Sjóðastýring
ÍV Stokkur
ÍV Stokkur er sérhæfður sjóður fyrir almenning sem er einkum ætlaður fjárfestum sem sækjast eftir virkri stýringu á hlutabréfum, eru að fjárfesta til langs tíma og eru tilbúnir að taka áhættu á sveiflum í ávöxtun. Sjóðurinn hentar einstaklingum, fyrirtækjum og fagfjárfestum sem þola töluverðar sveiflur í ávöxtun.
Sjóðurinn fjárfestir í innlendum hlutabréfum (skráðum og óskráðum) og innlánum fjármálafyrirtækja. Í samræmi við skoðun ÍV sjóða, á hverjum tíma, fjárfestir sjóðurinn í þeim eignarflokki sem líklegur er til þess að gefa góða ávöxtun að teknu tilliti til áhættu. Markmið sjóðsins er að ná fram betri langtímaávöxtun en innlendur markaður með skráð hlutabréf í heild. Sjóðnum er heimilt að festa það fé sem hann nýtir til fjárfestinga í öðrum sjóðum að hluta eða öllu leyti í sjóðum sem reknir eru af ÍV sjóðum hf.
Yfirlit
| Eignaflokkur | Hlutabréfasjóður |
| Rekstrarform | Sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta |
| Rekstraraðili | Íslensk Verðbréf |
| Uppgjörstími kaupa/sölu | Tveir virkir dagar (T+2) |
| Vörslufyrirtæki | T Plús hf. |
| Áhættuflokkun | 6/7 |
| ISIN | IS0000026920 |
| Stofnár | 2016 |
| Stærð (í m.kr.) | 1.106,6 |
| Gjaldmiðill | ISK |
| Umsýsluþóknun á ári | 1.7% |
| Árangursþóknun | 15% umfram ávöxtunarviðmið |
| Árangursviðmið | OMXIGI |
| Þóknun við kaup | 1% |
| Þóknun við sölu | 0% |
| Viðskiptatími | 10:00 - 14:00 |
| Lágmarkskaup | 5.000 kr. |
| Áskriftarmöguleiki | Já |
Sjóðstjórn
| Jón Rúnar Ingimarsson | |
| Halldór Andersen |
Lagalegir fyrirvarar
| Upplýsingar á heimasíðu þessari eru veittar í upplýsingaskyni eingöngu en skulu ekki nýttar á þeirri forsendu að um sé að ræða ráðleggingar vegna fjárfestinga í fjármálagerningum eða öðru. | Sjá nánari upplýsingar |