Fara í efni

Fjármálaþjónusta

Um félagið

Íslensk verðbréf hóf starfsemi þann 31. mars 2025 í kjölfar sameiningar SIV eignastýringar og ÍV sjóða.

Starfsemi
Sjóðir og eignastýring
Móðurfélag
Skagi hf.
Stjórn
Meirihluti ótengdur Skaga
Framúrskarandi fyrirtæki fimm ár í röð, 2022–2026 – Creditinfo

Starfsemi

Sjálfstætt og óháð

Félagið er sjálfstætt starfandi eignastýringarfyrirtæki sem rekur verðbréfasjóði, sérhæfða sjóði fyrir almenna fjárfesta og sérhæfða sjóði sem markaðssettir eru til fagfjárfesta. Félagið starfar á grundvelli laga nr. 116/2021 um verðbréfasjóði og laga nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Þá hefur félagið einnig heimild til eignastýringar. 

Félagið er dótturfélag Skaga hf. Íslensk verðbréf er óháð eignastýringarfyrirtæki og er meirihluti stjórnarmanna félagsins ótengdir Skaga.

Fyrir seljendur fjármálagerninga

Meðhöndlun markaðsþreifinga

Íslensk verðbréf hf. ætlast til þess að seljendur fjármálagerninga sem hyggjast beina markaðsþreifingum til Íslenskra verðbréfa fylgi MAR reglugerðinni (ESB nr. 596/2014) og lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60 frá 2021 til hins ýtrasta.

Móttakandi markaðsþreifinga

Arnór Gunnarsson

Framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa

Fyrir viðskiptavini

Meðhöndlun kvartana

Stefna Íslenskra verðbréfa um meðhöndlun kvartana er að tryggja gagnsætt og skilvirkt verklag við úrvinnslu kvartana sem berast félaginu, auk þess að tryggja skjóta og sanngjarna afgreiðslu slíkra erinda.

  1. 1

    Skriflega með tölvupósti

    Kvörtun skal almennt sett fram skriflega og send á netfangið regluvarsla@iv.is.

  2. 2

    Ástæður kvörtunar

    Tiltaka skal ástæður kvörtunar og lýsa í meginatriðum því sem kvartað er yfir.

  3. 3

    Svar innan fjögurra vikna

    Kvörtun er svarað skriflega með tölvupósti. Sé ekki unnt að leysa úr henni innan þeirra tímamarka er viðskiptavinurinn upplýstur um ástæður þess og hvenær svars megi vænta.

Fréttir

Fréttasafn