisins sem ætti að leiða til stöðugrar og hagkvæmari fjármögnunar til lengri tíma.
Markaðurinn tók vel í þessa frétt og hækkuðu bréf Marels um 4,12% á föstudag, um 7,1% í síðustu viku og endaði gengi félagsins í 98,5.
Bæði BankNordik og Atlantic Petroleum voru með lægra lokagengi í kauphöllinni í Kaupmannahöfn á föstudag heldur en í þeirri íslensku. Munurinn var 4,4% hjá Atlantic og 2,2% hjá BankNordik. Það var hins vegar mjög lítil velta með bréf þessara félaga á íslenska markaðnum.
Eik Banki hefur verið yfirtekinn af danska tryggingasjóðnum Finansiel Stabilitet og rann bankinn inn í nýtt dótturfélag sjóðsins, Eik Banki Föroya P/F.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
BNORDIK | 158,00 | 14,49% | 13,67% | 9,72% | -1,25% | 22,01% | 12,86% |
FO-ATLA | 160,00 | 0,00% | 0,00% | 18,52% | -3,03% | 0,00% | -20,00% |
FO-EIK | 20,00 | 0,00% | -71,43% | -74,68% | -77,40% | -75,00% | -80,20% |
ICEAIR | 3,50 | 0,00% | 0,00% | 0,00% | 2,94% | -4,11% | 94,44% |
MARL | 98,50 | 7,07% | 3,79% | 9,32% | 17,54% | 57,85% | 48,79% |
OSSR | 215,00 | -2,71% | -0,92% | 16,85% | 13,16% | 39,16% | 72,69% |
OMXI6ISK | 965,36 | 3,17% | -0,39% | 6,52% | 0,32% | 18,45% | 19,68% |
(Nasdaq OMX Nordic, 18. október 2010)
Almenn hækkun var á helstu hlutabréfamörkuðum í síðustu viku. Heimsvísitalan hækkaði um 1,14%, Dax í Þýskalandi um 3,19%, Dow Jones í Bandaríkjunum um 0,51% og samnorræna vísitalan VINX hækkaði um 1,22%.
Ástæðan fyrir hækkunum í vikunni má rekja til
þess að mörg fyrirtæki voru að skila góðum uppgjörum á þriðja ársfjórðungi.
JP
Morgan skilaði 4,4 milljörðum dala í hagnað og jókst hagnaðurinn um 23% miðað
við sama ársfjórðung í fyrra.
Bandaríski örgjörvaframleiðandinn Intel skilaði þremur milljörðum dala í hagnað og jókst hagnaðurinn um 18% frá sama tímabili í fyrra.
Verð á gulli heldur áfram að hækka og hefur náð
sögulegum hæðum, gullverð stendur nú í 1370 dölum á únsu. Hækkunin á gulli er
talin vera afleiðing af því að seðlabankastjóri Bandaríkjanna gaf í skyn að
bankinn þurfi að leggja bandarískum efnahag aukið fé.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1226,07 | 1,14% | 5,82% | 12,25% | 0,10% | 4,70% | 5,81% |
Þýskaland (DAX) | 6492,30 | 3,19% | 4,15% | 7,07% | 4,63% | 8,56% | 12,60% |
Bretland (FTSE) | 5703,37 | 0,84% | 3,06% | 10,04% | -1,16% | 4,88% | 9,38% |
Frakkland (CAC) | 3827,37 | 1,71% | 2,16% | 8,63% | -4,62% | -3,40% | -0,66% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 11062,78 | 0,51% | 4,29% | 9,56% | 0,40% | 6,09% | 10,67% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 2468,77 | 2,79% | 6,61% | 13,30% | -0,50% | 8,80% | 14,46% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1176,19 | 0,96% | 4,50% | 10,45% | -1,34% | 5,48% | 8,14% |
Japan (Nikkei) | 9500,25 | -0,92% | -1,33% | 0,96% | -14,44% | -9,94% | -7,40% |
Samnorræn (VINX) | 96,77 | 1,22% | 1,39% | 9,39% | 3,83% | 20,39% | 25,05% |
Svíþjóð (OMXS30) | 1094,52 | 0,83% | 0,81% | 5,41% | 3,85% | 14,60% | 17,56% |
Noregur (OBX) | 362,98 | 1,63% | 4,53% | 13,63% | 2,53% | 6,23% | 16,32% |
Finnland (OMXH25) | 2449,88 | -0,69% | 2,64% | 13,99% | 8,48% | 19,79% | 26,09% |
Danmörk (OMXC20) | 420,47 | 1,16% | 1,42% | 2,30% | 3,99% | 24,37% | 23,37% |
(Verðbreyting í viðkomandi mynt, Bloomberg, 18. október 2010)
Krónan
veiktist í síðustu viku og hækkaði gengisvísitalan um 0,51% og endaði í 206,69.
Gengisvísitala krónunnar hefur lækkað um 11,22% frá áramótum og verð evrunnar
um 13,4%. Undanfarnar vikur hefur krónan verið nokkuð stöðug og er
gengisvísitalan á svipum slóðum og um miðjan september.
Seðlabankinn hóf regluleg kaup á gjaldeyri í lok ágúst og virðist vera að hann nái að halda aftur af frekari styrkingu krónunnar með þeim, þrátt fyrir verulegan afgang af vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd.
Skuldatryggingarálag
á ríkissjóð lækkaði nokkuð skarpt í vikunni og virðist vera að fréttir um að
hagstæð niðurstaða sé að nást í Icesave málinu sé að hafa þar áhrif. Álagið fór
úr 305 punktum og niður fyrir 286 punkta.
Hins vegar hafa stjórnvöld áður talið sig vera með „hagstæðann Icesavesamning í höndunum“ og því á eftir að koma í ljós hvernig þingmenn taka þessum nýja samningi.
Ef málið klárast á næstunni er líklegt að skuldatryggingarálagið lækki verulega og jafnframt að fjármögnun innlendra aðila á erlendum mörkuðum verði auðveldari.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 206,69 | 0,51% | -0,84% | -3,42% | -9,27% | -11,22% | -13,00% |
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.