SJÓÐASTÝRING
ÍV Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa
Fyrir hvern er sjóðurinn?
ÍV Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa er traustur kostur fyrir þá sem vilja spara til meðallangs eða lengri tíma þar sem gengi sjóðsins getur sveiflast töluvert. Sjóðurinn hentar bæði almennum fjárfestum sem og fagfjárfestum.
Markmið og fjárfestingarstefna
Einungis er fjárfest í markaðsverðbréfum með ríkisábyrgð og er meðallíftími eignasafns sjóðsins á bilinu 5-7 ár. Stýring sjóðsins tekur að töluverðu leyti mið af verðbólguhorfum og því getur verðtryggingarhlutfall hans verið breytilegt frá mánuði til mánaðar.
Yfirlit
Eignaflokkur | Skuldabréfasjóður |
Rekstrarform | --- |
Rekstraraðili | Íslensk Verðbréf |
Uppgjörstími kaupa/sölu | Einn virkur dagur (T+1) |
Vörslufyrirtæki | T Plús hf. |
Áhættuflokkun | 2/7 |
ISIN | IS0000019560 |
Stofnár | 2001 |
Stærð (í m.kr.) | 2.651,4 |
Gjaldmiðill | ISK |
Umsýsluþóknun á ári | 1% |
Gengismunur | Enginn |
Afgreiðslutími | 10:00 - 14:00 |
Lágmarkskaup | 5.000 kr. |
Lagalegir fyrirvarar
Upplýsingar á heimasíðu þessari eru veittar í upplýsingaskyni eingöngu en skulu ekki nýttar á þeirri forsendu að um sé að ræða ráðleggingar vegna fjárfestinga í fjármálagerningum eða öðru. | Sjá nánari upplýsingar |