Sjóðastýring
ÍV Eignasafn II - Eignadreifing / Hlutabréf hámark 35%
Fjárfesting í sjóðnum hentar einstaklingum, fyrirtækjum og fagfjárfestum sem vilja nýta sér kosti sjóðaformsins, eru að fjárfesta til langs tíma og leita eftir virkri dreifingu og hreyfingum á milli eignaflokka, eignamarkaða og markaðssvæða, erlendum fjárfestingum og virkri stýringu.
Sjóðurinn er annar í röðinni í Eignasafnalínu ÍV og ÍV sjóða þar sem sá fyrsti flokkast sem áhættuminnstur mv. fjárfestingarheimildir, undirliggjandi eignir og virkni og sá fjórði áhættumestur. Sjóðurinn fjárfestir aðallega í innlendum og erlendum skuldabréfum og ber því minni áhættu en sjóðir sem fjárfesta einnig í hlutabréfum. Horft er til minni verðhreyfinga og flökkts en í áhættumeiri sjóðum línunnar.
Eignum og eignasamsetningu er stýrt með virkum hætti af sérfræðingum í eignastýringarteymi sjóðsins sem taka mið af markaðs- og efnahagsaðstæðum hverju sinni. Ávöxtun sjóðsins getur sveiflast nokkuð og því er mikilvægt að ekki sé horft til mjög skamms tíma við mat á árangri.
Sjóðurinn hentar vel fyrir þá sem fjárfesta með reglubundnum hætti, t.d með reglulegri áskrift.
Sjóðurinn er fjárfestingarsjóður á hlutdeildarformi í rekstri ÍV sjóða hf. undir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands skv. lögum nr. 45/2020 og lögformlegt heiti hans er ÍV Eignasafni II hs.
Yfirlit
Eignaflokkur | Eignastýringarsjóður |
Rekstrarform | --- |
Rekstraraðili | Íslensk Verðbréf |
Uppgjörstími kaupa/sölu | Einn virkur dagur (T+1) |
Vörslufyrirtæki | T Plús hf. |
Áhættuflokkun | 3/7 |
ISIN | IS0000032845 |
Stofnár | 2021 |
Stærð (í m.kr.) | 4.345,5 |
Gjaldmiðill | ISK |
Umsýsluþóknun á ári | 0.8% |
Gengismunur | Enginn |
Afgreiðslutími | 10:00 - 14:00 |
Lágmarkskaup | 5.000 kr. |
Sjóðstjórn
Guðrún Una Valsdóttir | |
Halldór Andersen |
Lagalegir fyrirvarar
Upplýsingar á heimasíðu þessari eru veittar í upplýsingaskyni eingöngu en skulu ekki nýttar á þeirri forsendu að um sé að ræða ráðleggingar vegna fjárfestinga í fjármálagerningum eða öðru. | Sjá nánari upplýsingar |