Fréttir og tilkynningar
Fréttir

Tilkynning um fyrirhugaðan samruna ÍV Skuldabréfa hs. og ÍV Skuldabréfasafns hs.
Stjórn Íslenskra verðbréfa hefur samþykkt að sameina ÍV Skuldabréf hs. og ÍV Skuldabréfasafn hs. ÍV Skuldabréf er yfirtökusjóður og ÍV Skuldabréfasafn er samrunasjóður.

Breytingar á sjóðnum ÍV Erlent hlutabréfasafn hs.
Íslensk verðbréf hf. hafa fengið staðfestingu Seðlabanka Íslands á nýjum reglum fyrir verðbréfasjóðinn ÍV Erlent hlutabréfasafn hs., sem ber nú heitið ÍV Erlend hlutabréf hs.

Tilkynning um fyrirhugaðan samruna ÍV Stokks hs. og ÍV Hlutabréfa hs.
Stjórn Íslenskra verðbréfa hefur samþykkt að sameina ÍV Stokk hs. og ÍV Hlutabréf hs. (hét áður SIV Hlutabréf). ÍV Hlutabréf er yfirtökusjóður og ÍV Stokkur er samrunasjóður.

Nýr sjóður um fjármögnun fyrirtækja
Íslensk verðbréf hf. hefur stofnað sjóðinn SIV Credit Fund II slhf. Sjóðurinn er samlagshlutafélag sem hefur það markmið að fjárfesta í skuldabréfum og lánum til fyrirtækja, að mestu með veði í fasteignum og öðrum fastafjármunum. Heildaráskriftarloforð sjóðsins nema 12,6 milljörðum króna og eru eigendur sjóðsins margir af stærstu fagfjárfestum landsins.

Breyting á nöfnum sjóða í rekstri Íslenskra verðbréfa
Íslensk verðbréf hf. hafa fengið staðfestingu Seðlabanka Íslands á nýjum reglum fyrir deildarskipta sjóðinn Fjárfestingarsjóður SIV eignastýringar hs.

Nýr sjóður í rekstri Íslenskra verðbréfa
Íslensk verðbréf hf. hefur lokið fjármögnun á nýjum sjóð sem ber heitið SIV Alternative Credit Fund. Um er að ræða sérhæfðan sjóð sem kemur að fjármögnun fyrirtækja en heildaráskriftarloforð sjóðsins nemur rúmum 5 milljörðum króna. Sjóðurinn hefur víðtækar heimildir við lánsfjármögnun fyrirtækja en fjárfestar í sjóðnum eru stofnanafjárfestar auk annarra fjárfesta. Íslensk verðbréf hf., dótturfélag Skaga hf., rekur verðbréfasjóði og sérhæfða sjóði fyrir almenna fjárfesta og fagfjárfesta ásamt því að hafa heimild til eignastýringar. Heildareignir í stýringu félagsins eru um 210 ma.kr.

Tilkynning um breytingar á reglum ÍV Skammtímasjóðs hs. og fyrirhugaðan samruna ÍV Skammtímasjóðs hs. og SIV Lausafjársjóðs hs.
Stjórn Íslenskra verðbréfa hf. samþykkti á fundi þann 30. maí 2025 breytingu á reglum og fjárfestingarstefnu fyrir ÍV Skammtímasjóð. Á sama fundi var samþykkt að sameina ÍV Skammtímasjóð og SIV Lausafjársjóð, sem er sjóðsdeild í Fjárfestingarsjóði SIV eignastýringar hs.

Sameinað félag Íslenskra verðbréfa hf. hefur starfsemi
Samþykkt var á aðalfundi SIV eignastýringar og ÍV sjóða 31. mars síðastliðinn að sameina starfsemi félaganna undir merkjum Íslenskra verðbréfa hf. Með samrunanum verður til öflugt eigna- og sjóðastýringarfélag með um 200 milljarða króna í stýringu og reynslumikið teymi fimmtán starfsmanna.

Anna Kristjánsdóttir til SIV eignastýringar
Anna Kristjánsdóttir hefur verið ráðin sem sjóðstjóri til SIV eignastýringar og kemur hún inn í kredit teymi félagsins. SIV eignastýring mun fljótlega sameinast ÍV sjóðum undir nafninu Íslensk verðbréf en félagið tilheyrir samstæðu Skaga.

SIV eignastýring sameinast ÍV sjóðum og verður Íslensk verðbréf
Með sameiningu SIV eignastýringar og ÍV sjóða undir heitinu Íslensk verðbréf verður til öflugt eigna- og sjóðastýringarfélag með hátt í 200 milljarða króna í stýringu og starfsemi í Reykjavík og á Akureyri.

Fjárfestu í sjóðum SIV rafrænt
Það gleður okkur að segja frá því að nú er hægt að fjárfesta í sjóðum SIV eignastýringar í gegnum heimasíðu félagsins.

