Löng verðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,11% í
vikunni og millilöng verðtryggð bréf lækkuðu um 0,09%. Löng óverðtryggð bréf lækkuðu
um 0,3%. Það var því lítil nettó verðbreyting í vikunni.
Töluverðar verðbreytingar urðu hins vegar innan vikunnar. Verðtryggð bréf hækkuðu fyrri hluta vikunnar en lækkuðu í lok hennar. Þar hafði áhrif að íbúðalánasjóður reiknar með að gefa út um 8 milljarða umfram það sem áætlanir ársins hljóðuðu upp á.
Það var mikill söluþrýstingur á óverðtryggð bréf
í vikunni en kauphliðin var mjög sterk svo verðbreytingin varð lítil. Það sem
mælir með kaupum er annars vegar að það er margt sem bendir til þess að
verðbólga ársins verði lítil og þá sérstaklega seinni hluta ársins og hins vegar
má búast við að stýrivextir verði komnir vel niður í árslok.
Það sem mælir gegn óverðtryggðum bréfum nú er annars vegar töluverð verðbólga í mars og það má búast við að það verði áfram verðbólguskrið í apríl. Hins vegar er ljóst að nú ríkir töluverð óvissa með Icesave málið þar sem pólitískur óróleiki hefur aukist í kjölfar atkvæðagreiðslunnar á laugardaginn en seinkun á lausn Icesave deilunnar hægir á stýrivaxtarlækkunarferlinu.
Meðalvelta á dag í febrúar með hlutabréf var í kringum 89 milljónir, í síðustu viku nam meðalvelta ríflega 68 milljónum. Mest voru viðskipti með bréf Marels fyrir nálægt 228 m.kr.
Aðeins eitt félag í OMXI6ISK hækkaði í síðustu viku, Færeyja banki hækkaði um 2% í veltu upp á 3,5 m.kr. Vísitalan stóð nánast í stað á milli vikna.
Mest lækkuðu bréf í Bakkavör um
5,88%. Kröfuhafar Bakkavarar samþykktu í
síðustu viku nauðasamning félagsins með 90% atkvæða. Við þetta verður öllum gjalddögum lána
félagsins frestað til 2014 og hluti lána verður breytt í hlutafé á genginu
1.
Þá fá Bakkavararbræður, þeir Lýður og
Ágúst, möguleika á að eignast um 25% í félaginu ef rekstraráform ganga
eftir. Gengið er út frá því að um engar
afskriftir verði að ræða á þeim 63,9 milljörðum króna sem Bakkavör
skuldar.
Í lok mars verður svo hluthafafundur þar sem kynntir verða nauðasamningarnir og meðal annars lagt til að félaginu verði breytt í einkahlutafélag og afskráð af markaði á meðan endurskipulagning stendur yfir.
Eyrir Invest sem er næst stærsti hluthafi Össurar seldi 3,7% hlut í félaginu á markaði í Kaupmannahöfn, er hlutur Eyris þá kominn niður í 15,1%. Eyrir er áfram annar stærsti hlutafi í Össuri eftir söluna.
Á First North markaðinum hækkuðu bréf í Century Aluminum um 16,1% í síðustu viku í veltu upp á ríflega 10 m.kr. Gengi félagsins stóð í 1.719 en á síðustu 12 mánuðum hefur það lægst farið í 135,5 og hæst í 2.088. Á þessu tímabili hefur álverð hækkað nokkuð mikið.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Bakkavör | 1,6 | -5,88% | 6,67% | -5,88% | -8,57% | -20,00% | -13,04% |
FO-AIR | 133 | -5,67% | -5,67% | -9,52% | -5,00% | -5,67% | -22,22% |
FO-ATLA | 153 | 0,00% | -4,37% | -7,83% | -36,64% | -4,37% | -1,31% |
FO-BANK | 153 | 2,00% | 12,09% | 15,91% | 8,90% | 18,15% | 53,00% |
Marel | 70 | 0,00% | 20,69% | 13,27% | 16,86% | 12,18% | 29,63% |
Össur | 167,5 | -0,59% | 5,35% | 23,16% | 26,42% | 8,41% | 96,83% |
OMXI6ISK | 876,59 | -0,29% | 7,58% | 11,07% | 5,48% | 7,56% | 8,56% |
Töluverð hækkun var á helstu hlutabréfamörkuðum í síðustu viku. Fréttir af atvinnuleysistölum í Bandaríkjunum í febrúar fóru vel í fjárfesta. Almennt var gert ráð fyrir 9,8% atvinnuleysi en raunin varð, óbreytt atvinnuleysi frá janúar, 9,7%.
Í síðustu viku hækkuðu norrænir hlutabréfamarkaðir mikið og sem dæmi hækkaði danska hlutabréfavísitalan OMXC20 um 4,65 % og sú norska OBX um 5,72%. Frá áramótum hefur danska vísitalan hækkað mest norrænna vísitalna um 10,13%.
Birtar voru atvinnuleysistölur í Danmörku í vikunni og reyndust þær lægri en spár sögðu til um. Atvinnuleysi mældist 4,2% en almennt var gert ráð fyrir 4,5% atvinnuleysi.
Þá birti norski olíusjóðurinn uppgjör sitt fyrir síðasta ár sem reyndist það besta frá upphafi. Hagnaður sjóðsins árið 2009 nam 613 milljörðum norskra króna í stað 633 milljarða taps árið 2008.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1156 | 3,36% | 7,12% | 1,66% | 6,55% | 0,17% | 67,81% |
Þýskaland (DAX) | 5877 | 4,98% | 7,32% | 3,48% | 7,38% | -1,19% | 60,55% |
Bretland (FTSE) | 5600 | 4,68% | 10,15% | 7,39% | 13,38% | 3,62% | 58,86% |
Frakkland (CAC) | 3910 | 5,44% | 8,53% | 3,43% | 6,94% | -0,54% | 54,47% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 10566 | 2,33% | 6,64% | 2,72% | 11,25% | 1,32% | 59,44% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 1889 | 3,85% | 8,86% | 6,53% | 14,13% | 1,52% | 77,38% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1139 | 3,12% | 7,76% | 4,28% | 11,05% | 2,12% | 66,63% |
Japan (Nikkei) | 10369 | 2,40% | 6,37% | 4,39% | 1,85% | 0,37% | 47,58% |
Samnorræn (VINX) | 88 | 5,23% | 9,72% | 12,86% | 16,14% | 9,68% | 89,28% |
Svíþjóð (OMXS30) | 998 | 5,35% | 6,46% | 4,78% | 10,31% | 4,97% | 64,47% |
Noregur (OBX) | 336 | 5,72% | 7,06% | 2,64% | 21,31% | -0,49% | 87,98% |
Finnland (OMXH25) | 2171 | 5,39% | 9,90% | 12,42% | 13,23% | 7,22% | 82,83% |
Danmörk (OMXC20) | 371 | 4,65% | 7,35% | 11,22% | 11,46% | 10,13% | 74,00% |
(Bloomberg, 8. mars 2010)
Krónan
veiktist lítillega í síðustu viku og lækkaði gengisvísitalan um 0,42% skv.
opinberu viðmiðunargengi SÍ og endaði í 229,39 stigum. Hægfara styrking
krónunnar heldur því áfram og hefur gengisvísistalan lækkað um 1,47% frá
áramótum. Verðbreyting helstu gjaldmiðla er æði misjöfn.
Evra hefur lækkað um 3,3% í verði og pund um 4,55%. Hins vegar hefur Bandaríkjadalur hækkað um 2,47%, Kanadadalur um 4,22% og japanskt jen um 6,04%.
Skuldatryggingaálag á ríkissjóð Íslands til fimm ára hefur lækkað verulega undanfarnar vikur og stendur nú í 450 punktum. Líklegt er að væntingar um lausn Icesave hafi hér áhrif.Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 229,39 | -0,42% | -1,24% | -2,80% | -1,42% | -1,47% | 23,73% |
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum
Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo
á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni
sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar
upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við
opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum
tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna,
áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.