Fara í efni
Allar fréttir

Íslensk verðbréf stofna ÍV Norræn fyrirtækja­skuldabréf

Sævar Ingi Haraldsson, sjóðstjóri.
Sævar Ingi Haraldsson, sjóðstjóri.

Íslensk verðbréf hafa stofnað nýjan sjóð, ÍV Norræn fyrirtækjaskuldabréf hs., sem fjárfestir í skuldabréfum norrænna fyrirtækja. Sjóðurinn hóf starfsemi 1. október 2026 og er þegar orðinn um 1,2 ma.kr. að stærð.

Með sjóðnum fá íslenskir fjárfestar aðgang að norrænum fyrirtækjaskuldabréfamarkaði (e. Nordic High Yield), sem hefur vaxið hratt á undanförnum árum. Sjóðurinn er í íslenskum krónum og er gjaldeyrisáhætta því varin.

Vaxandi markaður á aðlaðandi vaxtakjörum

Norrænn fyrirtækjaskuldabréfamarkaður hefur vaxið hratt á undanförnum árum og er orðinn mikilvæg fjármögnunarleið fyrir fyrirtæki í hinum ýmsu atvinnugreinum. Markaðurinn hefur jafnframt dregið að sér vaxandi fjölda alþjóðlegra fjárfesta.

Skuldabréf á markaðnum hafa í gegnum tíðina boðið upp á aðlaðandi vaxtakjör og stór hluti þeirra ber fljótandi vexti, sem dregur úr vaxtanæmni. Þegar gjaldeyrisáhætta er varin yfir í íslenskar krónur bætist vaxtamunur jafnframt við ávöxtun sjóðsins.

Um sjóðinn

Sjóðurinn fjárfestir einkum í skuldabréfum fyrirtækja á Norðurlöndunum. Stefna sjóðsins er að fjárfesta í um 20–30 útgefendum hverju sinni í hinum ýmsu atvinnugreinum, meðal annars orku, sjávarútvegi, skipaflutningum og fjármálaþjónustu. Meðallíftími eignasafnsins verður að öllu jöfnu 2–4 ár en vaxtaáhætta lægri þar sem stór hluti safnsins er á fljótandi vöxtum.

Sjóðstjóri er Sævar Ingi Haraldsson, sem hefur stýrt skuldabréfasjóðum hjá Íslenskum verðbréfum.

Sjóðurinn er sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta og opinn öllum. Kaup og sala eru gerð upp þremur dögum eftir að pöntun berst (T+3).

„Norræni fyrirtækjaskuldabréfamarkaðurinn hefur vaxið hratt og býður fjárfestum upp á breitt úrval útgefenda. Með stofnun ÍV Norræn fyrirtækjaskuldabréf geta íslenskir fjárfestar nú tekið þátt á einfaldan hátt á þessum áhugaverða markaði í íslenskum krónum,“ segir Arnór Gunnarsson, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa.

Nánari upplýsingar, útboðslýsing og lykilupplýsingaskjal má finna á síðu sjóðsins.

Fjárfesting í sjóðum felur í sér áhættu. Gengi sjóðsins getur sveiflast og ávöxtun í fortíð er ekki trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Fjárfestum er bent á að kynna sér útboðslýsingu og lykilupplýsingaskjal sjóðsins áður en fjárfest er.

Tengt efni