Löng verðtryggð skuldabréf lækkuðu um 0,14% í vikunni og stutt verðtryggð bréf hækkuðu um 0,14%. Löng óverðtryggð bréf hækkuðu um 1,1%.
Fjárfestar virðast því halda sig við löng óverðtryggð bréf þrátt fyrir að samningaviðræður vegna Icesave virðast vera komnar í strand. Ennfremur hefur bankastjóri SÍ komið fram með þá skoðun að afnám gjaldeyrishafta gangi fyrir lækkun stýrivaxta.
Næsti vaxtaákvörðunardagur er á miðvikudaginn og teljum við líklegt að stýrivextir verði lækkaðir um 25-50 punkta. Óvissa um Icesave og há verðbólga gefa ekki tilefni til meiri lækkunar núna.
OMXI6ISK vísitalan hækkaði um 3,66%
í síðustu viku og var heildarveltan 267 milljónir. Frekar lítil velta var með
bréf Marels í vikunni, eftir lífleg viðskipti síðastliðinn mánuð, og námu þau einungis
9 milljónum.
Mest velta var með bréf Össurar fyrir 170 milljónir og hefur verið fín hækkun á bréfunum undanfarið og nemur 12 mánaða hækkun nú 137%.
Aðalfundur Össurar var haldinn 9. mars og var samþykkt að greiða ekki út arð vegna ársins 2009 heldur flytja hagnað til næsta árs. Í vikunni kom einnig fram að meirihluti hlutafjár, yfir 55%, er nú í eigu erlendra fjárfesta.
Viðskipti voru með bréf Atlantic Petroleum á föstudaginn á genginu 165 sem þýðir hækkun um 7,84% en viðskiptin eru mjög stopul. Aðalfundur félagsins verður þann 20. mars næstkomandi.
Mikil lækkun var á bréfum Bakkavarar en nú styttist væntanlega í afskráningu félagsins úr Kauphöll, hluthafafundur verður haldinn þann 26. mars þar sem að tillaga um afskráningu verður lögð fyrir.
Félög/vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Bakkavör | 1,35 | -15,63% | 8,00% | -22,86% | -15,63% | -32,50% | -6,25% |
FO-AIR | 133 | 0,00% | -5,67% | -9,52% | -5,00% | -5,67% | -22,22% |
FO-ATLA | 165 | 7,84% | 3,77% | -0,60% | -31,67% | 3,13% | 6,43% |
FO-BANK | 158 | 3,27% | 8,22% | 21,54% | 14,08% | 22,01% | 51,92% |
Marel | 70,9 | 1,29% | 16,23% | 12,54% | 22,03% | 13,62% | 43,81% |
Össur | 178,5 | 6,57% | 9,17% | 27,50% | 49,37% | 15,53% | 137,05% |
OMXI6ISK | 908,67 | 3,66% | 8,25% | 14,13% | 14,01% | 11,50% | 59,12% |
(Nasdaq OMX Nordic, 15. mars 2010)
Helstu hlutabréfavísitölur í
Bandaríkjunum hafa hækkað frá 47 til 65% síðustu 12 mánuði. Svo mikil hækkun á 12 mánaða tímabili er
sjaldséð.
Nú eru 10 ár síðan netbólan svokallaða í Bandaríkjunum sprakk en þá stóð Nasdaq hlutabréfavísitalan í sínu hæsta gildi 5.048,62 stigum. Á föstudaginn lokaði vísitalan í 2.367,66 stigum og er hún því ennþá 53% lægri en hún var fyrir 10 árum síðan.
Frá Evrópu var það helst að frétta að hagvöxtur mældist 0,4% í Frakklandi á fyrsta fjórðungi þessa árs og var hann heldur lægri en spár gerðu ráð fyrir. Þrátt fyrir það hækkaði CAC hlutabréfavísitalan í Frakklandi um 0,43% í vikunni.
Fyrrum formaður Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Romano Prodi, lét hafa eftir sér í viðtali við fréttastofu Bloomberg að Grikkir væru komnir yfir það versta í fjármálakreppunni og að aðrar Evrópuþjóðir ættu ekki eftir að feta í þeirra spor.
Nikkei hlutabréfavísitalan í
Japan hækkaði um 3,69% í síðustu viku.
Það er mesta vikuhækkun vísitölunnar í meira en þrjá mánuði eða frá 8.
janúar á þessu ári. Ástæða hækkunarinnar
er talin vera væntingar fjárfesta um frekari slökun á peningamálastefnu Seðlabankans
á næstunni.
Vísitölur | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
Heimsvísitala (MSCI) | 1183 | 1,51% | 7,22% | 2,55% | 6,02% | 1,62% | 56,97% |
Þýskaland (DAX) | 5945 | 1,15% | 7,72% | 2,16% | 5,47% | -0,35% | 50,16% |
Bretland (FTSE) | 5626 | 0,63% | 8,62% | 6,19% | 11,32% | 3,70% | 49,54% |
Frakkland (CAC) | 3927 | 0,43% | 8,58% | 2,21% | 4,44% | -0,44% | 44,84% |
Bandaríkin (Dow Jones) | 10625 | 0,68% | 5,20% | 1,65% | 9,72% | 1,89% | 47,08% |
Bandaríkin (Nasdaq) | 2368 | 1,81% | 8,43% | 7,57% | 12,60% | 4,34% | 65,40% |
Bandaríkin (S&P 500) | 1150 | 1,06% | 6,93% | 3,80% | 9,25% | 3,13% | 52,00% |
Japan (Nikkei) | 10751 | 3,69% | 7,38% | 6,63% | 5,23% | 1,95% | 42,05% |
Samnorræn (VINX) | 89 | 1,68% | 10,37% | 13,65% | 15,96% | 11,02% | 72,95% |
Svíþjóð (OMXS30) | 1018 | 2,01% | 10,02% | 7,04% | 11,26% | 6,74% | 54,08% |
Noregur (OBX) | 337 | 0,42% | 9,06% | 0,15% | 16,61% | -0,92% | 77,13% |
Finnland (OMXH25) | 2238 | 3,18% | 11,99% | 13,68% | 13,92% | 9,59% | 72,87% |
Danmörk (OMXC20) | 372 | 0,33% | 6,09% | 12,20% | 12,18% | 10,48% | 65,96% |
(Bloomberg,15. mars 2010)
Krónan styrktist í liðinni viku og lækkaði gengisvísitalan um 0,80% skv. opinberu viðmiðunargengi SÍ og endaði í 227,55 stigum. Hefur krónan ekki verið sterkari síðan í byrjun júní í fyrra.
Frá áramótum hefur gengisvísitalan lækkað um 2,26% og
hefur krónan styrkst sem því nemur. Þetta hefur gerst þrátt fyrir pattstöðu í Icesave
málinu og neikvæð skilaboð frá mörgum aðilum um að ef málið leysist ekki hratt
þá hafi það mjög slæm áhrif á hagkerfið og aukin söluþrýsting á krónuna.
Málið er hins vegar það að hrakspár um að allt færi á versta veg ef lausn Icesave tefðist hafa ekki gengið eftir. Þvert á móti hefur umræðan snúist okkur í vil og aukins skilnings gætt á því að lausn málsins þurfi að vera sanngjörn fyrir íslendinga.
Það er líka ljóst að gjaldeyrishöftin virka betur en áður og því skilar jákvæður vöruskipta- og þjónustujöfnuður sér í styrkingu krónunnar.Vísitala | Lokagildi | Vika | 1 mán | 3 mán | 6 mán | Frá áram. | 12 mán |
GVT ISK | 229,39 | -0,80% | -1,97% | -3,99% | -2,74% | -2,26% | 16,94% |
Markaðsfréttir Íslenskra verðbréfa eru unnar af starfsmönnum
Íslenskra verðbréfa hf. Þær eru stutt samantekt og ber ekki að líta svo
á að í þeim sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni
sem til umfjöllunar eru.
Við vinnslu fréttanna er stuðst við innlendar og erlendar
upplýsinga- og fréttaveitur sem taldar eru áreiðanlegar, en einnig við
opinberar upplýsingar, eigin úrvinnslu og mat starfsmanna á hverjum
tíma. Íslensk verðbréf hf. ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna,
áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
Markaðsfréttirnar eru einungis birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ábyrgðarmaður Vikulegra markaðsfrétta Íslenskra verðbréfa er Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar.