Vikulega birta Íslensk verðbréf samantekt um þróun helstu eignaflokka undanfarna viku. Smelltu hér ef þú vilt skrá þig á listann.
Löng verðtryggð skuldabréf hækkuðu um 0,62% í vikunni og millilöng verðtryggð bréf hækkuðu um 0,76%. Löng óverðtryggð bréf hækkuðu um 0,93%. Ríkistryggð skuldabréf hækkuðu því almennt í verði í vikunni. Verðhækkun bréfanna má rekja til þess að fjárfestar reikna með töluverðri lækkun stýrivaxta á næstu vaxtaákvörðunardögum.
Verðbólguálagið hefur farið lækkandi á árinu og
er nú nálægt 3,3% á bréf með 3-5 ára líftíma sem er frekar lágt miðað við meðal
verðbólgu síðustu ára.
Ástæðan fyrir þessu er sú að það eru töluverðar líkur á
að verðlag verði stöðugt í ár þar sem fasteignaverð er á niðurleið og jafnframt
eru töluverðar líkur á að krónan styrkist eitthvað á árinu en þessir tveir
þættir ráða miklu um þróun neysluverðsvísitölunnar.
Gangi þetta eftir má reikna með því að verðbólguálagið verði áfram lágt og fari lækkandi þegar líða tekur á árið.
Á föstudaginn var ríkisbréfaútboð hjá Lánasýslu
ríkisins. Í boði voru bréf í RB11 og RB25 og var tekið tilboðum í RB11 fyrir
8,7 milljarða að nafnverði og 1,5 milljarða í RB25. Niðurstaða útboðsins
virtist fara vel í markaðsaðila því í kjölfarið var gengið á söluboð
óverðtryggðra bréfa.
OMXI6ISK lækkaði lítillega í síðustu viku í ríflega 204 milljón króna veltu. Mest voru viðskipti með bréf Marels fyrir 129 milljónir króna og hækkuðu bréf félagsins um 2,5% í vikunni.
Mest hækkuðu bréf Bakkavarar um 60% í 5 viðskiptum hins vegar lækkuðu bréf
Atlantic Petroleum mest í vikunni sem leið um 3,8%. Næst mesta lækkun var hjá Össuri og stóð gengi félagsins í 160,5 í vikulok
en það hefur verið á bilinu 158-164,5 síðastliðinn mánuð.
Össur er það félag í vísitölunni sem hefur hækkað lang mest á síðustu 12 mánuðum og nemur sú hækkun ríflega 71%. Á First North markaðinum hækkuðu bréf Century Aluminum um 13,95% í síðustu viku. Gengi bréfa félagsins hefur hækkað um 363% á síðustu 12 mánuðum og er það í takt við mikla hækkun álverðs á sama tíma.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Bakkavör | 2 | 60,00% | 48,15% | 33,33% | 94,17% | 0,00% | 5,26% |
FO-AIR | 141 | 0,00% | 0,00% | -0,70% | -9,62% | 0,00% | -12,42% |
FO-ATLA | 153 | -3,77% | -4,37% | -7,83% | -44,78% | -4,37% | -45,43% |
FO-BANK | 145 | -0,68% | 9,02% | 8,21% | 17,89% | 11,97% | 43,56% |
Marel | 62,5 | 2,46% | 0,16% | -8,76% | 5,57% | 0,16% | 25,25% |
Össur | 160,5 | -1,83% | 0,94% | 18,45% | 31,56% | 3,88% | 71,11% |
OMXI6ISK | 835,53 | -0,47% | 1,90% | 3,92% | 6,40% | 2,52% | -0,64% |
(Nasdaq OMX Nordic, 23. feb. 2010)
Mikil hækkun var á helstu hlutabréfamörkuðum í Evrópu í síðustu viku. Þannig hækkaði FTSE vísitalan í London um 4,3%, Dax vísitalan í Þýskalandi um 4% og CAC vísitalan í Frakklandi um 4,7%.
Helstu ástæður þessara hækkana eru að fjárfestar hafa nú meiri trú en áður á að grísku ríkisstjórninni takist að hafa taumhald á fjárlagahalla landsins auk þess sem menn treysta á eftirlit og aðstoð Evrópusambandsins.
Breski bankinn Barclays birti gott uppgjör fyrir árið 2009 og nam hagnaður fyrir skatta 11,64 milljörðum punda sem er 92% hækkun frá árinu áður. Árið 2008 nam hagnaðurinn 6,07 milljörðum punda fyrir skatta.
Hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum hækkuðu töluvert í síðustu viku eða um 3%. Er það mesta vikuhækkun hlutabréfa í Bandaríkjunum á þessu ári. Sambland af góðum hagtölum og afkomu fyrirtækja hefur aukið trú fjárfesta á að bata sé að vænta í bandarísku efnahagslífi.
Þrátt fyrir miklar hækkanir í Evrópu og Bandaríkjunum lækkaði Hang Seng vísitalan í Kína um 1,85% í síðustu viku eftir að stjórnvöld ákváðu að hækka bindiskyldu banka. Bindiskyldan er hækkuð til að reyna að draga úr útlánum banka og þannig kæla hagkerfið niður.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1139 | 2,51% | -1,34% | -0,98% | 4,99% | -2,91% | 46,79% |
Þýskaland (DAX) | 5722 | 4,03% | 0,43% | 1,00% | 4,70% | -3,99% | 42,47% |
Bretland (FTSE) | 5358 | 4,35% | 1,06% | 2,05% | 10,48% | -0,99% | 37,80% |
Frakkland (CAC) | 3770 | 4,76% | -1,47% | 0,94% | 4,11% | -4,37% | 36,86% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 10402 | 3,12% | 2,25% | 0,82% | 9,43% | -0,25% | 41,23% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 1823 | 2,54% | 1,59% | 3,34% | 11,33% | -1,99% | 55,48% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1109 | 3,19% | 1,59% | 1,63% | 8,09% | -0,53% | 44,04% |
Japan (Nikkei) | 10124 | 0,32% | -1,79% | 9,51% | 1,58% | -1,38% | 40,24% |
Samnorræn (VINX) | 83 | 3,48% | 3,48% | 7,17% | 11,57% | 4,44% | 61,33% |
Svíþjóð (OMXS30) | 957 | 2,78% | 0,22% | 0,16% | 4,30% | 0,15% | 49,83% |
Noregur (OBX) | 324 | 4,28% | 0,04% | 2,29% | 16,95% | -4,09% | 72,59% |
Finnland (OMXH25) | 2064 | 3,76% | 1,74% | 5,95% | 10,63% | 1,87% | 56,32% |
Danmörk (OMXC20) | 359 | 2,58% | 3,92% | 8,39% | 9,17% | 7,06% | 42,50% |
(Bloomberg, 23. feb. 2010)
Krónan styrktist í síðustu viku og lækkaði gengisvísitalan um 0,66% skv.
opinberu viðmiðunargengi SÍ og endaði í 230,15 stigum. Þróun einstakra gjaldmiðla
var mjög misjöfn; dollar lækkaði um 0,19% í verði gagnavart krónu, evra 0,66%
og pund 1,67%.
Japanskt jen gaf hins vegar verulega eftir og lækkaði um 2,36% í verði gagnvart krónu. Af helstu gjaldmiðlum var það einungis kanada dalur og sænsk króna sem hækkuðu í verði gagnvart íslensku krónunni.
Frá áramótum hefur gengisvísitalan lækkað um 1,14% og krónan því styrkst sem því nemur. Frá því hún var hvað veikust, um miðjan nóvember, er styrkingin nálægt 4%. Sé litið til tæknigreiningar er krónan í styrkingarfasa. Það sem vekur sérstaka athygli er að 100 daga hlaupandi meðaltal er orðið niðurhallandi. Slíkt staða hefur ekki verið uppi síðan um mitt ár 2007 eða töluvert fyrir hrun.
Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 230,15 | -0,66% | -1,72% | -1,74% | -3,27% | -1,14% | 21,94% |
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum
Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo
á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni
sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar
upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við
opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum
tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna,
áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.