ÍV í einkaviðræðum um kaup á Blikastaðalandi

Arion banki hefur samþykkt að ganga til einkaviðræðna við Íslensk verðbréf hf., fyrir hönd óstofnaðs sérhæfðs sjóðs, um kaup sjóðsins á öllu hlutafé í Blikastaðalandi ehf., sem á og vinnur að uppbyggingu Blikastaðalands í Mosfellsbæ.
Íslensk verðbréf vinna að verkefninu í samstarfi við Klasa ehf., sem yrði fyrirhugaður þróunaraðili verkefnisins og er gert ráð fyrir að Klasi verði kjölfestufjárfestir í sjóðnum.


Viðræðurnar byggja á tilboði sem sjóðurinn lagði fram í öðrum fasa söluferlis Blikastaðalands ehf. Verðið sem rætt er um er innan þess 14 til 16 milljarða króna bils sem Arion banki greindi frá í kauphallartilkynningu 25. september síðastliðinn.
Stefnt er að undirritun kaupsamnings fyrir árslok 2026 og að viðskiptunum ljúki á fyrsta ársfjórðungi 2027.
