Dregið var í afmælisgetraun Íslenskra verðbréfa hf. í dag en alls bárust 111 svör, bæði á tölvupósti og í bréfapósti. Erla Hólmsteinsdóttir, sem verið hefur starfsmaður félagsins frá upphafi, dró út eftirfarandi vinningshafa:
50 þús króna inneign í Hlutabréfasjóði ÍV hlaut Sigurborg Einarsdóttir
30 þús króna inneign í Hlutabréfasjóði ÍV hlaut Geir Garðarsson
20 þús króna inneign í Hlutabréfasjóði ÍV hlaut Gísli S. Einarsson
Um leið og við óskum vinningshöfum til hamingju, viljum við þakka þeim er tóku þátt. Haft verður samband við vinningshafa á næstu dögum. Á myndinni sjást Erla og Arne að loknum útdrættinum.