ÍV Erlent skuldabréfasafn

Síðast uppfært: 19.12.2024

Fyrir hvern er sjóðurinn?

Sjóðurinn hentar einstaklingum og lögaðilum, svo sem fyrirtækjum, fagfjárfestum og stofnunum sem kjósa að fjárfesta í verðbréfasjóðum sem hafa það eingöngu að markmiði að veita viðtöku fjár til sameiginlegrar fjárfestingar í tilteknum eignaflokki og dreifa eignum í samhengi við vænta ávöxtun og áhættu samkvæmt fyrir fram kunngerðri fjárfestingarstefnu. Sjóðurinn hentar aðilum sem fjárfesta til langs tíma og leita eftir virkri stýringu eignasafns, örum viðskiptum með eignir og hreyfingum innan eignamarkaða og markaðssvæða.

Eignasafni sjóðsins er stýrt með virkum hætti og sveiflur í verðmæti undirliggjandi eigna geta verið miklar. Eignarhlutdeild í verðbréfasjóðnum getur þannig rýrnað, aukist eða staðið í stað, allt eftir gengi og markaðsvirði undirliggjandi verðbréfa sem sjóðnum er heimilt að fjárfesta í samkvæmt fjárfestingarstefnu sinni.

Markmið og fjárfestingarstefna

Markmið sjóðsins er að veita hlutdeildarskírteinishöfum ávöxtunartækifæri í gegnum safn skuldabréfa á heimsvísu. Sjóðurinn fjárfestir í eignum sem skráðar eru á skipulagðan verðbréfamarkað eða eignum sem hafa virka daglega verðmyndun. Safn skuldabréfa getur innihaldið, svo sem en ekki tæmandi, eignir sem skráðar eru á mismunandi markaði, í mismunand löndum og í mismunandi mynt. Áhersla er lögð á seljanleika og gæði eigna í samhengi við áhættu..

Sjóðurinn ávaxtar fjármuni hlutdeildarskírteinishafa að meginstefnu með beinni fjárfestingu í skuldabréfum á heimsvísu, verðbréfum, og peningamarkaðsbréfum. Sjóðurinn hefur heimild til að fjárfesta í öðrum sjóðum, en að mjög takmörkuðu leiti (hámark 10%). Eignir eru skráðar á skipulagðan verbréfamarkað eða hafa daglega verðmyndun.

Verðbreyting (upphafsgildi = 100)

Eignasamsetning

Stærstu eignir

Fjárfestingarstefna Stefna Eign
Skuldabréf á heimsvísu 0%-100%  
  • Lánshæfi útgefanda BB- eða betra
90%-100%  
  • Lánshæfi frá B+ til CCC+
0%-10%  

              - Þar af hámark á hvern útgefand

0,5%  
  • Lágmarksfjöldi útgefenda
30  
Fjárfesting í öðrum skuldabréfasjóðum 0% - 10%  

Stærstu útgefendur

Verðbreyting tímabila Frá áramótum 3 mán 6 mán 12 mán
ÍV Erlent skuldabréfasafn 2,9% -2,6% 3,0% 3,5%
Verðbreyting ára 2023 2022 2021 2020 2019
ÍV Erlent skuldabréfasafn 14,0% -14,2%

Grunnupplýsingar

Stærð (m.USD) 13,6
Sjóðstjóri Halldór Andersen og Þorsteinn Ágúst Jónsson
Stofnár 2021
Umsýsluþóknun á ári 0.8%
Árangursþóknun 15% umfram ávöxtunarviðmið
Árangursviðmið 50% MSCI USD HY Corporate Bond Index og 50% MSCI USD IG Carry Corporate Bond Index
Rekstraraðili ÍV sjóðir hf.
Vörsluaðili Íslensk verðbréf hf.

Viðskipti

Lágmarkskaup (USD) 50
Þóknun við kaup 0,5%
Þóknun við sölu 0%
Afgreiðslutími 10:00 - 14:00
Uppgjörstími 2 viðskiptadagar (T+2)
Áskriftarmöguleikar

Tölfræðilegar upplýsingar

Gengi sjóðs 19.12.2024 0.9904
Meðallíftími (ár) 5,8

Hvernig fjárfesti ég í sjóðnum?

Íslensk verðbréf hf. er helsti söluaðili verðbréfa- og sérhæfðra sjóða fyrir almenning sem reknir eru af ÍV sjóðum hf. ÍV sjóðir hf. er dótturfélag Íslenskra verðbréfa.

Fjárfesting í sjóðunum fer fram í gegnum Verðbréfavef ÍV eða með því að hafa samband á iv@iv.is. Hægt er að spara reglulega með því að gerast áskrifandi að sjóðnum í gegnum Verðbréfavef ÍV.

Hlutdeildarskírteini sjóðsins eru rafræn.

1: iv@iv.is

2: 460-4700

Skattlagning

Hagnaður af innlausn eignarhlutdeildar sjóðsins er skattskyldur á Íslandi. Skattskyldur hagnaðar ákvarðast samkvæmt lögum um tekju- og eignarskatt nr. 90/2003 og myndar eignarhlutdeild í sjóðnum stofn til greiðslu eignarskatts. Vörslufyrirtæki sjóðsins, Íslensk verðbréf hf., sér um að standa skil á fjármagnstek juskatti samkvæmt 3. gr. laga nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, en hann leggst á þegar eignarhlutdeild í sjóðnum er seld með hagnaði eða þegar tekjur eru greiddar af eignar hlutdeild. Söluhagnaður ber 22% fjármagnstekjuskatt. 

Fyrirvari

ÍV Erlent skuldabréfasafn er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 116/2021 um verðbréfasjóði. ÍV sjóðir hf. er rekstrarfélag sjóðsins.

Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Vakin er athygli á að ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts.

Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel lykilupplýsingar, útboðslýsingar og reglur sjóðsins auk annarra þeirra upplýsinga sem fram koma á tilteknum vefsvæði hans. Sérstaklega er bent á umfjöllun um áhættuþætti sem fram koma í útboðslýsingum. Eftir atvikum er fjárfestum ráðlagt að afla sér ráðgjafar óháðs aðila.

Upplýsingar þær sem hér koma fram eru einungis veittar í upplýsingaskyni og þær ber ekki að skoða sem tilboð á einn eða annan hátt og ekki skal líta á efnið sem ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga.